Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Sævar Atli: Mesta afrek á mínum fótboltaferli
    „Bara gjörsamlega sturlað," sagði Sævar Atli Magnússon um endann á tímabilinu hjá Lyngby. Liðið hélt sér uppi með frábærri endurkomu, voru á tímapunkti sextán stigum frá öruggu sæti en þegar lokaflautið gall í lokaumferðinni var liðið í öruggu sæti.
    Liðið hafði verið í fallsæti síðan í ágúst en að lokum var það markatalan sem gerði gæfumuninn því Horsens endaði með jafnmörg stig en verri markatölu og féll.
    Sæbjörn Steinke fór yfir tímabilið hjá Lyngby með Sævari, fagnaðarlætin, trúna á verkefnið, efasemdirnar og ræddi einnig sérstaklega um íslensku liðsfélaga sína og þjálfarann Frey Alexandersson. Sævar segir frá áfalli sem hann varð fyrir í vetur, erfiða tíma sem hann upplifði og stoltið sem fylgdi því að koma til baka.
    Hann er núna hluti af íslenska landsliðinu sem býr sig undir leiki gegn Slóvakíu og Portúgal á Laugardalsvelli.
    55 min
  • Leið næstum yfir Freysa - „Ótrúlega stoltur að hafa staðið með sjálfum mér"
    Lyngby hélt sér uppi í Superliga á laugardaginn með því að fá stig gegn Horsens í lokaumferðinni. Stigið dugði þar sem Álaborg tapaði gegn Silkeborg. Niðurstaðan varð sú að Lyngby og Horsens enduðu með jafnmörg stig en Lyngby var með betri markatölu. Álaborg var svo með stigi minna.
    Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby og þeir Alfreð Finnbogason, Kolbeinn Birgir Finnsson og Sævar Atli Magnússon eru leikmenn liðsins. Lyngby var í neðsta sæti deildarinnar frá því í ágúst og þar til Silkeborg komst yfir gegn Álaborg á laugardag.
    Á tímapunkti var Lyngby sextán stigum frá öruggu sæti en þjálfaranum og liðinu tókst kraftaverkið og Lyngby verður áfram í deild þeirra bestu í Danmörku.
    Sæbjörn Steinke ræddi við Frey í dag og fór yfir lokaflautið, afrekið, Silkeborg, trúna, íslensku leikmennina, þjálfarastarfið og álagið sem því fylgir og ýmislegt fleira.
    33 min
  • Tiltalið: Guðjón Pétur Lýðsson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Lengjudeildarliðs Grindavíkur Guðjón Pétur Lýðsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    3 hr 23 min
  • Stefán Teitur - Reyksprengjum kastað og stemningin þung
    Stefán Teitur Þórðarson var í stúkunni þegar Álaborg féll í fyrsta skipti úr dönsku Superliga í gær. Silkeborg, lið Stefáns Teits, vann leikinn 0-1 sem varð til þess að Álaborg endaði í neðsta sæti deildarinnar. Á sama tíma gerði Lyngby markalaust jafntefli við Horsens og dugði það stig til þess að Lyngby hélt sæti sínu í deildinni.
    Stefán var fjarri góðu gamni í leiknum vegna meiðsla og var því ekki á grasinu á meðan leik stóð. Eftir að leik lauk fór hann í klefann til liðsfélaga sinna og var þeim ráðlagt að vera þar lengur en venjulega. Það var vegna óánægju stuðningsmanna Álaborgar sem voru mjög svo svekktir með niðurstöðu tímabilsins. Ósáttir stuðningsmenn lokuðu leiðinni út af vellinum og þurftu leikmenn Silkeborg að fara krókaleið til að komast í sína rútu.
    Mikið var fjallað um málið í dönskum miðlum í gær og greint frá því að lögregla hefði þurft að grípa inn í.
    Sæbjörn Steinke ræddi við Stefán sem fór yfir leikinn í gær og atburðina. Hann fór einnig yfir tímabilið í heild hjá Silkeborg, sína persónulega frammistöðu, meiðslin og Evrópukeppnina þar sem Silkeborg vakti verðskuldaða athygli.
    23 min
  • Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og toppslagurinn þar sem allt sauð upp úr
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í boltanum.
    Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks er gestur eftir þennan rosalega toppslag Breiðabliks og Víkings sem endaði á óhemju dramatískan hátt.
    Þá mætir Sæbjörn Steinke og farið er yfir aðra leiki, bæði í Bestu deildinni og Lengjudeildinni.
    1 hr 39 min
  • Innkastið - Lögregluvarðstjórinn og margt býr í þokunni
    Innkastið í 10. umferð Bestu deildarinnar er með öðruvísi sniði. Í fyrri hluta þáttarins er talað við einn besta dómara deildarinnar, Pétur Guðmundsson lögregluvarðstjóra.
    Rætt er um líf og störf dómara Bestu deildarinnar, framkomuna gagnvart þeim og fleira.
    Seinni hlutinn hefst á 43:30 en þar skoða Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn leiki í Bestu deildinni og Lengjudeildinni.
    1 hr 35 min
  • Innkastið - Veðravíti og Víkingstap
    Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 9. umferð Bestu deildarinnar.
    Dauðafæri fór forgörðum hjá Breiðabliki, Tryggvi Hrafn sá til þess að Víkingur tapaði sínum fyrsta leik, Akureyringum létt eftir sigur gegn Fram, Fylkismenn safna stigum á meðan Eyjamenn eru í frjálsu falli, KR vann heimasigur og FH vann HK í stórskemmtilegum leik.
    1 hr 1 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners