Fljúgum hærra

Fljúgum hærra

By Lovísa og LindaArtsMusicMusic History
Download on the App Store

Fljúgum hærra episodes

  • 12) Fljúgum hærra - Anna Þórhallsdóttir

    Þjóðin var full af spenningi  þegar sólmyrkvi sást á Íslandi árið 1954. 
    Áhugaljósmyndarinn Anna Þórhallsdóttir hafði skilið myndavél sína eftir heima en varð svo upprifin að hún stökk inní næstu ljósmyndavöruverslun til að fá lánaða myndavél og smellti af 8 myndum. Myndirnar þóttu einstakar og Anna lifði í frægðarsól þessara mynda alla ævi.

    36 min
  • 11) Fljúgum hærra - Macy Gray

    Í þessum þætti fáum við að kynnast konunni sem ætlaði aldrei að verða söngkona því henni fannst hún hljóma  eins og Andrés Önd frekar en Dionne Warwick og hver hafði áhuga á að heyra það?
    Hún var því komin á þrítugs aldur með mann og börn þegar frægðin ber óvænt að dyrum og hér er hún enn þrátt fyrir ýmis ljón sem urðu á veginum

    51 min
  • 10) Fljúgum hærra - Diane Arbus

    Hún er ein af stóru nöfnunum í vestrænni ljósmyndasögu og brautryðjandi í faginu. Hún myndaði gjarnan furðulegt fólk sem hún fann í afkimum samfélagsins eins og sirkusfólk, dverga, risa, tvíbura, þríbura, fólk á nektarnýlendum eða úr transveröldinni  svo fátt eitt sé nefnt. 
    Þetta er engin önnur en hin ameríska Diane Arbus. Hún er heimsþekkt og verk hennar margbirt og margumtöluð og skilgreind frá ólíkum sjónarhornum.



    54 min
  • 9) Fljúgum hærra - Joan Jett

    Joan Jett var ekki nema 17 ára þegar hún stofnar kvennarokkhljómsveitina The Runaways. Þegar sú hljómsveit leysist upp þá stefnir hún á sólóferil en það reyndist hægara sagt en gert að sannfæra plötuútgáfufyrirtæki um að stelpa í leðurgalla með gíta og magnarann stilltan á 11 væri einhver söluvara.
    En Joan gafst ekki upp og hér er hún enn með Gibsoninn sinn að spila rokk.

    59 min
  • 8) Fljúgum hærra - Jette Bang

    Jette Bang ólst upp í umhverfi sæfarenda og heimskautafara og dreymdi um að komast til Grænlands. Þegar hún loksins fór á norðurslóðir var það ekki til að sigra jökla og öðlast frægð heldur til að ljósmynda og kvikmynda hversdagslíf inúita og búa meðal þeirra við hörð lífskjör. Myndir þessarar dönsku konu eru einstakar.

    54 min
  • 7) Fljúgum hærra - Nina Hagen

    Í þessum þætti segjum við frá tónlistarkonunni, pönkdrottningunni og ólíkindatólinu Ninu Hagen. Hvernig unglingastjarna frá Austur-Berlín stofnar eitt allra heitasta bandð í pönk og nýbylgjusenunni í Evrópu um miðjan 8. áratuginn en verður svo tískuicon, besta vinkona Jean Paul Gaultier og gerir plötu með Giorgio Moroder. 

    1 hr
  • 6) Fljúgum hærra - Margrét og Lára

    Þær voru hefðardömur og ljósmyndarar en ólíkar eins og dagur og nótt en báðar settu fingrafar sitt á íslenska bókmenntasögu. 
    Í þessum þætti segir Linda okkur frá frænkunum Margréti Möller Árnason og Láru Ólafsdóttur.

    48 min
  • 5) Fljúgum hærra - Robyn

    Robyn er unglingastjarnan sem komst heilu og höldnu frá Amerísku poppmaskínunni og varð frumköðull í elctro tónlist eins og við þekkjum hana í dag. 

    48 min
  • 4) Fljúgum hærra - Annie Leibovitz

    Í þessum þætti segir Linda okkur frá ljósmyndaranum Annie Leibovitz sem er án efa einn frægasti tísku- og portretljósmyndari samtímans.
    Hún hefur myndað alla frá Elísabetu Englandsdrottningu, John Lennon og Lady Gaga til Barack Obama og Bill Gates og er enn að 72 ára gömul

    53 min
  • 3) Fljúgum hærra - Elle King

    Í þessum þætti ætlum við að fræðast aðeins um söngkonuna Elle King. 
    Stelpuna sem lærði að spila á banjó  af því henni fannst það svo cool hljóðfæri, vildi ekki nota eftirnafnið pabba síns sem er heimsþekktur leikari því hún vildi komast áfram á eigin verðleikum en ekki út á frægð pabbans og fann sér eiginmann frá helvíti í hótellobbýi í London.
    - - - - - - -
    Playlista og allskonar skemmtilegt ítarefni er svo hægt að finna á Facebook síðunni okkar.
    https://www.facebook.com/fljugumhaerrapodcast

    38 min

About Fljúgum hærra

From the publisher's feed

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu…