Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Læti í Kórnum, enskur stórleikur og Danijel Djuric
    Af nægu að taka í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór á sínum stað.
    Farið er yfir íslensku fótboltavikuna og Mjólkurbikarinn; lætin í Kórnum og leikinn stórskemmtilega milli Víkings og KR, auk þess sem næsta umferð Bestu deildarinnar er skoðuð.
    Kristján Atli Ragnarsson rýnir í komandi stórleik Manchester United og Liverpool sem verður á mánudagskvöldið.
    Nýjasta stjarna Bestu deildarinnar, Danijel Djuric, er gestur þáttarins en hann fer svakalega líflega af stað í búningi Víkings.
    1 hr 41 min
  • Ungstirnin - Transfer Special
    Í þessum þætti er fjallað um þau ungstirni sem hafa verið að byrja vel í ensku úrvalsdeildinni, ungstirnaliðið FC Nordsjælland situr á toppi dönsku úrvaldsdeildarinnar, ungstirni á ferð og flugi um alla Evrópu að skipta um félög, Football Manager og svo margt margt fleira.
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson.
    1 hr 22 min
  • Heimavöllurinn: Sokkuðu spánna og eru efstar, ráðgátur og 3x ON í 2. deild
    Það er stútfullur Heimavöllur í dag. Línur eru aldeilis að skýrast í efstu deild og nú liggur fyrir að Meistaradeildarliðin Breiðablik og Valur mætast í bikarúrslitum. Það er ein umferð eftir af fyrri hluta 2. deildar og gríðarleg spenna framundan þar. Arnar Páll Garðarsson, þjálfari KR, er gestur þáttarins og rýnir með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur í 2. deildina og allt hitt sem um er að vera. Sem fyrr eru það Orka Náttúrunnar, Hekla og Dominos sem bjóða upp á þáttinn.
    1 hr 55 min
  • Ungstirnin - ÍAS & GBN úr Garðabæ
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson.
    Eftir langt sumarfrí þáttarins fjalla drengirnir um Mathys Tel (2005 / Bayern Munchen) sem var nýlega keyptur frá Rennes á 20 milljónir evra, sem og Charlie McNiell (2003 / Man Utd) sem á yfir 600 mörk fyrir yngri lið Man City og Man United.
    Ísak Andri Sigurgeirsson og Guðmundur Baldvin Nökkvason tveir af mörgum Ungstirnum í Garðabæ eru gestir að þessu sinni en þar er talað um áhuga erlendis, hvernig tímabilið hefur verið að ganga, Gústi Gylfa alltaf léttur og spurningar frá hlustendum sem og margt fleira.
    1 hr 12 min
  • Enski boltinn - Sumir gengu of langt
    Annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar er lokið og er það ljóst að Íslendingar eru svo sannarlega blóðheitir þegar kemur að enska boltanum.
    Það var mikill hiti í mönnum og sumir fóru yfir strikið. Bæði er hægt að tala um leikmenn og stuðningsmenn í samhengi við það.
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke, fréttamenn á Fótbolta.net, settust niður í dag með Stefáni Marteini Ólafssyni, stuðningsmanni Chelsea, og ræddu um aðra umferðina sem er að baki.
    Farið var yfir allt það helsta; stórt tap Manchester United gegn Brentford, umdeild atvik og stjóralæti á Brúnni, rauða spjaldið á Nunez og margt, margt fleira.
    1 hr 33 min
  • Innkastið - Hnífjafn toppslagur og ójafnt stríð
    17. umferð Bestu deildarinnar gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke í hljóðveri.
    Þreytt topplið gerðu jafntefli, vígið ógurlega í Úlfarsárdal, trúleysi hjá Breiðhyltingum, varabakvörðurinn í KR, mögnuð sóknarsýning Vals, handbragð Hemma Hreiðars er komið á ÍBV, þrotið hjá FH og Nökkvi er heitasti leikmaður deildarinnar. Einnig er Lengjudeildarhorn.
    1 hr
  • Ástríðan - 16. umferð - 3. deildin er ótrúleg en allt að skýrast í 2. deild
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í átakinu Preppbarinn.
    Tveggja manna teymi sem enginn getur skaðað mætti til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 16. umferð í báðum deildum.
    Meðal umræðuefnis:
    - Loksins eitthvað jákvætt úr Breiðholtinu- KFS á besta runninu síðustu 7 leiki- Njarðvík jafnar sig- Kormákur/hvöt öruggir og skila mögulega leikmönnum núna- Vængirnir dæmdir niður- ÍH með næst óvæntasta sigur sumarsins í ÁstríðunniHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 45 min
  • Útvarpsþátturinn - Liðin sem hafa breytt leiknum
    Elvar Geir og Benedikt Bóas stýra þætti vikunnar. Aðalumræðuefnið eru lið Víkings og Breiðabliks sem staðið hafa í ströngu á öllum vígstöðvum.
    Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, ræðir um árangur þeirra í Evrópu frá sjónarhorni þjálfarans.
    Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, þar á meðal bannið á Arnar Grétarsson, og Sverrir Örn Einarsson stuðningsmaður Víkings spjallar um viðureignina gegn Lech Poznan.
    Einnig er dómarinn Tómas Meyer í viðtali en hann er nýútskrifaður af sjúkrahúsi eftir óhugnalegt atvik í leik í 3. deildinni fyrir rúmri viku.
    1 hr 22 min
  • Ástríðan - 15. umferð - Njarðvík tapar, botnliðin vinna og Virðing í Vestmannaeyjum
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í átakinu Preppbarinn.Bræðurnir þrír, Sverrir Mar, Óskar Smári og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 15. umferð í báðum deildum.Meðal umræðuefnis:- Viðtalið við Arnar Halls og svör við því.- Virðing í Vestmannaeyjum- Úlfur fer og Njarðvík tapar- Blönduósvígið er fallið- Kári Péturs er góður með vinstri- ÍH þurfa margt til að halda sér uppiHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 51 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners