Fram og til baka 05.04.2020
Umsjón Felix Bergsson
Lag dagsins úr söngvakeppninni - Tell Me, Einar Ágúst og Thelma frá 2000
Fimman - Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Fimm vinnustaðir
1. Landakot - vann þar sem nemi og líka eftir útskrift, ætlaði aldrei þaðan...
2.Sjúkrahúsið á Akureyri - fór þangað eftir útskrift og átti geggjaðan tíma þar, elska þau!
3. Borgarspítalinn/Sjúkrahús Reykjavíkur/Landspítali - bráðamóttakan ofl sem hefur mótað mig og var þar meira og minna í 24 ár
4. Seyðisfjörður - fór og leysti þar af í 2-3 skipti og skipar sérstakan sess í mínu hjarta.
5. Utanspítalaþjónustan - starfaði að viðbragsáætlunum og hópslysaæfingum um allt land með almannavörnum og viðbragðsaðilum um land allt og þvílík reynsla og tengslanet!
Hvað er að frétta? Ásmundur Helgason á Spáni
Fréttagetraun - enginn sigurvegari