Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo g... more
FAQs about Fram og til baka:How many episodes does Fram og til baka have?The podcast currently has 426 episodes available.
February 07, 2026Nanna Hlíf Ingvadóttir stjórnar LjótakórGestur dagsins í FIMMUNNI var Nanna Hlíf Ingvadóttir tónlistarkennari og kórstjóri. Nanna talaði um fimm tónlistarkennara sem hafa haft áhrif á líf hennar og mótað. Það hófst með Jóni söngkennara í Æfingadeildinni og endaði á Kristínu Valsdóttur. Á milli heyrðum við sögur af ævintýralegri ævi. Í síðari hluta þáttarins skoðaði umsjónarmaður atburði dagsins og spilaði tengda tónlist...more1h 57minPlay
January 31, 2026Birta Sólveig kríukroppurPabbi hennar Birtu Sólveigar Söring Þórisdóttur var sá eini sem kallaði hana "kríukropp" og það varð nafnið á verkinu sem hún samdi til minningar um hann, þá í listaháskólanum. Birta hefur síðan slegið í gegn sem leikkona og fer nú á kostum sem Lína langsokkur í Þjóðleikhúsinu, auk þess að taka þátt í Ormstungu. Birta Sólveig kom í skemmtilega fimmuÍ síðari hlutanum skoðuðum við hvað gerðist á deginum...more1h 57minPlay
January 24, 2026Kanema Erna Mashinkila leikstjóri í fimmugestur dagsins var Kanema Erna Mashinkila sviðslistakona sem leikstýrir sýningunni Þegar ég sé þig sé ég mig í Borgarleikhúsinu. Kanema hafði skemmtilega fimmu í farteskinu en hún talaði um fimm tómstundir sem hafa haft djúp áhrif á líf hennar og þar kenndi margra listrænna grasaÍ síðari hlutanum kom Karl Ágúst Ipsen í heimsókn en hann er Dolly Parton sérfræðingur þáttarins. Dolly varð áttræð á dögunum og hefur ekki setið auðum höndum frekar en fyrri daginn og það þrátt fyrir veikindi....more1h 57minPlay
January 17, 2026Fimmur sem taka á flugÍ þessum þætti lítur Felix til baka og skoðar skemmtilegar fimmur frá 2025. Þar má heyra raddir eins og Elizu Reid sem talar um lærdóminn í forsetatíð Guðna, Guðmund Pétursson tónlistarmann sem segir sögur sem tengjast athyglisverðum matarboðum á tónleikaferðum og Ólöfu Skaftadóttur sem fjallar um fimm atriði sem að hennar mati hafa alls ekki fengið nægilega andstöðu í íslensku samfélagi. En þetta eru bara þrjú dæmi af sjö. Aðrir viðmælendur eru Guðrún Kaldal, Fida Abu Libdeh, Sigsteinn Sigurbergsson og Guðmundur Þórarinsson....more1h 57minPlay
January 10, 2026Bjarni Arason ólst upp á ÍsafirðiBjarni Arason hefur verið einn vinsælasti söngvari þjóðarinnar allt frá því hann sló í gegn sem látúnsbarkinn árið 1987. Í dag starfar Bjarni sem hótelstjóri auk þess að syngja í veislum og jarðarförum. Hann treður svo upp með stórsveit Reykjavíkur í Hörpu um helgina. Bjarni kom í skemmtilega fimmu og spjall.Að vanda voru fimmur síðasta árs rifjaðar upp og að þessu sinni heyrum við brot frá Steini Jóhannssyni, Margréti Rós Harðardóttur og Dagrúnu Ósk Jónsdóttur...more1h 57minPlay
January 03, 2026Askur Hrafn er aðgerðarsinniFyrsti gestur á nýju ári var fulltrúi ungu kynslóðarinnar. Askur Hrafn Hannesson er kornungur aðgerðarsinni og jafngamall Gretu Thunberg. Hann hefur verið formaður ungliðahreyfingar Amnesty og unnið með No Borders og UN Women og stundar nú nám í guðfræði. Askur kom í skemmtilega fimmu og sagði af fimm manneskjum sem hafa haft áhrif á líf hans. Gleðilegt nýtt ár elsku hlustendur!...more1h 57minPlay
December 27, 2025Áramótaheitin fara Fram og til bakaJólaþáttur Fram og til baka var tileinkaður áramótaheitum og því sem gerðist á deginum. Viðmælendur í þættinum voru Evert Víglundsson líkamsræktarþjálfari og Stefán Smári Ásmundarson leiðsögumaður og formaður Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu...more1h 50minPlay
December 20, 2025Gísli Matthías Auðunsson matreiðslumeistariÞað má segja að Gísli Matthías Auðunsson sé súperstjarna í kokkabransanum á Íslandi og hann var tilvalinn gestur í síðasta þætti fyrir jól! Gísli Matthías kom með fimmu sem tengdist fimm uppáhalds matarborgunum hans. Spjallið fer víða og berst frá Vestmannaeyjum til Hong Kong. Svo kíktum við á það sem gerðist á deginum og spiluðum jólalög!...more1h 50minPlay
December 13, 2025Ilmur Kristjáns og KonukotGestur í Fimmunni var Ilmur Kristjánsdóttir sem leyfði okkur að heyra fimm jólalög sem hafa fylgt henni í gegnum tíðina. Fyrsta lagið var með Dananum John Mogensen sem söng På loften sidder nissen. Tilefnið var að Ilmur bjó með fjölskyldunni í Danmörku þegar hún var sjö ára og á hlýjar minningar þaðan. Ilmur stendur fyrir átaki um hver jól þar sem kertastjakinn Glóð er seldur til styrktar Rótinni og Konukoti, en Ilmur er einn af stofnendum Rótarinnar. Kertastjakinn er hönnun og smíði Erlings Jóhannessonar gullsmiðs....more1h 50minPlay
December 06, 2025Bríet Ísis Elfar og tónlist sem hafði áhrifsumir kalla hana poppstjörnu Íslands en Bríet er með báða fætur á jörðinni og mætti til Felix í skemmtilega fimmu. Hún talaði um fimm lög sem hafa haft áhrif á líf hennar og tengdi þau við fólkið sitt, tilfinningaríka ömmu, hæfileikaríkan pabba og góðan vin í poppinu. Spjallið fór um víðan völl enda Bríet skemmtileg sögukona og sagði af uppruna sínum frá Egyptalandi og úr Sinfoníuhljómsveit Íslands....more1h 52minPlay
FAQs about Fram og til baka:How many episodes does Fram og til baka have?The podcast currently has 426 episodes available.