Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - Lhooq, Losing Hand (Jóhann Jóhannsson féll frá á föstudaginn)
Fimman - Hilmar Oddsson kvikmyndagerðarmaður og tónlistarmaður. Lögin sem hann vildi óska sér að hann hefði samið
Here, there and everywhere - The Beatles (verður að vera upprunaleg útgáfa af plötunni Revolver),
Walk on the Wild Side - Lou Reed (Transformer)
Sad eyed Lady of the Lowlands - Bob Dylan (bara hluti , lagið er mjög langt)
A Wolf at the door - Radiohead (Hail to the Thief)
Where are we now? - David Bowie (The Next Day)
Söngvakeppnin í gærkvöldi - símtal í Reyni Þór Eggertsson í Helsinki. Við ræddum lögin sem fóru áfram og möguleika þeirra
Fréttagetraun - sigurvegari Þorlákur Sigurbjörnsson Langhúsum Skagafirði
Tímaflakkið 1969, 79, 89, 99
Vikan 11 - 18 febrúar var merkileg og skemmtileg árin 1969, 79, 89 og 99. Það var sjómannaverkfall, búnaðarþing, Akureyringar eignuðust Íslandsmeistara í diskódansi, Dizzy Gillespie sótti okkur heim og það var mikið rifist um bjórinn. Hlustið og þér munið muna!