Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Hvers konar vél er hann eiginlega búinn að smíða?
    Arne Slot er búinn að búa til hreint út sagt ótrúlega vel á mettíma hjá Liverpool.
    Liverpool vann 2-0 sigur gegn Manchester City í dag og það er erfitt að sjá annað en að þeir verði Englandsmeistarar. Allavega eins og staðan er núna.
    Davíð Eldur, stuðningsmaður Manchester City, kom í heimsókn í kvöld og fór yfir vandamálin hjá City en hans menn eru í dimmum dal þessa stundina. Hann fór yfir stórleikinn og aðra leiki helgarinnar með Guðmundi Aðalsteini og Magnúsi Hauki.
    55 min
  • Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn Þorvaldsson
    Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, er sérstakur gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net þessa vikuna. Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpi.
    Elvar Geir og Tómas Þór ræða við Óskar um verkefnið hjá KR og ýmislegt fleira.
    Í seinni hluta þáttarins er farið yfir fótboltafréttir vikunnar.
    1 hr 51 min
  • Enski boltinn - Stór frumraun, Púlarar í skýjunum og meistarar í dimmum dal
    Það var mikil eftirvænting fyrir frumraun Rúben Amorim hjá Manchester United. En honum er eflaust ljóst núna að hann á langan veg framundan.
    Man Utd gerði 1-1 jafntefli við Ipswich í fyrsta leik Portúgalans en fyrr í dag jók Liverpool forskot sitt á toppnum í átta stig. Það er orðið kalt á toppnum.
    Og svo er það Manchester City. Hvað er í gangi þar?
    Guðmundur Aðalsteinn, Hilmar Jökull og Magnús Haukur Harðarson fóru yfir málin á sunnudagskvöldi.
    1 hr
  • Útvarpsþátturinn - Ísland, fréttaflóð úr Bestu og Viktor Örn
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 23. nóvember. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir landsliðið og fréttaflóðið úr Bestu deildinni þar sem félögin keppast um að styrkja sig.
    Gestur þáttarins er Íslandsmeistarinn Viktor Örn Margeirsson sem átti frábært tímabil með Breiðabliki og var valinn í lið ársins.
    1 hr 45 min
  • Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Fylkir vs MBL
    Þetta er síðasti þátturinn í 16-liða úrslitum og eftir þennan þátt er það ljóst hverjir munu taka þátt í 8-liða úrslitunum. Í þessum þætti tekur Haraldur Örn á móti Ragnari Braga Sveinssyni sem keppir fyrir Fylki og Jóhanni Inga Hafþórssyni sem keppir fyrir MBL.
    47 min
  • Innkastið - Eigum að gera okkur vonir um HM 2026
    Ísland endaði í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni eftir 1 - 4 tap gegn Wales í gær.
    Sjö stig en þau hefðu átt að vera miklu fleiri miðað við frammistöðuna.
    Baldvin Már Borgarsson og Haraldur Örn Haraldsson settust niður með Guðmundi Aðalsteini og fóru yfir landsleikjagluggann. Einnig rætt lengi um Age Hareide og hans framtíð sem landsliðsþjálfara.
    Næst er það undankeppni HM 2026 og þó það sé ekki búið að draga, þá megum við leyfa okkur að vona. Liðið er spennandi, en þá aðallega framarlega á vellinum.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Nik Chamberlain
    Gestur vikunnar er Íslandsmeistari í fótbolta 2024. Nik Chamberlain kemur frá Englandi, lærði í Alabama og tengdist Íslandi þar í gegnum m.a. Sigga Sör, Kára Ársæls og Hjört Hjartar! Nik kom til Íslands og spilaði á Álftanesi og ÍH áður en hann spilaði fyrir austan hjá Hugin og KFF. Hann setti mark sitt á Íslenskan fótbolta hjá kvennaliði Þróttar og var á haustmánuðum Íslandsmeistari með Breiðabliki. Við fórum yfir margt. Meðal annars það að Breiðablik á að hafa sent Big Sexy í klippingu, hræðilegan tónlistarsmekk og tígulmiðjuna góðu ásamt því sem Nik valdi bestu leikmenn í sögu þjóðar kvennamegin! Við í Turnunum þökkum okkar traustu bakhjörlum í Nettó, Netgíró, Lengjunni, Fiskversluninni Hafið, Fitness Sport og Tékkanum Budvar ásamt Visitor ferðaskrifstofu. Njótið!
    2 hr 15 min
  • Frá Akranesi til Gana: Fer aftur með fótboltabúnað fyrir jólin
    Hin ganverska Samira Suleman safnar nú fótbolta- og íþróttabúnaði sem hún fer með til Gana um jólin.
    Samira gerði þetta líka um síðustu jól en hún fór þá með mikið magn af treyjum, skóm og öðrum búnaði í heimabæ sinn og gladdi þar mörg börn sem eiga ekki fyrir slíkan búnað. Fyrir börnin skiptir þetta gríðarlega miklu máli en í Gana er ekki sjálfsagt mál að eiga fótboltaskó og aðra hluti til fótboltaiðkunnar.
    Samira sjálf spilaði fótbolta í skólaskónum sínum þegar hún var yngri en hún er mikil fyrirmynd fyrir unga krakka í heimalandi sínu. Hún varð atvinnukona á Íslandi og er núna að stíga sín fyrstu skref í þjálfun á Akranesi. Hún ætlar sér langt í þeim bransa og ætlar þannig að brjóta fleiri múra.
    Hún vonast til þess að fá hjálp við að láta drauma rætast hjá börnum í Gana um jólin. Fólk getur haft samband við hana eða knattspyrnufélagið ÍA til að leggja sitt af mörkum með því að gefa fótboltadót eða með því að styrkja ferðalag hennar heim með allt dótið fyrir börnin í heimabæ sínum.
    29 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners