Fljúgum hærra

Fljúgum hærra

By Lovísa og LindaArtsMusicMusic History
Download on the App Store

Fljúgum hærra episodes

  • 92) Fljúgum hærra - Louise L. Serpa og rodeo

    Kúrekar á ótemjum og draumsýnin um villta vestrið dró yfirstéttarstelpuna Louise L. Serpa út í það að ljósmynda rodeó sýningar. Hún hóf ferilinn seint og lærði aldrei ljósmyndun en náði 48 árum í bransanum og varð eitt þekktasta andlit ródeóljósmyndara Bandaríkjanna.  
    Hún er ein af þessum konu sem braut múra. Í hennar tilfelli varð hún fyrst kvenna til að fara inn á sjálfan rodeóvöllinn að mynda; þetta var árið 1963. Sama ár trakðaði naut á henni en þessi tveggja barna einstæða móðir lét það ekkert stoppa sig. „You need to cowboy up“ hefur hún líklegast sagt  og fengið sér sopa af Tequila sem var í miklu uppáhaldi.

    1 hr
  • 91) Fljúgum hærra - PJ Harvey

    Polly Jean Harvey er sveitastelpa frá  Dorset á suður-Englandi. Hún fór í listanám en ekki í tónlist heldur í höggmynda- og leirlist. Tónlistin var bara skemmtilegt hobbý til að byrja með.
    En meira en 30 árum og 10 plötum og ótal öðrum tónlistarverkefnum seinna er PJ Harvey enn að. Markmiðin eru enn jafn háleit og þrjóskan við að endurtaka sig aldrei er enn til staðar. Hún hefði aldrei enst í AC/DC


    1 hr 3 min
  • 90) Fljúgum hærra - Catherine Leroy í Víetnam

    Smávaxin ung frönsk kona með fléttur í hárinu, glænýja Leicu um hálsinn og 200 dollara í vasanum keypti sér, árið 1966 flug til Víetnam aðra leið til að byrja þar feril sinn sem stríðsfréttaljósmyndari. Flestir héldu að annað hvort gæfist hún upp eða væri dauð áður en árið væri liðið.  
    Þetta var Catherine Leroy. Stríðið í Víetnam breytti henni fyrir lífstíð og hún átti einstakan og langan feril  sem stríðsfréttaljósmyndari. Catherine var með það á heilanum að verða fyrsta konan til að góma hin virtu Robert Capa verðlaun og það tóks henni að lokum

    1 hr 6 min
  • 89) Fljúgum hærra - Adele

    Adele skaust upp á stjörnuhimininn aðeins 19 ára gömul meða samnefndri plötu. 
    Það er eitthvað við lögin hennar sem náði að höfða til milljóna manna út um allan heim og hún hafði söngrödd sem fékk fólk til að fá gæsahúð við að hlusta.
    Þó að hún sé bara a 35 ára og hafi aðeins gefið út 4 sólóplötur þá er hún með söluhæstu tónlistarmönnum í heimi hafandi selt yfir 120 milljón eintök af þessum 4 plötum sínum á heimsvísu. Eitthvað sem hún hefur örugglega ekki séð fyrir í sínum allra villtustu draumum þegar hún var að alast upp í Tottenham hverfinu í London í félagslegu íbúðinni sem hún deildi mað mömmu sinni.

    1 hr 14 min
  • 88) Fljúgum hærra - Marie, Bolette og kynusli í Noregi

    Norsku ljósmyndararnir Marie Høeg og Bolette Berg pökkuðu vandalega niður þeim glerplötum sem sýndu hluta af viðkvæmu einkalífinu og merktu sem „privat“. Þær voru lífsförunautar, ráku saman ljósmyndastofu og útgáfufyrirtæki og börðust fyrir bættum kjörum kvenna um aldamótin 1900. Frægð þeirra sem ljósmyndarar er hins vegar tilkomin vegna þess að litla leyni myndasafnið þeirra fannst óvænt í hlöðunni á sveitasetrinu þeirra löngu eftir þeirra daga. Það sem þótti tabú þá þykir í dag fremur saklaust en ljósmyndirnar opna samt einhverja glufu inn í annan heim.

    41 min
  • 87) Fljúgum hærra - Cyndi Lauper

    Cyndi Lauper varð stórstjarna strax með sinni fyrstu plötu og litagleði og skrautlegt útlit var hennar vörumerki.
    En svo er eins og hún hverfi af sjónarsviðinu nokkrum árum seinna en við komumst að því að hún hafði alls ekki sest í helgan stein, langt því frá.
    Hún finnur fjölina sína á Broadway þar sem hún semur tónlistina við söngleikinn Kinky Boots sem rakaði inn verðlaunum og hún fer að gera plötur þar sem tónlistarstefnan var bara það sem hana langaði að gera á hverjum tíma og spreytti hún sig á flestu nema kannski black metal. En það kemur kannski seinna, Cyndi Lauper er óútreiknanleg.

    1 hr 8 min
  • 86) Fljúgum hærra - Cristina Garcia Rodero. Trúarhefðir á Spáni

    Spænski ljósmyndarinn Cristina Garcia Rodero tók ekkert mark á því þegar fólk sagði að hún myndi fljótt gefast upp þegar hún lagði af stað um sveitir landsins til að mynda hina undarlegustu trúarsiði og hefðir. 
    Verkefnið tók hana 15 ára og bókin hennar „Hidden Spain“ sem kom út árið 1989, er enn í dag hennar frægasta verk. Kuflklæddir þorpsbúar, lifandi fólk í líkkistu og dvergar sem taka þátt nautaati eru meðal þess sem hún fangar í mynd.  Og hún er enn að þvælast um heiminn og ljósmynda.

    55 min
  • 85) Fljúgum hærra - Jóla! Jóla!

    Það eru skiptar skoðanir um það hvenær sé ásættanlegt að byrja að spila jólalög en það ætti að vera óhætt núna þegar komið er fram í aðventu.
    Við spilum nokkur vel valin jólalög, öll sungin af konum auðvitað, segjum aðeins frá þeim og nokkrar góðar sögur fá að fylgja með. Og að sjálfsögðu kemur litla Ísland líka við sögu í þættinum að mis góðu tilefni þó.

    56 min
  • 84) Fljúgum hærra - Leyniþáttur Lindu

    Í þætti vikunnar fer Linda all hressilega út af sporinu í efnisvalinu.Hér eru engar ljósmyndakonur en nokkur vel valin lög (að henni fannst) fá að fljóta með.
    Lolla vissi ekkert um hvað þátturinn fjallaði fyrr en hún ýtti á Rec og Linda byrjaði að lesa. Það má deila um það hversu hrifin hún var þegar sannleikurinn kom í ljós.

    56 min
  • 83) Fljúgum hærra - Lady Gaga

    Lady Gaga hefur átt alveg magnaðan feril, ekki bara sem tónlistarkona og trendsetter heldur líka sem leikkona.
    Hún fór frá því að vinna sem gogo dansari á sveittum rokk klúbbum í New York yfir í að verða ein áhrifamesta tónlistarkona seinustu 15 ára og syngja bæði danstónlist, ofurballöður og jazz og gera það allt frábærlega vel.

    1 hr 16 min

About Fljúgum hærra

From the publisher's feed

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu…