Fljúgum hærra

Fljúgum hærra

By Lovísa og LindaArtsMusicMusic History
Download on the App Store

Fljúgum hærra episodes

  • 2) Rolling Stones og Altamont Festivalið: Þar sem Hells Angels héldu öllu í heljargreipum og hugsjón hippanna dó

    The Altamont Speedway Free Festival var haldið á samnefndri kappakstursbraut skammt frá bænum Tracy í Kaliforníu 6. desember 1969 að undirlagi Rolling Stones með aðkomu Greatful Dead og nokkura annara hljómsveita úr tónlistarsenunni í San Fransisco. 
    Það sem flestir höfðu vonast til að yrði einhverskonar Woodstock West, þar sem ást og friður myndu svífa yfir vötnunum varð eitthvað allt annað og kallaði Rolling Stone tímaritið Altamont versta dag í sögu rokktónlistarinnar. 
    Allt sem gat farið úrskeiðis gerðið það og meira til enda hafði skipuleggjendum gjörsamlega láðst að skoða afstöðu himintunglanna þegar dagsetningin var valin. Því ef þeir hefðu gert það hefðu þeir strax séð að 6. desember var Tungl í Sporðdreka og það boðaði dimma daga, ill tíðindi og ofbeldi.

    1 hr 3 min
  • 1) 80´s Hair Metal: Spandex, hárlakk og eyeliner

    80´s hair metal var "Nothin´ but a good time" eins og Poison komust svo skemmtilega að orði.  
    Allir sungu um kvenfólk, partý og áfengi og að skemmta sér var ófrávíkjanleg regla. Enginn pældi í morgundeginum og allt, sem var þess virði að gera, mátti klárlega ofgera.
    Ekkert hair metal band með sjálfsvirðingu lét sjá sig í öðru en leðri, spandex og blúndum og berar bringur voru þeirra vörumerki. Allir voru með eyeliner,  maskara, kinnalit og sítt hár og það var ekkert til sem hét of mikið púff eða of mikið hárlakk.
    Ef að einhversstaðar hefur verið gat á ozonlaginu á þessum tíma þá var það yfir Los Angeles.

    1 hr 19 min
  • 100) Fljúgum hærra - Íslenskar konur 1985

    Ljósmyndasýningin Augnablik árið 1985, var líkt og heróp til íslenskra kvenna um að þora að stökkva fram í sviðsljósið og sýna að þær væru jafn góðir ljósmyndarar og karlmenn. Meira en 20 konur sýndu ljósmyndir í Nýlistasafninu og þarna ægði saman verkum mjög ólíkra ljósmyndar.
     Jóhanna Ólafsdóttir, Svala Sigurleifsdóttir og Valdís Óskarsdóttir voru í fararbroddi en þarna sýndu líka fullt  af ljósmyndurum sem áttu langan ferl eða sumar sem hurfu alveg af radarnum. Besta bransasaga ársins tengdist þessari sýningu þegar fyrirsæta Vilborgar Einarsdóttur lenti í miklu lífsháska í Reynisfjöru. Meira um það í þessu síðasta hlaðavarpi okkar Lollu og Lindu. 

    56 min
  • 99) Fljúgum hærra - Janis Joplin

    Janis Joplin gaf ekki út nema 4 plötur á sínum stutta ferli og þar af tvær sem bara söngkonan í hljómsveitinni Big Brother and the Holding Company. Við erum enn að hlusta á þessar plötur, 53 árum eftir andlát hennar, jafn heilluð af þessari mögnuðu, tilfinningaþrungnu rödd.
    En fyrir innan harða skelina var viðkvæm manneskja sem þráði ást og viðurkenningu og að gera foreldra sína stolta en því miður þá gekk það ekki alltaf upp hjá henni.

    1 hr 22 min
  • 98) Fljúgum hærra - Edith Tudor-Hart. Ljósmyndarinn og njósnarinn

    Edith Tudor-Hart var ljósmyndari sem barðist fyrir félagslegu réttlæti og jöfnuði. Hún flúði frá heimalandi sínu, Austurríki þegar nasistar komust til valda og átti framtíðina fyrir sér sem ljósmyndari í Bretlandi. 
    En líf þessarar konu var vægast sagt óvenjulegt og ljósmyndaferilinn fór hálfvegis í vaskinn því Edith lifði tvöföldu lífi og var um tíma elt á röndum af Bresku leyniþjónustunni. 
    Í dag eru margir ákafir í að vita meira um æfi þessarar hugsjónakonu og verk hennar á sviði ljósmyndunar.

    45 min
  • 97) Fljúgum hærra - Madonna

    Í 40 ár hefur Madonna setið í sínu hásæti sem drottning popptónlistarinnar.
    Madonna er alls staðar; í sjónvarpi, í útvarpi, á forsíðum tímarita og jafnvel í bókabúðum. Hún er sérfræðingur í að halda sjálfri sér í umræðunni.
    Æðið í kring um Madonnu var eitthvað sem hafði ekki sést síðan á tímum Bítlanna og allan þennan tíma hefur hún náð að feta þessa mjóu línu á milli þess að vera trendy og commercial.


    1 hr 51 min
  • 96) Fljúgum hærra - Ylla og dýrin stór og smá

    Myndir þú fara inni í búr og girðingar með dýrunum í dýragarði til að ná góðum ljósmyndum? Líklegast ekki.  En þetta og meira til gerði hin ungverska  Ylla (Camilla Koffler) sem sérhæfði sig í ljósmyndun dýra og hlaut verulega frægð sem slíkur  ljósmyndari snemma á 20. öld. 
    Meðan aðrir í faginu notuðu myndavélina til að berjast gegn ranglæti og kúgun fasista eða gerðust súríalistar þá notaði Ylla myndavélina til að færa sig eins langt inn í heim dýra og hún komst. Myndir hennar voru gæddar blíðu og húmor og bækur hennar seldust eins og heitar lummur. Hún lifði þó ekki nógu lengi til að njóta til fullnustu frægðar sinnar

    46 min
  • 95) Fljúgum hærra - Cher

    Enginn í sögu skemmtanabransans hefur átt viðlíka feril og Cher. 
    Hún var unglingapoppstjarna, sjónvarpsþáttastjórnandi, tískuicon, rokkstjarna, poppsöngkona, discodíva og vinsælt umfjöllunarefni fjölmiðla í áratugi.
    Hún hefur selt yfir 100 milljón eintök af plötum á heimsvísu og er ein af þeim fáu sem hefur unnið Emmy, Grammy og Óskarsverðlaun.

    1 hr 36 min
  • 94) Fljúgum hærra - Graciela Iturbide og frumbyggjar Mexíkó

    Síðhærð frumbyggjakona af Seri ætt  gengur í eyðilegu landslagi með kassettutæki í hendi og á öðrum stað löngu seinna fer Zapotec kona á markað bæjarins með  fjölmargar eðlur á höfðinu. 
    Þetta eru tvær frægar ljósmyndir sem Graciela Iturbide færði okkur frá heimalandi sínu Mexíkó.  Graciela lagði sig fram um að mynda samfélög frumbyggja í Mexíkó og oftar en ekki var það veröld kvenna sem heillaði hana. Sú stóra sorg í lífi hennar þegar dóttir hennar deyr aðeins 6 ára gömul, var hvati fyrir Gracielu til að þræða vega listarinnar og nota myndavélina til að öðlast dýpri skiling á lífinu og tilverunni. 
    Fuglar og vængjasláttur urðu leiðarstef í hennar myndum þótt eðlur á höfði frumbyggjakonu sé alltaf hennar frægasta ljósmynd.

    54 min
  • 93) Fljúgum hærra - Nico (Velvet Underground)

    Hún hafði verið fyrirsæta fyrir Chanel, Elle og Vogue , leikið fyrir Fellini og Andy Warhol, sungið með The Velvet Underground og gert sólóplötur sem taldar eru fyrirmynd goth hljómsveita 9. áratugarins. Hún hitti alla og þekkti alla en glataði öllu og dó ein á sjúkrahúsi á Ibiza þar sem starfsfólkið sá hana bara sem enn einn dópistann að enda sitt ömurlega líf.  
    Dramatískari getur æfi einnar manneskju varla verið en æfi Nico var.

    1 hr 16 min

About Fljúgum hærra

From the publisher's feed

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu…