20190811 Fram og til baka
Umsjón Felix Bergsson
Lag dagsins - Strákarnir á Borginni Bubbi Morthens frá 1984
Fimman - Haukur Bragason, Suðurlandsgoði
Haukur sagði okkur af fimm dellum sem hafa haft mikil áhrif á líf hans. Dellurnar eru:
Golf sem Haukur stundaði af krafti á unglingsárum á golfvellinum á Akranesi
Þungarokk en Haukur fékk delluna og elti hljómsveitir og keypti ógrynni af plötum
Náttúrudella sem heltók Hauk þegar hann varð landvörður í þrjú sumur og leiddi hann á braut Ásatrúarmanna
Borðspil er stór della í lífi Hauks en hann innréttaði sérstakt herbergi í íbúð fjölskyldunnar fyrir borðspilin
Frisbígolf er nýjasta dellan en Haukur telur að hún muni fjara út þegar hann verður orðinn góður í sportinu
Umfjöllun, Plágan - mynd Hrafnhildar Gunnarsdóttur um alnæmi á Íslandi.
Fréttagetraun - sigurvegari Jón Nóason