Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Fantabrögð - Megi landsliðin öll rotna
    Eftir áralanga dvöl í óbyggðunum mættust stálin stinn í dag þegar Gunni og Gylfi, umdeilanlega þeir bestu í bransanum, fóru yfir 11. umferð og margt annað. Lífið er lag sem þeir sungu saman tveir. Eins og alltaf.
    Dýrir varnarmenn eru betri en dýrir miðjumenn. Arsenal eru bestir. Antonio er ekki allur þar sem hann er séður. Salah rýfur 400 stiga múrinn og Reece James skorar 29,8 mörk í vetur.
    Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella hér.
    Þannig gerir þú strákunum kleift að leggja þá vinnu sem þeir vilja í hlaðvarpið.
    Smelltu hér til að ganga í Fantasy-deild Fantabragða. Kóðinn á deildina er 0dmju7
    1 hr 22 min
  • Útvarpsþátturinn - Landsliðið, Jón Rúnar og fótboltafréttir
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. nóvember.
    Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs og fyrrum starfsmaður KSÍ, gerir upp landsleikinn gegn Rúmenum og horfir til framtíðar.
    Jón Rúnar Halldórsson, stjórnarmaður í ÍTF, er gestur þáttarins. Rætt er við hann um breytingar á íslensku deildinni, sjónvarpssamninga og fleira tengt íslenska boltanum.
    Þá fara Elvar Geir og Tómas Þór yfir fótboltafréttir vikunnar, bæði innlendar og erlendar.
    1 hr 40 min
  • Enski boltinn - Talandi um endastöð og stefnuleysi
    Það er komið landsleikjafrí í ensku úrvalsdeildinni. Tólfta umferðin fór fram um helgina og var farið yfir það helsta.
    Manchester City rústaði grönnum sínum í United, en þó einungis með tveimur mörkum. Liverpool lá gegn West Ham og tveir stjórar voru reknir. Hverjir taka við Norwich og Aston Villa?
    Þeir Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans á Símanum og þjálfarinn Óskar Smári Haraldsson fóru yfir það helsta með Sæbirni Steinke.
    Enski boltinn er í boði Dominos.
    1 hr 42 min
  • Davíð Snorri: Þegar dugnaðurinn er á hreinu þá koma gæðin líka
    Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðsins valdi í síðustu viku hóp fyrir tvo leiki sem framundan eru. Ísland mætir Liectenstein næsta föstudag og Grikklandi þriðjudaginn 16. nóvember. Báðir leikirnir eru liður í undankeppni EM 2023.
    Davíð var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddi um komandi leiki og riðil Íslands.
    11 min
  • Fótboltafréttir vikunnar - Landsliðsval og leikmannaskipti
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már fara yfir fótboltafréttir vikunnar.
    Byrjað er að ræða landsliðsvalið og síðustu tvo leikina í undankeppni HM. Magnús Már velur byrjunarlið Íslands úr hópnum sem opinberaður var í vikunni.
    Annað til umræðu: Pétur Theodór slítur krossbandið í þriðja sinn, sóknarmannaleit Breiðabliks, Aron Jó í Val, staða Hannesar, óvæntustu skipti haustsins, Emil Pálsson fór í hjartastopp, Nuno út og Conte inn, Howe tekur við Newcastle og Xavi við Barcelona.
    51 min
  • Ítalski boltinn - Juventus í æfingabúðum og Bjarki Steinn með nýjan samning
    Í þætti vikunnar verður farið yfir vandræðaganginn í Juventus sem endaði á því að liðið var sent í æfingabúðir. Bjarki Steinn skrifaði undir nýjan samning hjá Venezia, hvernig lítur framhaldið út hjá honum? Sampdoria saknar Claudio Ranieri og toppbaráttan er hnífjöfn á milli Napoli og AC Milan.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.
    38 min
  • Ungstirnin x Garðabær
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Drengirnir fjalla um Luka Sucic (Salzburg) sem er enn einn spennandi leikmaðurinn í Salzburg og Kaiky Melo (Santos) sem hefur verið mikið líkt við varnarmanninn öfluga Thiago Silva.
    Þeir ungu og mjög efnilegu leikmenn Stjörnunnar Eggert Aron Guðmundsson og Óli Valur Ómarsson koma í heimsókn og takast drengirnir á í spurningakeppni. Þeir eru spurðir út í hvað hefur verið að gerast á þeirra ferli.
    1 hr 6 min
  • Fantabrögð - Salah slakar á og #SkáldaFPL
    Það kom að því. Mo Salah skoraði ekki. En lagði þó upp mark svo það voru ekki 100% vonbrigði hjá þeim metfjölda sem setti bandið á hann í þessari umferð.
    Aron og Gunni mættu í stúdíóið yfir leik Wolves og Everton og fóru yfir það helsta sem hafði gerst í umferðinni:
    - Reece James með tvennu og 21 stig!
    - Brentford ekki að gefa
    - Hvernig munu Spurs verða undir Conte?
    - #SkáldaFPL
    Að auki drógum við út sigurvegara í gjafaleik Massabón 🤩
    54 min
  • Enski boltinn - Nuno sparkað, Ramsdale lygasagan og kraftaverk Moyes
    Tíundu umferðinni í enska boltanum lýkur í kvöld með viðureign Wolves og Everton.
    Þeir Andri Geir Gunnarsson úr hlaðvarpsþættinum Steve Dagskrá og Arnar Laufdal Arnarsson, annar af umsjónarmönnunum Ungstirnanna, ræddu um það helsta í umferðinni.
    Í upphafi þáttar var hringt í Ingimar Helga Finnsson, stuðningsmann Tottenham, og farið yfir tíðindi dagsins. Andri er stuðningsmaður Barcelona og var spænska félagið til umræðu í lok þáttar.
    Arnar er mikill Ajax maður og ræddi um stöðu Donny van de Beek og fleira.
    Enski boltinn er í boði Domino's.
    1 hr 22 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners