Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Besta deildin, TG9 og EM
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. júní. Umsjón: Elvar Geir og Valur Gunnars.
    Besta deildin er í aðalhlutverki og leikir gærdagsins gerðir upp. Lárus Orri Sigurðsson, nýr þjálfari ÍA, er á línunni og Tryggvi Guðmunds skoðar komandi leiki.
    Lengjudeildin er á sínum stað og Guðmundur Aðalsteinn er í beinni frá Sviss þar sem EM kvenna fer í gang á miðvikudag.
    1 hr 32 min
  • Tveggja barna móðirin sem leikur á sínu fjórða stórmóti fyrir Ísland
    Dagný Brynjarsdóttir er ein besta fótboltakona sem Ísland hefur átt. Á því liggur enginn vafi.
    Hún er núna á leiðinni á sitt fjórða stórmót eftir að hafa eignast sitt annað barn. Dagný er elsti leikmaður íslenska liðsins og mesti reynsluboltinn en hún hefur spilað 118 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim 38 mörk.
    Dagný settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Serbíu og ræddi um ferilinn, móðurhlutverkið, Evrópumótið sem er framundan og sitthvað fleira.
    55 min
  • Diljá og Karólína: Úr Krikanum á Evrópumótið með Íslandi
    Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Diljá Ýr Zomers eru tvær af þeim 23 sem valdar voru í EM-hóp Íslands. Þær eru á leið til Sviss um helgina og mótið hefst í næstu viku.
    Þær eru jafnaldrar og léku upp alla yngri flokkana saman með FH. Báðar stigu þær sín fyrstu skref í meistaraflokki með Fimleikafélaginu áður en þær fóru mismunandi leið.
    Núna eru þær saman í landsliðinu sem er á leið á stórmót; Karólína er að fara á sitt annað mót og Diljá sitt fyrsta.
    Þær settust niður með fréttamanni Fótbolta.net í Serbíu í dag og ræddu um ýmislegt; Yngri flokkana í FH, Evrópumótið og framtíðina meðal annars. Auðvitað ræddu þær líka um mynd sem þær settu á samfélagsmiðla á dögunum sem sýnir hvað þær eru komnar langt.
    29 min
  • Turnar segja sögur: Ísland og Júgóslavía
    Á níunda áratug síðustu aldar voru erlendir leikmenn enn fáir í íslenskum fótbolta. Með átökunum á Balkanskaganum fylgdi þó mikil breyting, þegar fjölmargir leikmenn og þjálfarar frá fyrrum Júgóslavíu leituðu hingað og hófu að leggja sitt af mörkum. Þeir færðu með sér djúpa þekkingu, fagmennsku og ástríðu sem hafði djúpstæð áhrif á íslenskan fótbolta. Margir þeirra áttu glæsilegan feril hér á landi og enn í dag má sjá áhrif þeirra bæði inni á vellinum og í þjálfun. Við rifjuðum upp þessa mikilvægu sögu og ræddum um nokkra af þeim einstöku leikmönnum og þjálfurum sem hafa markað spor sín á íslenskri knattspyrnusögu.
    50 min
  • Grasrótin - 9. umferð, línurnar farnar að skýrast í neðri deildum
    Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 9. umferð í 2. og 3. deild karla, 7. umferð í 4. deild og 6. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 12:00, 3. deild, 40:20, 4. deild, 1:05:35, 5.deild, 1:23:50, Utandeild, 1:34:25.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.
    1 hr 38 min
  • Leiðin úr Lengjunni - Fjölnismenn sóttu langþráðan sigur
    Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.
    1 hr 21 min
  • Innkastið - Stuðningsmenn KR bauluðu á Hlíðarenda
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Haraldur Örn í Innkastinu eftir 12. umferð Bestu deildarinnar.
    KR fékk skell gegn Val og stuðningsmenn KR létu óánægju sína í ljós, það voru læti í Kópavogi, Afturelding skoraði og vann á útivelli, Stjarnan á flugi, ekkert virðist geta bjargað ÍA og Gylfi átti góðan leik fyrir norðan.
    1 hr 6 min
  • Uppbótartíminn - Núna fer hausinn á EM
    Það eru níu dagar í fyrsta leik Íslands á Evrópumótinu í Sviss.
    Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson hita vel upp fyrir Evrópumótið í þætti dagsins af Uppbótartímanum.
    Hvernig eru andstæðingar Íslands og hverjar eiga vonir okkar og væntingar að vera?
    Einnig er aðeins talað um Bestu deildina fyrir langa EM-pásu sem er framundan.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Ásmundur Guðni Haraldsson
    Ásmundur Guðni Haraldsson er maður margra hatta. Hann er aðstoðarskólameistari í Brekkubæjarskóla á Akranesi, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu og landsliðsþjálfari Reitaboltalandsliðsins.Við Ási settumst niður og spjölluðum um væntanlegt Evrópumót, hvers vegna honum finnst svo gefandi að starfa með kvennalandsliðinu, liði sem hann hefur unnið með í yfir 100 landsleikjum og fórum yfir ferilinn frá því Guðjón Þórðar og Luka Luka Kostic gáfu honum sénsinn í KR.Ási sagði mér hvernig hann starfaði sem yfirþjálfari yngri flokka Gróttu og Stjörnunnar og við ræddum að sjálfsögðu það afrek sem hann náði er hann fór með Gróttu úr neðstu deild í þá næst efstu. Auðvitað fórum við svo yfir tímann hjá FH!Síðast, en alls ekki síst, fórum við djúpt ofan í reitaboltafræðin. Hvað gerist til dæmis ef þú klobbar tvo leikmenn í einni snertingu? Það er e.t.v. kominn tími til að gefa út nýtt myndband frá reitaboltasambandinu.Njótið
    1 hr 42 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners