Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Ástríðan - 2. deild special
    Sverrir og Gylfi fóru yfir málin eins og venjulega. Í þetta sinn var sérstaklega farið yfir 2. deildina þar sem engin umferð fór fram í 3. deild á milli þátta. Hins vegar ræddu þeir í lokin helstu fréttir úr 3. deild.
    1 hr 25 min
  • EM alls staðar - Fótboltinn gæti vel komið heim
    Sextán liða úrslitum EM alls staðar er lokið og eftir standa átta þjóðir. England sló út Þýskaland, heimsmeistararnir eru úr leik og ríkjandi Evrópumeistarar sömuleiðis.
    Sæbjörn Steinke ræðir um EM með tveimur góðum gestum. Þeir Eiður Ben Eiríksson og Tómas Þór Þórðarson mættu og ræddu um EM en auk þess var í upphafi þáttar aðeins rýnt í nýja stjóra Everton og Tottenham.
    1 hr 4 min
  • Íslenski boltinn í faðmi Sambandsdeildarinnar
    Sérstakur aukaþáttur þar sem fjallað er um fjármál og fótbolta. Rætt er um íslensk félagslið í Evrópukeppnum.
    Elvar Geir spjallar við Birgi Jóhannsson framkvæmdastjóra ÍTF og
    Björn Berg Gunnarsson deildarstjóra Greiningar Íslandsbanka.
    Fjallað er um þessa nýju Sambandsdeild, C-deildar Evrópukeppnina, sem hefur verið sett á laggirnar og möguleika íslenskra félagsliða á tekjum með tilkomu hennar.
    Hvernig er fyrirkomulagið og hvað þarfað gera til að endurheimta Evrópusætið sem Ísland hefur misst? Einnig er rætt um peningamál tengd EM alls staðar og sölu á sjónvarpsréttindum á íslenska boltanum.
    52 min
  • Ástríðan - Mörg lið að styrkja sig í glugganum
    Sverrir og Gylfi fóru yfir málin eins og venjulega. Áfram halda nýliðarnir að stríða 2. deildinni og KV situr á toppi deildarinnar á meðan botnliðin tvö eru að falla dýpra og dýpra í mýrina.
    Í 3. deild voru óvæntustu úrslit Íslandsmótins í sumar þegar Augn... nei KFS vann Ægismenn. KFG fær styrk úr Pepsi-deildinni á meðan Ægir leitar út fyrir landssteinana.
    Félagaskiptaglugginn er galopinn og liðin eru öll farin að horfa í kringum sig.
    Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.
    Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    1 hr 40 min
  • Innkastið - Blikar berjast um titilinn og falldraugur fluttur í Kórinn
    Innkastið eftir 10. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Ingó Sig fara yfir allt það helsta.
    Meðal efnis: Leiknir fyrsta liðið til að vinna Víking, Skagamenn missa niður forystu, Ungstirni með sigurmark á Meistaravöllum, Valur missti af stigum, dramatískur slagur um Kópavog, tíu leikmenn KA jöfnuðu gegn FH.
    Einnig er rætt um Lengjudeildina. Eru þjálfarasæti að hitna hratt þar?
    1 hr 5 min
  • Útvarpsþátturinn - Pepsi Max og Lengjan með Úlfi
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. júní.
    Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon.
    Skoðuð er tíunda umferð Pepsi Max-deildarinnar. Hvaða leikmenn hafa verið að valda vonbrigðum og hverjir hafa komið á óvart í sumar?
    Fjallað er vel um Lengjudeildina. Hverjir eru bestu miðjumenn deildarinnar og hverjir bestu sóknarmennirnir? Þá er opinberað hvaða leikmaður var valinn bestur í fyrsta þriðjungi.
    Í lokin er stutt EM horn þar sem Tómas velur úrvalslið riðlakeppninnar.
    1 hr 48 min
  • EM alls staðar - Nú hefst mótið fyrir alvöru
    Riðlakeppni EM alls staðar er að baki og nú hefst mótið fyrir alvöru. Sextán liða úrslitin eru að fara af stað og mesta spennan er fyrir leik Englands og Þýskalands.
    Sæbjörn Steinke ræðir um EM með tveimur góðum gestum, Valsararnir Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður á RÚV og Jóhann Skúli Jónsson hlaðvarpsstjórnandi mæta í hljóðver.
    50 min
  • Ungstirnin - Heimsókn frá Keflavík
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum nýjasta þætti fjölluðu drengirnir um Abdul Fatawu Issahaku sem hefur verið orðaður við Liverpool og Leverkusen.
    Drengirnir fjölluðu einnig um Riccardo Calafiori, ný vonarstjarna Róma á Ítalíu en Calafiori leikur stöðu vinstri bakvarðar.
    Hinir ungu og efnilegu Rúnar Sigurgeirsson og Davíð Snær Jóhannsson sem leika með Keflavík í Pepsi-Max deild karla komu í heimsókn í þáttinn. Drengirnir takast á í spurningakeppni og ræða um það sem hefur verið í gangi á ferli þeirra.
    1 hr 20 min
  • Ástríðan - Af hverju eru engin gæði í 3. deildinni!?
    Sverrir og Gylfi hittust seint í þetta sinn en gæðin voru til staðar, annað en í 3. deildinni. Af hverju geta liðin ekkert? Spennan er að magnast upp í 2. deildinni þar sem nýliðarnir eru báðir komnir á toppinn og mætast í næstu umferð!
    Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.
    Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    1 hr 41 min
  • Innkastið - Logi látinn fjúka og víti fara forgörðum
    Pepsi Max-deildin er loksins farin að finna taktinn aftur og Innkastið mætir eftir smá frí. Í þætti kvöldsins er farið yfir níundu umferð deildarinnar.
    Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson skoða leiki umferðarinnar.
    Meðal efnis: Stórleikur kvöldsins, þjálfaraskiptin í Krikanum, embættisferð Hannesar norður, vítaklúður, skelfileg mistök Skagamarkvarðar, Stjarnan vaknar, Keflavík vann nýliðaslaginn gegn Leikni og næstu leikir í Pepsi Max og Lengjunni eru skoðaðir.
    1 hr 3 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners