
Sign up to save your podcasts
Or


Liverpool liðið er komið aftur til æfinga og næsti leikur á dagskrá er úti gegn Bournemouth í deildinni áður en okkar menn fara aftur í tvo bikarleiki. Skoðum stöðuna í deildinni og möguleika okkar manna í seinni hlutanum. Athugðum hvort það sé einhver merkjanlegur púls á leikmannamarkaðnum o.fl.
Það var svo komið að stjóranum í Ögurverk lið aldarinnar
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done
Frábær sigur á Emirates og Liverpool fer því áfram í bikarnum, næstu leikur í þeirri keppni er í lok mánaðar. Undanúrslit í deildarbikarnum eru næst á dagskrá og svo smá vetrarfrí.
Enn heldur meiðslalistinn áfram að lengjast en vonandi sjáum við aðeins til sólar frá og með næsta mánuði. Fram að því er leikmannaglugginn opinn og a.m.k. hægt að bregðast eitthvað við.
Það var svo auðvitað klárað að fylla upp í Ögurverk lið aldarinnar og bætt við sóknarmanni
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done
Liverpool bauð upp á flugeldasýningu á nýársdag í einhverri mestu einstefnu sem sést hefur skv. útreikningum á marktækifærum (xG) síðan þær mælingar hófust. Fjögur mörk var niðurstaðan og Liverpool hefði vel getað skorað tíu mörk til viðbótar.
Livrpool er fyrir vikið eitt á toppnum þegar tímabilið er rúmlega hálfnað og haldi liðið áfram að spila svona þarf töluvert til að taka það af okkar mönnum og það voru sannarlega nokkur úrslit í öðrum leikjum sem féllu með okkar mönnum.
Janúarglugginn er opinn og framundan eru tveir bikarleikir og svo stutt vetrarfrí.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done
Síðasti þáttur ársins og af því tilefni spáðum við aðeins í leikmannamarkaðinn framundan í janúar. Hlóðum í stutt uppgjör á árinu 2023 þar sem helst stendur uppúr að Liverpool varn Man Utd 7-0 á Anfield. Þrír nokkuð ólíkir leikir í jólatörninni og alvöru slagur framundan strax eftir jól.
Það kom svo vinstri vængframherji/sóknarmaður í Ögurverk lið aldarinnar
Þökkum öllum hlustendum og lesendum fyrir árið, næsta ár verður að sjálfsögðu okkar.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done
Hrikalega svekkjandi markalaust jafntefli á Anfield um helgina og ósannfærandi frammistaða hjá okkar mönnum. Of margir lykilmenn ekki alveg að finna fjölina undanfarnar vikur en þurfa heldur betur að leita betur fyrir stórleikinn um næstu helgi. Toppsætið um jólin í boði í þeim leik.
Það er svo ljóst hvaða lið verða með Liverpool í Evrópudeildinni eftir áramót þó Liverpool verði reyndar ekki með í næstu umferð.
Hörku umferð í enska boltanum, enn tapar Man City niður óvæntum stigum, United liðin skröpuðu botninn í Meistaradeildinni og einn stjóri fékk að fjúka.
Bættum svo hinum miðjumanninum við í Ögurverk Lið aldarinnar, Gerrard var sjálfkjörin í síðustu viku.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done
Tilvitnun Bill Shankly á ansi vel við eftir þessa viku "Ay, here we are with problems at the top of the league" Tveir frekar ósannfærandi útisigrar, sex stig og einhvernvegin er Liverpool komið á toppinn í deildinni. Tökum því heldur betur fagnandi.
Tvær umferðir og mikið leikjaálag hjá toppliðunum á Englandi og áhugaverð úrslit, deildin er töluvert jafnari á þessu tímabili.
Bættum svo miðjumanni við í Ögurverk Lið aldarinnar og drógum út sigurvegara í Facebook leik Kop.is og Jóa Útherja.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done
MP3: Þáttur 451
Liverpool þurfti fjögur mörk á Anfield til að rétt svo merja sigur gegn Fulham sem er alltaf jafn óþægilegur andstæðingur fyrir Liverpool. LASK var ekki eins mikið vandamál í miðri viku og farseðillinn í 16-liða úrslit í Evrópudeildinni þar með staðfestur. City, Villa og Tottenham töpuðu öll stigum í toppbaráttunni og helgin því heilt yfir jákvæð fyrir okkar menn.
Næst á dagskrá eru tveir útileikir í röð, Sheffield United sem mæta með nýjan stjóra og Crystal Palace sem mæta með eldgamlan stjóra.
Næsti maður í Ögurverk Lið aldarinnar í Úrvalsdeildinni var djúpi miðjumaðurinn
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done
Það er ákaflega sjaldan sem stuðningsmenn Liverpool eru sáttir við jafntefli en ætli við getum ekki tekið þessu um helgina. Liverpool er fyrir vikið enn vel á lífi í annars mjög jafnri deild sem hefur farið ágætlega af stað. Framundan er ekkert asnalegt HM í eyðimörk heldur rosalegur mánuður þar sem Liverpool spilar 10 leiki frá 30.nóv til 1.janúar. Spennið beltin.
Hinn miðvörðurinn er næstur á dagskrá í Ögurverk liði aldarinnar – Van Dijk var allt að þvi sjálfkjörin síðast.
Tveir heimaleikir framundan í þessari viku og Liverpool á að vinna og verður að vinna báða.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done
Liverpool er í öðru sæti stigi á eftir Man City og þeir eru næstir á dagskrá, klárlega stærsti leikur tímabilsins það sem af er og að sjálfsögðu eru hann settur á þennan fullkomlega ömurlega rástíma í hádeginu eftir landsleikjahlé.
Miðverðir eru næstir á dagskrá í Ögurverk liði aldarinnar.
Tókum svo púlsinn á því sem helst er að frétta í þessu síðasta landsleikjahléi ársins. 10 stig tekin af Everton, ákvöðrun deildarinnar um að samþykkja það að Newcastle og Chelsea megi eiga eina deild til vara og fá lánað þaðan að vild o.fl.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf
Ljómandi góð Kop.is ferð á Anfield að sjá flottan 3-0 sigur á Brentford aðalatriði vikunnar og hvaða úrslit helgarinnar gera fyrir Liverpool í deildinni, liðið er einu stigi frá toppliði Man City sem bíða í næsta leik. Landsleikjapása annars framundan
Gullkastið heldur svo áfram að velja lið Ögurverk lið aldarinnar og núna voru það hægri bakverðir.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf
From the publisher's feed

466 Listeners

140 Listeners

6 Listeners

22 Listeners

26 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

19 Listeners

15 Listeners

1 Listeners

26 Listeners

14 Listeners