Fram og til baka
27 október 2019
Umsjón Felix Bergsson
Lag dagsins - ég lifi í draumi eftir Eyjólf Kristjánsson frá 1986
Fimman - Carolina Castillo deildi með okkur sögu sinni en hún hverfist um fimm staði sem hafa haft svo mikil áhrif á líf hennar.
Valencia í Venesúela en þar ólst Carolina upp
Smábær í Venesúela en þar kynntist hún aðstæðum þeirra sem börðust við fátækt á hverjum degi.
Ísland en hingað kom Carolina 17 ára gömul sem skiptinemi og gekk í MH.
Spánn er fimmti staðurinn en Carolina fluttist þangað með íslenskum kærasta sínum og fyrsta barnið þeirra fæddist þar.
Bandaríkin eru fimmti staðurinn en þar hittist fjölskylda Carolinu því svo margir hafa flust burt frá Venesúela vegna hins erfiða ástands sem er í landinu.
Ricky Martin - Livin? la vida loca
Umfjöllun / Viðtal - Guðjón Ragnar Jónasson, Kindasögur
Íslenska sauðkindin er harðger, úrræðagóð og ævintýragjörn, það vita allir sem hana þekkja. Í þessari bók eru rifjaðar upp sögur af íslenskum kindum að fornu og nýju, afrekum þeirra, uppátækjum og viðureignum við óblíða náttúru og kappsfulla smala.
Við kynnumst meðal annars Herdísarvíkur-Surtlu, Eyvindarmúla-Flekku, villifé í Tálkna, hrútnum Hösmaga í Drangey og forystusauðnum Eitli. Kindasögur eru sérstök grein íslenskrar sagnaskemmtunar sem á sér langa sögu en lifir enn góðu lífi - rétt eins og sauðkindin sjálf. Höfundar bókarinnar eru áhugamenn um sögur og sauðfé.
Fréttagetraun - enginn sigurvegari