Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Niðurtalningin - Eitthvað nýtt og miklu stærra
    Það eru tíu dagar núna í það að Besta deildin fari af stað! Í dag tökum við fyrir Vestra í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net.
    Fréttamaðurinn Aron Guðmundsson og Sigurgeir Sveinn Gíslason, goðsögn hjá félaginu, mættu til að fara yfir málin.
    Þá er Benedikt Warén á línunni í seinni hlutanum en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Vestra fyrir síðasta tímabil og hjálpaði liðinu að komast upp.
    53 min
  • Aldrei heim - Horfum ekki á E-riðilinn á EM
    Lokaþáttur Aldrei heim, markmiðið að komast á EM náðist því miður ekki. Daginn eftir tapið gegn Úkraínu fara Elvar Geir og Sæbjörn Steinke yfir leikinn og niðurstöðuna.
    Farið er yfir einkunnir íslenskra leikmanna, helstu umræðupunkta og framhaldið hjá liðinu.
    Við þökkum fyrir hlustunina á hlaðvarpsþætti okkar frá Ungverjalandi og Póllandi. Áfram Ísland!
    35 min
  • Niðurtalningin - Hverfisstrákarnir úr Árbænum
    Það eru ellefu dagar í það að Besta deildin fari af stað en í dag tökum við Fylki fyrir í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net.
    Kristján Gylfi Guðmundsson og Þorsteinn Lár Ragnarsson, stuðningsmenn Fylkis, mættu í dag í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru um víðan völl.
    Þá er Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, á línunni í seinni hluta þáttarins.
    53 min
  • Aldrei heim - Kjartan Henry fékk góða gjöf frá Úkraínumanni
    Það er úrslitastund, leikdagur. Úkraína og Ísland mætast í Wroclaw í kvöld og stemningin í borginni eykst.
    Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða við góða menn á leikdegi. Stefán Árni Pálsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport og Kjartan Henry Finnbogason sérfræðingur kíktu á hótelbarinn.
    Rætt er um stemninguna og spennuna í aðraganda leiksins, líklegt byrjunarlið, kynni Kjartans af landsliðsþjálfara Úkraínu og geðþekkan og gjafmildan Úkraínumann.
    24 min
  • Aldrei heim - Formaðurinn í takkaskónum
    Þeir Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke ræddu um atburði dagsins í hlaðvarpsþættinum Aldrei heim.
    Á morgun fer fram úrslitaleikur milli Íslands og Úkraínu um sæti á EM. Í dag voru fréttamannafundir liðanna og lokaæfingarnar fyrir leikinn.
    Farið er yfir líklegt byrjunarlið Íslands og það helsta sem kom fram á fréttamannafundunum,
    Í þættinum er rætt við Þorvald Örlygsson formann KSÍ um landsliðið og fyrstu vikurnar í starfi formanns.
    28 min
  • Niðurtalningin - Sama uppskrift og í fyrra
    Það er heldur betur farið að styttast í Bestu deildina en í dag eru aðeins tólf dagar í fyrstu leiki mótsins.
    Við á Fótbolta.net byrjuðum með spá okkar fyrir mótið í dag en þar er HK á botninum. Meðfram spánni munum við birta hlaðvörp þar sem rætt er við stuðningsmenn liða og leikmann úr hverju liði.
    Fyrir hönd HK mættu fjölmiðlamennirnir Ingvi Þór Sæmundsson og Andri Már Eggertsson.
    Svo var hringt í Leif Andra Leifsson, fyrirliða HK, og staðan tekin fyrir tímabilið sem framundan er.
    46 min
  • Aldrei heim - Landsliðið komið til Póllands
    Íslenska landsliðið flaug í dag yfir til Wroclaw í Póllandi en þar verður leikurinn gegn Úkraínu á þriðjudag, úrslitaleikurinn um sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi.
    Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru einnig komnir yfir til Póllands og ræddu helstu umræðumálin í aðdraganda leiksins.
    Ferðalagið til Póllands, íslensku stuðningsmennirnir, styrkleikar úkraínska liðsins, tvífari Trossard, spurningamerki á miðsvæði Íslands, mögulegt byrjunarlið og fleira.
    37 min
  • Útvarpsþátturinn - Jói Kalli, Bjarki Már og Elvar Geir um landsliðið
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 er á hlaðvarpsformi þessa vikuna og var tekinn upp í dag, föstudaginn 22. mars.
    Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp sigur Íslands á Ísrael í gær. Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarþjálfari Íslands er á línunni og fer yfir leikinn með þeim.
    Þá er hringt í Bjarka Má Elísson landsliðsmann Íslands í handbolta sem var á leiknum í gær ásamt heimsþekktum handboltastjörnum.
    Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net var á leiknum og hann var einnig á línunni í símatímanum og fór yfir sína upplifun í Búdapest.
    1 hr 14 min
  • Beint frá Búdapest - Hetjan sem mátti ekki tala
    Aldrei heim! Ísland gerði sér lítið fyrir og vann 4-1 sigur gegn Ísrael í Búdapest. Eftir ótrúlegan rússíbanaleik er ljóst að það bíður úrslitaleikur gegn Úkraínu sem fram fer í Póllandi á þriðjudaginn. Úrslitaleikur um sæti á EM í Þýskalandi.
    Eftir langan vinnudag ræddu Elvar Geir og Sæbjörn Steinke við Helga Sigurðsson fréttamann 433.is um þetta skemmtilega kvöld þar sem Albert Guðmundsson stal fyrirsögnunum en mætti ekki í viðtöl.
    50 min
  • Beint frá Búdapest - Áfall að morgni leikdags
    Það er leikdagur í Búdapest. Ísland og Ísrael mætast í kvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM.
    Elvar Geir og Sæbjörn Steinke spjalla um komandi leik við Stefán Árna Pálsson íþróttafréttamann á Stöð 2 Sport og Vísi.
    22 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners