Gullkastið

Gullkastið

Download on the App Store

Gullkastið episodes

  • Gullkastið – Skrautlegur sigur og Arsenal umræða
    Crystal Palace gerði sitt allra besta til að eyðileggja partýið og þyrfti hin heilaga þrenning í framlínu Liverpool að bjarga félögum sínum í vörninni til að landa öllum þremur stigunum. Toppbaráttan er því áfram í algleymingi en baráttan um síðasta Meistaradeildarsætið er ennþá jafnari og vert að skoða betur á þessum tímapunkti. Einar Guðnason stuðningsmaður Arsenal var með okkur að þessu sinni hress eftir góðan sigur í Lundúnaslag helgarinnar. 00:00 – 2013/14 style sigur á Crystal Palace 28:45 – Einar Guðna um Arsenal 01:04:20 – Hvaða lið nær 4.sætinu Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Einar Guðnason stuðningsmaður Arsenal og yfirþjálfari hjá Víkingi (Reykjavík). MP3: Þáttur 224 Meira
    1 hr 21 min
  • Gullkastið – Fyrsti sigur ársins
    Brighton hefur verið það lið í vetur sem hvað erfiðast var að brjóta niður og því gott að taka öll sex stigin úr viðureignum liðanna. Hver/hvor verður stjóri United í ágúst? Roy Hodgson er með 1% betri árgangur hjá Palace en vanalega. Miðamál á Liverpool leikjum. Þetta er það helsta á dagskrá í þætti vikunnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi MP3: Þáttur 223 Meira
    1 hr 10 min
  • Gullkastið – Hvar er Clean Sheet Klavan?
    Það er Kop.is hittingur í kvöld þannig að við settum Magga og Steina í eldhúsið á meðan rest tók upp Gullkast þátt vikunnar. 2019 hefur alls ekki byrjað vel en það stendur til bóta. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Hannes, Ingimar, Daníel, Maggi Beardsley og Eyþór Maggi og SSteinn á kantinum og þeir voru ósammála öllu sem kom fram, en samt sammála um það. Óli Haukur er svo fyrir norðan að fylgjast með leikmannamarkaðnum. Line-up í Gullkasti 222 Kokkarnir á meðan tekið var upp MP3: Þáttur 222 Meira
    1 hr 12 min
  • Gullkastið – Rock & Roll
    Það var boðið upp á rokk og ról gegn Arsenal en það var auðvitað bara upphitun fyrir aðra og stærri tónleika gegn Man City. Biðjumst velvirðingar á slæmu sambandi við Magga, hann var staddur í Stockport og þeir eru bara nýkomnir með internetið. 00:00 – Intro – Maggi í Liverpool og jólagjöf frá Wolves 06:35 – Liverpool vann desember 10:35 – Arsenal 29:45 – Janúarglugginn – Coutinho og Stjáni Pulicic 38:15 – Guardiola og Klopp í bullandi sálfræði 43:10 – Stærsti leikur í sögu Liverpool? 47:30 – Samanburður á liðunum Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn MP3: Þáttur 221   Meira
    1 hr 13 min
  • Gullkastið – Hálfleikur
    Síðasti þáttur ársins og Liverpool í toppmálum nú þegar tímabilið er hálfnað. Desember hefur spilast vel hingað til fyrir Liverpool en næst á dagskrá eru tvö af aðeins þremur liðum sem Liverpool vann ekki í fyrri umferðinni. 00:00 – Ekki […] More
    1 hr 10 min

About Gullkastið

From the publisher's feed

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is um Liverpool og enska boltann. Þátturinn hóf göngu sína í maí árið 2011