Gestur Felix Bergssonar í Fram og til baka var Örvar Þóreyjarson Smárason, tónlistarmaður og rithöfundur en hann hefur nýlega sent frá sér smásagnasafn. Fimman var einmitt í þeim anda en Örvar sagði af fimm smásögum sem höfðu haft áhrif á líf hans. Sögurnar eru:
Chekov - Konan með hundinn
Shirley Jackson - The Lottery
George Saunders - Sticks
Miranda July - The swim team
Ragna Sigurðardóttir - Ég skal bjarga þér
Felix hringdi svo í Guðrúnu Árnýju Karlsdóttur sem var að senda frá sér lagið Desember og fjallaði svo stuttlega um 40 ára gamla plötu, Þeir sletta skyrinu með hljómsveitinni Sonus Futurae