
Sign up to save your podcasts
Or


Grindvíkingurinn Helgi Jónas var hálfgert undrabarn í körfubolta. Hann þótti á tímabili einn efnilegasti unglingur Evrópu og gerðar voru til hans miklar væntingar. Um tvítugt var hann kominn í atvinnumennsku þar sem hann sem hann bjóst við að upplifa drauma sína. Hið þveröfuga gerðist og andlegt fall blasti við Helga. Hann burðaðist með kvíða og depurð án þess að ræða það um árabil á meðan hann vann titla og hlaut verðlaun í íþrótt sinni með heimaliðinu Grindavík. Síðan hefur hann talað opinskátt um sína erfiðleika sem ættu að reynast ungu fólki mikil lexía. Helgi ræðir hér opinskátt um ástar- og stundum haturs samband sitt við körfuboltann. Hvernig hann hóf sína andlegu vegferð, hvernig hann sneri sér að líkamsrækt og stofnaði Metabolic sem nú á hug hans allan.
Hún hafði allt. Átti góða fjölskyldu, gekk vel í skóla og var afrekskona í íþróttum. Síðan gerðist eitthvað og áður en hún vissi af var hún komin inn á barna- og unglingageðdeild og langaði ekki að lifa lengur. Skömmin var mikil, sérstaklega þar sem henni fannst hún ekki hafa ástæðu til þess að vera þunglynd, en það þarf víst ekki ástæðu. Í dag líður henni betur og hún hefur opnað umræðuna um þennan sjúkdóm, sem einmitt fer ekki í manngreiningarálit.
Góðar sögur er stutt af Sóknaráætlun Suðurnesja í umsjón Dagnýjar Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar í samstarfi Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness.
From the publisher's feed