Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Einkunnir Íslands - Hver var bestur í undankeppninni?
    Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson gerðu upp magnaða undankeppni HM í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Íslendingar náðu að vinna sterkan riðil sinn og tryggja sér farseðilinn á HM í Rússlandi.
    Elvar og Tómas fóru yfir meðaleinkunnir leikmanna Íslands í undankeppninni og komust að því hver var besti leikmaður okkar liðs í riðlinum.
    31 min
  • Ray Parlour: Sé Arsenal ekki skáka Manchester
    Ray Parlour, fyrrum leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, var gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net. Parlour varð þrívegis Englandsmeistari með Arsenal og fjórum sinnum bikarmeistari. Hann lék alls 339 leiki fyrir félagið á árunum 1992–2004.
    Eftir ferilinn hefur Parlour unnið við fjölmiðlastörf og í spjallinu var talað um Arsenal í dag og baráttuna í ensku úrvalsdeildinni, horft var til baka á gömlu og góðu tímana þegar hann var að spila og íslenska landsliðið kom auðvitað til tals.
    21 min
  • Innkastið - Við erum á leiðinni Rússland!
    Gleðivíman er allsráðandi í Innkastinu í kvöld. Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Tryggvi Guðmundsson fengu sér sæti strax og leik Íslands og Kosóvó lauk.
    Það verður að viðurkennast að það hafi verið farið hingað og þangað í Innkastinu að þessu sinni enda erfitt að halda skipulagi þegar gleðin er svona mikið við völd.
    Ísland er á leiðinni til Rússlands!
    33 min
  • Þjálfarakapallinn í Pepsi-deildinni skoðaður
    Það hefur verið fréttaflóð varðandi þjálfaramálin í Pepsi-deildinni að undanförnu.
    Tvö lið hafa skipt um þjálfara, tvö lið eru án þjálfara og sæti einhverra þjálfara eru í óvissu.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már ræddu um þær hræringar sem eru í gangi í þjálfaramálunum og fóru yfir ýmsar sögusagnir sem hafa verið í gangi.
    34 min
  • Veglegt landsliðshringborð - Addi Grétars gestur
    Það var boðið upp á landsliðsveislu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson mættu í gasklefann með stigin þrjú sem unnust í Tyrklandi.
    Þeir þrír voru á leiknum gegn Tyrklandi en mættu í þáttinn örfáum klukkustundum eftir að hafa lent á Keflavíkurflugvelli.
    Góður gestur mætti til þeirra, sjálfur Arnar Grétarsson þjálfari og fyrrum landsliðsmaður.
    Einnig var hringt í sjálfan Pyry Soiri, nýjustu þjóðhetju Íslendinga!
    1 hr 10 min
  • Innkastið - Rýnt í risaleikinn í Eskisehir
    Eftir að hafa skoðað leikvanginn í Eskisehir og fylgst með æfingu íslenska landsliðsins fengu Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson sér sæti fyrir utan hótelið og tóku upp nýtt Innkast.
    Rýnt er í komandi leik, líklegt byrjunarlið, helstu stjörnur Tyrkja og ýmislegt fleira. Tyrklandsforseti, bænaköll og skordýr koma meðal annars við sögu!
    33 min
  • Innkastið - Tyrkland í dag frá Antalya
    Innkastið að þessu sinni er sent út frá Antalya í Tyrklandi þar sem íslenska landsliðið býr sig undir risaleikinn gegn heimamönnum sem fram fer á föstudagskvöld.
    Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is, var með Elvari Geir Magnússyni og Magnúsi Má Einarssyni í Innkastinu.
    Rætt var um æfingu íslenska liðsins í dag, meiðslaáhyggjurnar, möguleika varðandi byrjunarliðið, stöðuna í riðlinum og fleira.
    27 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners