Fram og til baka 07.10.2018
Lag dagsins - Ef tími vinnst til, Guðrún Gunnarsdóttir
Höfundur lags: Haraldur Sveinbjörnsson
Höfundur texta: Bragi Valdimar SKúlason
Af nýrri plötu sem heitir Eilífa Tungl og það eru útgáfutónleikar 24.okt. í Salnum.
Fimman. Gestur Felix var Guðrún Hafsteinsdóttir markaðsstjóri Kjöríss og formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins.
Guðrún er einstakur hrakfallabálkur og sagði hlustendum af fimm óhöppum sem hafa haft mikil áhrif á líf hennar. Þar var af mörgu að taka.
1 og 2 voru óhöppin sem Guðrún lenti í sumarið sem hún var 18 ára en það sumar var hún hrufluð í andlitinu allt sumarið. Fyrra óhappið tengdist hlaupatúr og sætum ítölskum ferðamönnum sem horfðu á hana hrynja á hausinn. Það síðara kom til vegna þess að Guðrún svaf yfir sig þegar hún var á mikilvægri morgunvakt hjá Kjörís.
Þriðja óhappið varð í Hamborg þegar Guðrún bjó þar með fyrrverandi eiginmanni og börnum þeirra. Vikuna sem hún ætlaði að flytja reyndi hún að grípa dóttur sína en datt þá niður tröppur og sleit liðbönd
Fjórða óhappið varð svo á aðfangadag þegar Guðrún ákvað að taka til í stofunni og fara út með jólapappírinn í ruslið
Og það fimmt varð þegar hún var að keyra út jólakortin og hafði hlegið mikið að móður sinni sem datt. Í kjölfarið datt Guðrún sjálf og rann undir bílinn sinn!
Við fengum svo auka óhapp þegar Guðrún lýsti því þegar hún fór á gönguskíði í fyrsta sinn og datt meira en hún gekk..
Umfjöllun - Sólveig Ólafsdóttir segir frá Iceland Food Centre 1965
Fréttagetraun sigurvegari Kristján Ingimarsson
Búland 4
765 Djúpivogur