
Sign up to save your podcasts
Or


Hann þótti uppátækjasamur sem barn og var kallaður Suðurnesjaskelfirinn. Áhugi hans liggur víða og því hefur hann prófað margt og má þar nefna störf við fjölmiðla, uppistand og nám í lýðheilsufræðum en hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri Keilis. Hann hefur einlægan áhuga á fólki og því lá beinast við að fara í pólitík, en þar vakti hann m.a. Athygli fyrir vöfflubakstur.
Við settumst niður með Jóhanni Friðriki og ræddum við hann um lífið og tilveruna, covid og eldgos - og að sjálfsögðu um pólitík.
Erla Sóley Reynisdóttir er ekki há í loftinu en það háði henni aldrei á körfuboltavellinum enda keppnisskapið mikið hjá þessum "stáldverg" eins og sumir kölluðu hana þegar þeir áttuðu sig á því að undir björtu fasinu bjó einbeittur sigurvilji. Erla var um árabil ein af sterkustu körfuboltakonum ársins og við ræddum við hana um körfuboltann en líka óvænt barnalánið þegar það eina sem hélt þeim hjónum gangandi var vonin.
Þegar flest okkar eru að vakna þá er Eðvarð Þór að klára útihlaup, nýbúinn með sundæfingu eða jafnvel að klára 18. holu í Leirunni. Slíkur er metnaðurinn og drifkrafturinn. Hann hækkaði ránna í sundíþróttinni á Íslandi við aðstæður sem ekki teldust sæmandi í dag. Átta ára byrjar hann að svamla í 12 metra sundlaug í Njarðvík en áratug síðar var hann meðal bestu sundmanna heims og á leið á Ólympíuleika. Hann hætti svo að synda 22 ára og þyngdist um 30 kíló á nokkrum mánuðum. Auk þess komst hann að því að hann var lélegur sundþjálfari. Það átti hins vegar allt eftir að breytast.
Einlæg frásögn frá þjálfaranum, íþróttamanni ársins 1986 og kennaranum Eðvarði Þór Eðvarðssyni.
Hann stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki aðeins 20 ára gamall og það er enn sprelllifandi - og það á sömu kennitölu. Það má segja að Víkurfréttir séu sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Flestir þekkja fjölmiðlamanninn en færri þekkja heimilisfaðirinn, golfarann, frumkvöðulinn og skyrtusölumanninn smekkvísa. Páll segir okkur frá þróun fjölmiðla á 40 ára starfsferli og einstöku sjónarhorni sem hann hefur haft á samfélagið suður með sjó, við heyrum hans sögu.
Hún hefur komið víða við enda óhrædd við áskoranir hvort það er í námi eða starfi og hún var einu sinni pönkari.
Lífið hefur verið allskonar, sorgin knúði dyra þegar eiginmaður hennar lést eftir stutta baráttu við krabbamein og henni var aðeins gefið eitt barn en hún á einstakt samband við dóttur sína sem nú er sjálf orðin mamma.
Helga Sigrún Harðardóttir segir okkur frá því hvernig var að verða móðir 16 ára gömul, ævintýrinu í Fjörheimum, útvarpi Bros, einstaklega áhugasömum handavinnukenna og þingstörfum í miðri búsáhaldabyltingu.
Hún fór í tónleikaferðalag um heimsálfur með tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur sem var ævintýri fyrir 19 ára básúnuleikara. Harpa segir okkur frá tónlistinni, hjónabandinu og hvernig það er að uppgötva að barnið þitt er ekki eins og önnur börn.
Þráinn Kolbeinsson er lærður sálfræðingur en ákvað að venda sínu kvæði í kross og eltast við drauminn - að gerast ljósmyndari. Hann fluttist til Grindavíkur og kynntist þar fegurð Reykjanesskagans sem er einstakur á heimsvísu. Hann segir okkur frá glímunni í Mjölni, jarðhræringum á Reykjanesi, föðurhlutverkinu og fegurðinni á Reykjanesi.
Hún er Gervahönnuður sem safnar Edduverðlaunum. Hún var uppreisnargjarn unglingur sem var send í sveitaskóla vestur á Reykjanes. Þar kynntist hún öllum villingunum úr Reykjavík og gerðist pönkari á Hlemmi. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og lætur allt flakka. Hún segir frá því hvernig sundlaugin í Garðinum bjargaði lífi hennar. Hvernig hún kvaddi flíspeysuna og fann köllun sína í förðun þar sem hún skapar ótrúlegar persónur í mörgum af áhrifamestu kvikmyndum Íslandssögunnar. Kvíði og kulnun, sköpun og gleði og allt þar á milli.
Þrátt fyrir að vera rétt skriðinn yfir fertugt þá hefur Friðrik Árnason verið starfandi í ferðaþjónustu í 30 ár. Um fermingu fór hann hjólandi upp í Leifsstöð þar sem hann fiskaði ferðalanga í svefnpokagistingu í Njarðvíkurskóla. Hann var orðinn umboðsmaður bílaleigunnar Geysis og rekstraraðili að tjaldsvæði áður en hann fékk bílpróf. Tvítugur eyddi hann sumarfríinu einn á bílaleigubíl þar sem hann heimsótti ferðaskrifstofur í Evrópu og landaði samningum. Njarðvíkingurinn sem nú rekur hótel austur á Breiðdalsvík elska að skapa enda er hann uppfullur af frumlegum hugmyndum og hugsjónamaður fram í fingurgóma. Áhugavert spjall við frumkvöðul í ferðaþjónustu á Suðurnesjum.
Guðbjörg Glóð Logadóttir á stóran þátt í að breyta viðhorfi okkar Íslendinga gagnvart fiski. Á hennar æskuheimili komst lítið annað að þar sem sem frumkvöðullinn faðir hennar seldi fisk til Ameríku við matarborðið. Hún gekk með hugmyndina um Fylgifiska í maganum í áratug áður en hún lét til skarar skríða. Þessi andlegi, gallharði fisksali segir hér frá æskunni í Keflavík og viðskiptunum auk þess sem hún deilir sögu föður síns sem fékk heilavírus tæplega fimmtugur og varð aldrei samur eftir það.
From the publisher's feed