Gestir Felix Bergssonar í Fram og til baka eru þau Gerður Kristný rithöfundur, sem kemur í fimmu og Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri.
Gerður Kristný talar um fimm vörður á lífsleiðinni sem hafa mótað hana og haft á hana áhrif. Þetta er allt frá uppgötvun hennar á barnsaldri um bækur og lestur yfir í ferðalög og skemmtilegt fólk á bókakynningum erlendis.
Magnús Geir talar um leikstjóra og leikhússtjóraferilinn allt frá Gamanleikhúsinu yfir í Þjóðleikhús. Þar kennir sannarlega margra grasa og margar sýningar koma við sögu í skemmtilegu spjalli.