Umsjón Felix Bergsson
Lag dagsins - Lummurnar Kenndu mér að kyssa rétt
Fimman - Katrín Halldóra Sigurðardóttir leikkona
Söng og leikkonan ástsæla Katrín Halldóra Sigurðardóttir kom í morgunkaffi til Felix og sagði honum af fimm stöðum sem hafa haft afgerandi áhrif á líf hennar. Staðirnir hennar Kötu eru:
Mosfellsbær en þar ólst hún upp til níu ára aldurs
Lindargatan en amma Kötu og nafna bjó þar og einnig var móðir hennar að vinna í miðasölu Þjóðleikhússins
Neskaupsstaður en þangað flutti fjölskyldan þegar faðir Kötu gerðist prestur og dönskukennari á staðnum
Kaupmannahöfn þar sem Kata lærði Complete Vocal Technique og naut þess að hjóla og búa í stórborginni
New York sem Kata hefur tekið ástfóstri við eftir að hún fór þangað í fyrsta sinn með Improv Ísland árið 2015
Að auki fóru þau Felix um víðan völl í viðtalinu og ræddu meðal annars um Ellý og sýningarálagið, Bubba og leitina að rétta laginu og hvernig leikkona nálgast texta í sönglögum. Já og miklu miklu fleira
Viðtal vegna tónleika í Lindakirkju 6. september. Guðrún Óla Jónsdóttir, Gógó, og Óskar Einarsson
Fréttagetraun - enn náði enginn að klára þrjár spurningar réttar