Gullkastið

Gullkastið

Download on the App Store

Gullkastið episodes

  • Gullkastið – Loksins lífsmark á Anfield

    Liverpool sýndi ágætis lífsmark á Anfield um helgina sem gefur vonandi góð fyrirheit fyrir risastóra viku sem er framundan. Hörkubarátta á báðum enda töflunnar og Meistaradeildarbarátta Liverpool er kannski ekki alveg steindauð?

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull / Húsasmiðjan / Miðbar / Jói Útherji / Ögurverk ehf

    1 hr 7 min
  • Gullkastið – Það er enginn botn!

    Ofsalega vont tap gegn Úlfunum og gengur gjörsamlega ekki neitt. Everton/Stoke/Bolton/Burnley eftir helgi! Enska Úrvalsdeildin kærir Man City fyrir að hafa svindlað á reglum deildarinnar í 14 ár (döh) og við spáum lítillega í slúðri um næsta yfirmann knattspyrnumála.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull Húsasmiðjan Sólon Jói Útherji Ögurverk ehf

    1 hr 7 min
  • Gullkastið – Tímabil frá helvíti

    Þetta tímabil er mjög hratt að verða einhver mestu vonbrigði seinni tíma og ljóst að framtíð félagsins er skyndilega bara alls ekki eins björt og hún var fyrir ekki svo löngu síðan. Enn einn tapleikurinn og hörmungar frammistaðan um helgina og einum bikar færra í boði fyrir vikið. Leikmannaglugganum lokaði í dag og einhvernvegin tókst Liverpool að verða ennþá veikara, einu fréttir dagsins voru þær að Konate verður frá í 2-3 vikur og eru því báðir aðal miðverðir liðsins frá vegna meiðsla auk auðvitað helmingsins af sóknarlínunni.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull Húsasmiðjan Sólon Jói Útherji Ögurverk ehf

    1 hr 18 min
  • Gullkastið – Janúar!

    Það er ekki nýtt að Liverpool gangi illa í janúar og það breytist lítið í síðustu viku. Sigurleikur þó í auka leiknum gegn Wolves í 64-liða úrslitum FA Cup og steindautt 0-0 jafntefli í pirrandi leik á Anfield gegn glænýju liði Chelsea. Það fer eftir því hvort glasið er hálf fullt eða hálf tómt hvort það hafi verið batamerki greinanleg á leik liðsins.

    Skoðum það helsta út deildinni almennt og næstu verkefni

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull Húsasmiðjan Sólon Jói Útherji Ögurverk ehf

    1 hr 13 min
  • Gullkastið – Ömurleg íþróttahelgi

    Það gengur gjörsamlega ekkert hjá Liverpool þessa dagana og félagið komið í töluverða krísu sem ekki er gott að sjá fyrir endan á. Úrslit helgarinnar almennt voru ekki til að bæta ástandið sama hvaða íþrótt verið er að tala um. Hentum okkur í vangaveltur um þjálfarateymið, liðið almennt, ensku deildina og vendingar þar og fréttir helgarinnar af eigendamálum Liverpool.

    Umsjón Einar Matthías og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull Húsasmiðjan Sólon Jói Útherji Ögurverk ehf

    1 hr 12 min
  • Gullkastið – Vesen í Bítlaborginni

    Það gengur hvorki né rekur hjá okkar mönnum að finna taktinn og leikur liðsins hvorki fugl né fiskur um helgina frekar en undanfarið. Ljóst að finna þarf lausnir, augljóslega á leikmannamarkaðnum en eins bara innan hópsins sem fyrir er.

    Hin liðin virðast alls ekki ætla að slá slöku við frekar en síðasta sumar og ljóst að samkeppnin er ekkert að minnka í enska boltanum.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull Húsasmiðjan Sólon Jói Útherji Ögurverk ehf

    1 hr 4 min
  • Gullkastið – Endurvekja þungarokkið takk!

    Það er fullkomlega búið að skrúfa niður í þungarokksfótboltanum sem Liverpool spilaði undir stjórn Klopp og breytingar á leikmannahópi liðsins undanfarin ár eru bara ekki nógu sterkar, oftar en ekki bókstaflega. FSG hefur líklega aldrei verið undir meiri pressu en einmitt í þessum glugga enda þörf á alvöru styrkingu á miðsvæðinu fullkomlega æpandi.

    Eftir skipsbrotið gegn Brentford var ekki annað hægt en að rýna í stöðuna í víðara samhengi og greina helstu vandamál félagsins og ógnvekjandi hraða hnignun liðsins það sem af er vetrar.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull Húsasmiðjan Sólon Jói Útherji Ögurverk ehf

    1 hr 17 min
  • Gullkastið – Cody Gakpo til Liverpool

    Eftir hátt í hálftíma slúður þess efnis að besti leikmaður Eredivisie væri á leiðinni til Liverpool staðfesti PSV uppeldisfélag hans þessi viðskipti og gefið að ekkert óvænt komi upp í læknisskoðun verður hann leikmaður Liverpool í janúar. Búmm, gleðilega hátið. Ef að þið þekkið þennan leikmann lítið þá eru stuðningsmenn Man Utd búnir að gera heilan helling af kynningarmyndböndum fyrir okkur undanfarna mánuði. Enski boltinn fór aftur af stað með sigri á Aston Villa og tapi í deildarbikarnum. Síðasti þáttur ársins með stuttu uppgjöri á "næstum því" árinu 2022.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull Húsasmiðjan Sólon Jói Útherji Ögurverk ehf

    1 hr 36 min
  • Gullkastið – Jól og alvöru fótbolti

    Messi og félagar kláruðu Heimsmeistaramótið og óhjákvæmilegt að gera það upp lítillega. Liverpool fékk nokkuð kærkomna hvíld á meðan en ljóst að hópurinn þarf enn jafn mikið nýtt blóð strax í janúar. Deildarbikarinn hefst strax á fimmtudaginn og það gegn Man City og strax eftir jól fer Liverpool á Villa park.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Hallgrímur Indriða

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull Húsasmiðjan Sólon Jói Útherji Ögurverk ehf

    1 hr 11 min
  • Gullkastið – Opna veskið í janúar takk!

    Luis Diaz er aftur meiddur, enn einn leikmaður Liverpool sem meiðist strax aftur eftir að hafa náð sér af meiðslum og ljóst að Liverpool þarf að gera eitthvað stórt á leikmannaglugganum til að vinna upp á móti öllum þessum lista leikmanna sem eru bara alltaf frá vegna meiðsla. Diaz, Jota og Nunez hafa nú þegar verið meira frá en Bobby, Mo og Mané. Slúðurmyllan er enda farin að rúlla fyrir alvöru núna. HM er á lokametrunum og Liverpool er farið að spila æfingaleiki á ný.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull Húsasmiðjan Sólon Jói Útherji Ögurverk ehf

    1 hr 2 min

About Gullkastið

From the publisher's feed

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

More shows like Gullkastið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

433.is by 433.is

433.is

6 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

1 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners