Af hverju fórstu ekki?
Í þessum fyrsta þætti er rýnt í afleiðingar heimilisofbeldis. Við heyrum sögu Hugrúnar Jónsdóttur sem var í ofbeldissambandi í sjö ár og segist vera heppin að hafa komist lifandi úr sambandinu.
Viðmælendur: Hugrún Jónsdóttir, Drífa Jónasdóttir
Heimilisofbeldi er kannað, eðli þess, áhrif og afleiðingar. Rýnt verður í málaflokkinn með gerendum, þolendum, aðstandendum og fagfólki.
Umsjónarmenn eru Viktoría Hermannsdóttir og Þórhildur Ólafsdóttir.