Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Verður Liverpool besta liðið sem ekkert nær að vinna?
    Er Messi Guð? Gæti Liverpool orðið besta liðið sem ekkert nær að vinna á einu tímabili? Eftir 3-0 sigur Barcelona gegn Liverpool, í furðulegum fótboltaleik, fóru Elvar og Daníel yfir málin í Evrópu-Innkastinu.
    Eldræða Messi og hatrið á Suarez koma við sögu.
    Í þættinum er einnig farið yfir sigur Ajax gegn Tottenham, rætt er um ástandið hjá Arsenal, Guardiola fær hæstu einkunn fyrir sigurinn gegn Burnley og einnig er litið til Þýskalands og niður í Championship.
    Evrópu-Innkastið er í boði Ölvers í Glæsibæ.
    57 min
  • Innkastið - Lof og last eftir fyrstu umferð Pepsi Max
    Íslenska Innkastið er mætt á nýju tímabili. Hver umferð í Pepsi Max-deildinni verður gerð upp að henni lokinni.
    Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fengu til sín fótboltaþjálfarann Harald Árna Hróðmarsson og fóru yfir alla leikina í 1. umferð.
    Meðal efnis: Beitir eins og svart og hvítt í Garðabæ, Vel heppnuð frumsýning ÍA, Gústi Gylfa hristir upp í hlutum, Pedro glaður eftir 0-3 tap, FH steig ekki fast á bensíngjöfina, Víkingar koma á óvart, bikarleikir og Halli giskar.
    47 min
  • Heimavöllurinn – Upphitunarfjör fyrir Pepsi Max
    Það er komið að því að Heimavöllurinn hiti upp fyrir Pepsi Max deild kvenna enda aðeins fjórir dagar í að flautað verði til leiks. Í þætti dagsins birta þáttastýrurnar, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, lokaspá sína fyrir deildina, velja leikmenn sem eru líklegir til að skara fram úr á ýmsum sviðum og spá í spilin fyrir fyrstu umferð.
    1 hr 7 min
  • Inkasso-hringborðið - Spáð í spilin og öll liðin skoðuð
    Inkasso-deild karla fer að fara af stað og Fótbolti.net fékk tvo sérfræðinga til að meta keppnina sem er framundan í sumar.
    Sigurður Helgason, þjálfari 2. flokks KR, og Jón Þór Hauksson, þjálfari kvennalandsliðsins, sögðu sína skoðun á liðunum tólf.
    Spáin fyrir deildina var opinberuð.
    Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas.
    1 hr 5 min
  • Flugeldasýning í opnunarleik og ný stjarna
    Magnaður opnunarleikur Pepsi Max-deildarinnar, 3-3 jafnteflisleikur Vals og Víkings, var til umfjöllunar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu um leikinn en Benni var á vellinum og gaf sína skýrslu. Hverjir voru bestir og hverjir stóðu alls ekki undan væntingum?
    Hinn 18 ára Logi Tómasson skoraði magnað mark í leiknum, klobbaði tvo varnarmenn og smellti boltanum í samskeytin. En hver er þessi nýja stjarna Pepsi Max-deildarinnar? Logi var á línunni og kom golf, handbolti, gel og tónlist við sögu.
    36 min
  • Innkastið - Urðað yfir Manchester United
    Sumardeginum fyrsta er fagnað í Evrópu-Innkastinu.
    Elvar og Daníel ræddu um tap Manchester United gegn Manchester City í gær og hversu ótrúlega slakt lið United var. Hverjir eiga að vera áfram á Old Trafford og hverjum á að kasta burt?
    Er eðlilegt að stuðningsmenn Liverpool hafi haldið með United? Er titillinn kominn í hús hjá City? Af hverju er Pogba í liði ársins? Hvað er í gangi hjá Arsenal? Kemst Leeds upp?
    Þessum spurningum og fleirum er kastað fram í Evrópu-Innkastinu. Sportbarinn Ölver í Glæsibæ býður upp á Innkastið.
    39 min
  • Upphitunarþáttur Pepsi Max-deildarinnar - Öll liðin skoðuð
    Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon hituðu upp fyrir Pepsi Max-deildina sem fer af stað á föstudaginn.
    Spáin fyrir deildina var skoðuð og rætt um öll tólf liðin í deildinni.
    Óli Stefán Flóventsson, þjálfari KA, var á línunni og einnig var rætt við Pétur Viðarsson, varnarmann FH.
    1 hr 25 min
  • Hvernig fóru Úlfarnir að því að rúlla yfir Víkinga?
    Haka fór í gólf hjá mörgum þegar Úlfarnir, lið í 4. deildinni, rúllaði yfir Inkasso-lið Víkings í Ólafsvík í Mjólkurbikarnum. 6-2 urðu lokatölur.
    Úlfarnir hafa verið til í tvö ár og ekki gert mjög merkilega hluti í 4. deildinni. Ólafsvíkurliðið var hinsvegar hársbreidd frá því að komast í úrslit Mjólkurbikarsins í fyrra.
    Birgir Theodór Ásmundsson, spilandi formaður Úlfanna, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Birgir sagði meðal annars frá tengingu félagsins við Fram og sagði frá óskadrætti liðsins fyrir 32-liða úrslitin.
    19 min
  • Innkastið - Evrópudrama og Solskjær gæti klúðrað sumrinu
    Evrópu-Innkastið hjálpar þér að stytta föstudaginn langa.
    Elvar og Daníel fóru yfir ótrúlega dramatík Meistaradeildarinnar í vikunni, afrek Ajax og Tottenham, vonbrigði Manchester City, öruggan sigur Liverpool og af hverju stuðningsmenn Manchester United ættu að kvíða sumrinu.
    Spáð var í spilin fyrir undanúrslitin, bæði í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni. Þá var skoðuð spá fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni og hvað hefur komið mest á óvart.
    46 min
  • Niðurtalningin: Valur - Orri og Ívar
    Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina.
    Í dag er komið að því að ræða við Orra Sigurð Ómarsson og Ívar Örn Jónsson leikmenn Vals. Valur er Íslandsmeistari síðustu tveggja ára og þeim er spáð Íslandsmeistaratitli í spá Fótbolta.net fyrir sumarið.
    35 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners