Bjarni Snæbjörnsson hefur vakið mikla athygli fyrir leikverk sitt Góðan daginn faggi sem hann hefur leikið yfir 100 sinnum á síðustu tveimur árum, bæði í Þjóðleikhúsinu og út um allt land. Bjarni kom í fimmuna og sagði okkur af fimm bókum sem hafa haft djúp áhrif á líf hans og hjálpuðu til dæmis við skrifin á leikverkinu. Bækurnar eru:
The Velvet Rage - Alan Downs
Daring Greatly - Brene Brown
Untamed - Glenon Boyle
Big Magic - Elisabeth Gilbert
Human Kind - Rutger Brekman
Og við héldum áfram að ræða bækur því framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík, Stella Soffía Jóhannesdóttir, mætti í spjall og talaði um hápunkta hátíðarinnar sem hefst á síðasta vetrardag. Nánari upplýsingar má finna bokmenntahatid.is