Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Höddi Magg kveður Pepsi Max mörkin og ræðir um Liverpool
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Hörður Magnússon kom í heimsókn en hann er hættur störfum sem íþróttafréttamaður, í bili að minnsta kosti.
    Hann fór yfir viðburðarík ár sem stjórnandi Pepsi Max-markanna, ræddi um árangur Liverpool í vetur og fleira tengt boltanum.
    1 hr 2 min
  • Gróttuleiðin í Pepsi Max - Greiðslur, þjálfarabreytingar og væntingar
    Grótta kom gríðarlega á óvart á liðnu sumri og vann 1. deildina. Liðið leikur í deild þeirra bestu á komandi ári.
    Birgir Tjörvi Pétursson, formaður knattspyrnudeildar Gróttu, kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977.
    Í þættinum opinberaði hann að þó leikmenn liðsins séu ekki á föstum launagreiðslum þá sé búið að setja upp sérstakt kerfi bónusgreiðslna fyrir leikmenn og þá þurfa þeir ekki að greiða neitt fyrir æfingaferð liðsins.
    Hvernig mun Gróttuleiðin virka í Pepsi Max-deildinni? Fær Ágúst Gylfason að setja sitt handbragð á liðið? Hvernig er félagið tilbúið að vera þátttakandi í Pepsi Max? Verður stúkan stækkuð?
    Hlustaðu á áhugavert viðtal við formann Gróttu.
    43 min
  • Fantabrögð - 17. umferð - Fantabrögð x Draumaliðið
    Í fjarveru GT dugði ekkert minna en að fá alvöru fallbyssu í þáttinn og því mætti Jói Skúli, stjórnandi hlaðvarpsins Draumaliðið og ræddi um Fantasy gengi sitt. Hann gerði svo upp 17. umferðina með Aroni og spáði í spilin fyrir næstu umferð.
    Eðlilega snerist umræðan mikið um hvað ætti að gera við Liverpool menn þar sem þeir eiga ekki leik í 18. umferð vegna HM félagsliða. Jói lokaði síðan þættinum með því að velja drauma-fantasy lið sitt í gegnum tíðina. Þar komu heldur betur upp skemmtileg nöfn sem margir vanir Fantasy spilarar ættu að muna eftir.
    1 hr 4 min
  • Innkastið - Stórir stjórar og lið tímabilsins hingað til
    Evrópu-Innkastið er sent út frá Ölveri í Glæsibæ þessa vikuna.
    Benedikt Bóas blaðamaður og Gunnar Ormslev kappleikjalýsandi voru með Elvari í Innkastinu að þessu sinni.
    Toppbaráttan var skoðuð og Gunnar fékk það heimaverkefni að velja úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar hingað til.
    HM félagsliða, El Clasico, Ancelotti eða Arteta og fleira í þætti vikunnar.
    50 min
  • Mögnuð fótboltasaga Ejub Purisevic
    Ejub Purisevic var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 og fór yfir fótboltasögu sína í viðtali við Elvar Geir og Tómas Þór.
    Ejub hefur markað djúp spor í íslenskan fótbolta en hann er þekktastur fyrir að ná ótrúlegum árangri sem þjálfari Víkings í Ólafsvík.
    Í viðtalinu segir Ejub frá því hvað leiddi hann til Íslands, ræðir um stríð í heimalandi sínu, ár sín sem spilandi þjálfari Sindra á Höfn í Hornafirði og opinberar í fyrsta sinn af hverju hann fór til Ólafsvíkur á sínum tíma.
    Áhugavert viðtal sem óhætt er að mæla með.
    1 hr 8 min
  • LiVARpool og Meistaradeildardrátturinn
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Er viðurefnið LiVARpool sanngjarnt? Er tilviljun að Steven Gerrard samdi til 2024? Hvernig verður drátturinn í Meistaradeildinni á mánudag?
    Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Evrópufótboltann.
    30 min
  • Innkastið - Sleðaferð um Pepsi Max-deildina
    Sérstök hátíðarútgáfa af Innkastinu! Teymið var kallað saman til að skoða stöðu mála hjá öllum tólf liðum Pepsi Max-deildar karla.
    Tómas Þór, Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már skoðuðu tíðindin sem hafa borist í haust og vetur.
    Hvernig eru leikmannahóparnir að líta út, hvaða leiðir er verið að fara í þjálfaramálum og hvaða vonir og væntingar er hægt að gera til liðanna?
    1 hr 49 min
  • Miðjan - Jói Kalli um stöðuna á Skaganum
    Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, er gestur í hlaðvarpsþættinum Miðjunni að þessu sinni.
    Meðal efnis: Draumabyrjun á síðasta tímabili, af hverju fjaraði undan liðinu?, leikmannamálin, breytingar á leikstíl ÍA, framhaldið á Akranesi, nýir aðstoðarþjálfarar, fjölgun leikja á Íslandsmótinu, ungur sonur í atvinnumennskunni, gervigras á Akranesvöll, ótrúlegt gengi Liverpool, ævintýri Leicester og jólahátíðin á Englandi.
    41 min
  • Fantabrögð - 16. Umferð - Rauð viðvörun
    Það skiptust á skin og skúrir þessa helgina hjá Aroni og Gylfa þegar kom að Fantasy. Þrefaldi Tottenham skammturinn hjá Aroni skilaði sér heldur betur þegar þeir unnu 5-0 sigur á Burnley. Á meðan unnu Liverpool 3-0 sigur og héldu hreinu en þar sem Trent spilaði aðeins 50 mín. fékk hann ekki stig fyrir að halda hreinu. Vardy hélt áfram að skora, Rashford er allt í einu orðinn einn heitasti leikmaðurinn í leiknum og Danny Ings heldur áfram að vinna í þakinu hjá sér.
    Á að kaupa Shelvey? Er Vardy áfram sjálfvalinn fyrirliði? Á að selja Lundstram? Er hægt að eiga fleiri en einn Son?
    Allt þetta og fleira til í nýjasta þættinum af Fantabrögðum.
    1 hr 48 min
  • Innkastið - Óstöðvandi topplið og meira fjör hjá Tottenham
    Það var líf og fjör í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni en gestir voru Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson.
    Öllu léttara var yfir þeim en síðast þegar þeir kíktu í heimsókn í byrjun október. Síðan þá hefur Jose Mourinho tekið við Tottenham og liðið klifrað upp töfluna.
    Farið var yfir leiki helgarinnar á Englandi og helstu tíðindi á Spáni, Ítalíu og Þýskalandi.
    Hjálmar kom síðan með byltingarkennda tillögu í tengslum við fjölgun leikja á Íslandsmótinu!
    1 hr

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners