
Sign up to save your podcasts
Or


Sjómennska og veiði er Gunnari Örlygssyni í blóð borin. Hann fór um fermingu á sjóinn en í dag flytur hann út ferskan fisk víða um veröld og veltir milljörðum.
Njarðvíkingurinn stoppaði stutt við á Alþingi en þar hóf hann störf með dóm á bakinu og skipti svo um flokk. Gunnar gerir upp þann tíma auk þess að segja frá uppeldinu á frægasta körfuboltaheimili landsins, fiskikaupmennsku, laxveiði og rimmunum við Kára Stefánsson.
Hægláta tónskáldið sem haldið hefur sig í Hollywood í næstum tvo áratugi. Hann hefur samið tónlist fyrir stiklur mynda eins og Lord of the rings, Joker og Batman begins. Keflvíkingurinn Veigar Margeirsson er einlægur og hógvær þrátt fyrir magnaðan árangur í sínu fagi. Hér segir hann frá einstökum ferli og áföllum sem mótað hafa hans sýn á lífið.
Bergur Ingólfsson er hinn grindvíski Billy Elliott. Fyrsti atvinnuleikarinn úr bæjarfélaginu og hefur átt farsælan feril sem leikari og leikstjóri í yfir aldarfjórðung. Bergur ásamt fjölskyldu sinni átti stóran þátt í að fella ríkisstjórn og hrinda af stað byltingu undir formerkjum höfum hátt. Bergur er skapandi og skemmtilegur og án efa einn merkasti listamaður Suðurnesja.
Líf Margrétar Sturlaugsdóttur hefur meira og minna snúist um körfubolta. Þar var hún afar sigursæl sem hluti af fyrstu gullkynslóð íþróttarinnar í Keflavík og sem farsæll þjálfari á öllum stigum síðar meir. En rétt eins og í körfunni þá er leikurinn oft erfiður og hreinlega ósanngjarn. Hér segir hún á einlægan hátt frá baráttu sinni við krabbamein og hvernig það er að vera aðstandandi alkóhólista.
Hann var ofvirkur sem barn, ægilega stríðinn eins og flestir í hans fjölskyldu og einn af okkar bestu körfuboltamönnum, þar fer saman mikill kraftur og leikgleði og það er aldrei langt í húmorinn enda útilokar hann ekki frama á sviði þegar körfuboltanum lýkur. Ólafur Ólafsson, eða Óli Óla eins og flestir kalla hann segir okkur sögur af uppvextinum í Grindavík, körfubolta í þýskalandi, frakklandi og íslandi og stærsta hlutverki sínu til þessa, föðurhlutverkinu.
Góðar sögur er stutt af Sóknaráætlun Suðurnesja og í umsjón Dagný Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar í samstarfi Heklunnar, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness.
Sævar Helgi hefur djúpar tónlistarrætur úr Keflavík en foreldrar hans eru báðir tónlistarmenntaðir, amma hans starfaði sem píanókennari og undirleikari um áratugaskeið, föðurbróðir er tónskáld, föðursystir tónlistarkennari í London og svona mætti áfram telja. Það kom því engum á óvart að hann færi út í tónlist, þótt upphaflega hafi hann alls ekki ætlað að fara í þá átt. Sævar Helgi Jóhannsson vinnur undir listamannsheitinu Shell og er nú þegar farinn að geta sér gott orð í tónlistarheiminum, en þó hógværðin uppmáluð.
Góðar Sögur er stutt af Sóknaráætlun Suðurnesja og í umsjón Dagnýjar Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar í samstarfi Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness.
Sigga Dögg er mörgum kunn fyrir kynfræðslu sína og ritstörf en okkur lék áhugi á því að kynnast betur frekar keflvíkinginum frekar en kynfræðinginum en Sigga Dögg flutti aftur til heimabæjarins fyrir nokkrum árum sem hafði að segja má heilandi áhrif eftir erfið unglinsár þar sem hún sótti sér styrk í síbreytilegt hafið, enda nóg af því á Suðurnesjum. Hún ætlaði að verða sálfræðingur en hætti svo snarlega við það, slysaðist svo í fjármálafræðslu hjá banka áður en hún fann fjölina sína, þar kemur sér vel að hún er hrein og bein eins og þið fáið að heyra.
Góðar sögur er styrkt af Sóknaráætlun Suðurnesja og í umsjón Dagnýjar Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar í samstarfi Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness.
Hann hafði hugsað sér að verða bakari eða flugmaður en varð í staðinn gítarleikari í heimsþekktri hljómsveit. Þú gætir hafa séð hann munda gítarinn í sjónvarpinu, í Saturday Night Live, hjá spjalldrottningunni Ellen, eða bregða fyrir í Game of Thrones.
Brynjar Leifsson er hins vegar bara venjulegur strákur frá Keflavík sem vann upp í flugstöð þegar heimsfrægðin bankaði á dyr. Að ferðast um heiminn er ekki bara gleði og glaumur. Í einlægu viðtali gefur Brynjar gefur okkur innsýn í þann heim og svo blákaldan veruleikan þegar heim er komið.
Kristinn Guðmundsson mun væntanlega seint losna við miðnafnið Soð. Undanfarin ár hefur hann birst á tölvu- og sjónvarpsskjáum landsmanna sem kærulaus áhugakokkur sem heillar áhorfendur með frumlegum uppátækjum og matargleði. Keflvíkingurinn skemmtilegi er þó fyrst og fremst listamaður sem hefur fengist við dans, gjörninga, leikstjórn og ljósmyndun, svo fátt eitt sé nefnt.
Listakonuna Sossu þarf vart að kynna fyrir landsmönnum. Verk hennar má finna á öðru hverju heimili á Suðurnesjum og þótt víðar væri leitað. Hún ræðir hér lífið og listina, segir frá upplifun sinni sem kona í karllægum listaheimi, sambandinu við guð og skattinn og hvernig hún hefur selt fjölskylduna sína oftar en einu sinni. Sossa hefur búið víða og á skemmtilegar sögur frá hverjum stað. Hún segir frá því hvernig hún ræktar líkama og sál en hún stundar m.a. sjósund og hefur sagt skilið við áfengi.
From the publisher's feed