Fram og til baka 14.apríl 2019
Umsjón - Felix Bergsson
Lag dagsins - Amor úr Söngvakeppninni 2014. Flytjandi Ásdís María Viðarsdóttir. Þetta er árið sem Pollapönk vann.
Fimman - Elva Ósk Ólafsdóttir
Elva talaði um fimm eyjar sem hún hefur heimsótt og sagði sögur!
1 Færeyjar þegar Elva Ósk var 12 ára
2 Grænland í leikferð með Þjóðleikhúsinu
3 Belle Ile eyjan undan strönd Brittany. Hugmyndin kom í Kolaportinu
4 Kúba en Elva heimsótti eyjuna þegar hún fór ein í ferðalag til karabíska hafsins
5 Gustavia eða Saint Barts. Ein af karabísku eyjunum. Þar fann Elva Ósk skeljaströnd og naut hennar alein
Viðtal - Andri Ólafsson bassaleikari og söngvari sagði frá tónleikum sem Uppáhellingarnir og Sigga Thorlacius halda í kvöld.
Tríóið Uppáhellingarnir hverfist öðru fremur um þéttradda samsöng (close-harmony) af gamla skólanum, en leikur auk þess undir hjá sjálfu sér: Steingrímur Karl Teague á píanó, Rögnvaldur Borgþórsson á gítar og Andri Ólafsson á kontrabassa. Nefna mætti sönghópa á borð við Mills bræður, The Pied Pipers og The Four Freshmen sem fyrirmyndir.
Til að kóróna söng þeirra á Múlanum bætir hin eina sanna Sigríður Thorlacius sinni - og þar með hinni fjórðu - rödd við, en auk samsöngsnúmera býður hópurinn upp á vel valin einsöngslög. Matthías M.D. Hemstock heldur svo utan um allt saman með þýðum, þéttum trommuleik.
Á efnisskránni verða útsetningar Andra af söngdönsum þeirra Jóns Múla og Jónasar Árnasona auk tveggja frumsaminna númera, en annars þekkilegar N-Amerískar tónsmíðar frá öndverðri 20. öld.
Fréttagetraun - sigurvegari Friðrik Guðmundsson Reykjavík