Fram og til baka 23.12.2018
Þorláksmessa
Umsjón Felix Bergsson
Lag dagsins - Þorláksmessukvöld, Ragga Gísla
Fimman - Björgvin Franz Gíslason leikari
Fimm búningar eða gervi sem breyttu lífi hans
Björgvin Franz Gíslason hefur verið að fara í búninga og gervi frá unga aldri. Hann rifjaði upp fimm eftirminnileg gervi sem hafa fylgt honum og hafa haft áhrif á hann.
1. Tannlæknahárkollan úr Litlu hryllingsbúðinni sem var sérsmíðuðu jólagjöfin hans Björgvins frá foreldrum hans þegar hann var kornungur. Hann segir þetta bestu jólagjöf sem hann hafi fengið.
2. Elsa Lund. Björgvin mætti á grímudansleik í Austurbæjarskóla sem Elsa Lund og vann fyrstu verðlaun! Hann elskaði Elsu Lund
3. Frank N Furter, aðalhetjan úr Rocky Horror. Björgvin Franz varð heltekinn af þessari týpu og sérstaklega Tim Curry sem lék hann í myndinni. Það gekk á ýmsu fyrir 12 ára barnið sem vildi ganga um í korseletti en það gekk ótrúlega vel
4. Þetta gervi tengist enn þráhyggju Björgvins gagnvart gervum og grínsketsum. Þetta tengist skaupinu sem pabbi Björgvins Gísli Rúnar gerði árið 1981. Þar lék Edda móðir Björgvins þulu sem hnerraði og missti af sér kolluna og var þá með skalla. Leikskóladrengurinn Björgvin varð heltekinn af þessari senu og lék hana stöðugt. Að lokum var hann sendur til sálfræðings sem greindi hann með svakalega mikinn áhuga á leiklist.
5. Jim Morrisson söngvari The Doors en Björgvin er mikill aðdáandi og kom saman hljómsveit þar sem Björgvin söng lögin þeirra
umfjöllun/viðtal - Þorláksmessa í Jólaþorpinu í Hafnarfirði - Andri Ómarsson
Friðarganga á Þorláksmessu símtal Stefán Pálsson
Fréttagetraun
Sigurvegari Guðlaug Árnmarsdóttir