Fram og til baka 16.09.2018
Umsjón - Felix Bergsson
Þema dagsins - Dagur íslenskrar náttúru
Fátt hefur mótað íslenska þjóð eins og náttúran. Íslendingar hafa aðlagað líf sitt samspili elds og ísa, dyntóttum veðurguðum og kröftugum sjávarföllum. Um leið hafa þeir notið alltumlykjandi náttúrufegurðar og haft lífsviðurværi sitt af ríkulegum gjöfum náttúrunnar.
Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðilegur 16. september ár hvert og eru einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök hvött til að hafa daginn í huga í starfsemi sinni. Dagurinn var fyrst haldin hátíðlegur árið 2010 en þetta er afmælisdagur Ómars Ragnarssonar
Lag dagsins - Múgsefjun, Sendlingar og sandlóa
Fimman - Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands
Fimman hans snýst um atburði sem hafa breytt lífi hans
1 Þegar Páll heillaði Auði konu sína og hljóp niður Illakamb með 30 kg nestisbox á herðunum
2 Þegar pabbi Páls fékk heilablóðfall og fjölskyldan þurfti að koma saman og vinna í því stóra verkefni
3 Páll í Preston - þegar Páll tók ákvörðun um að fara ekki í Preston til að spila fótbolta en fór til Grikklands og gerði þar samning við mafíósa nr 1.
4 Fyrirburafæðing frumburðarins Þórbergs í Strassborg
5 Páll fór í Ironman fimmtugur og sannaði fyrir sjálfum sér að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi
Símtal - Guðmundur Fannar Markússon eða Mummi í Mörtungu
Guðmundur Markússon og Rannveig Ólafsdóttir eru ung hjón á Mörtungu á Síðu. Þau reka fjárbú en eru einnig með hjólaferðir út í íslenska náttúru. Náttúruhjólreiðar eru vaxandi þáttur í íslenskri ferðamennsku og útivist.
Frettagetraun - sigurvegari Jakob Guðmundsson í Kópavogi