
Sign up to save your podcasts
Or


Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: SSteinn og Einar Matthías
Real Madríd bíður í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og hressandi yfirspilun á Emirates var einmitt upphitunin sem við þurftum fyrir það. Reyndar líka þessi upphitun frá því í gær. Baráttan um Meistaradeildarsæti er síður en svo búin en Liverpool nær að spila svona áfram.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælandi: Maggi
Síðasta landsleikjahléi tímabilsins lokið og alvöru prógramm framundan sem hefst með stórleik gegn Arsenal á laugardagskvöldið. Ræðum nýjasta slúðrið af leikmannamarkaðnum en Liverpool var í vikunni nokkuð sterklega orðað við miðvörð frá Leipzig. Framtíð Salah, breytingar á Meistaradeild, arftaki Aguero hjá City o.fl.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Ljót þrjú stig gegn Úlfunum og annar sigur á RB Leipzig léttu aðeins andann fyrir langt þriggja vikna hlé. Real Madríd kom upp úr pottinum í Meistaradeildinni og Liverpool á sannarlega harma að hefna gegn þeim. Óvenjulegt landsleikjahlé nýtist Klopp svo vonandi vel fyrir lokakafla tímabilsins.
Enn ein hörmungarhelgin og nákvæmlega ekkert gengur á Anfield, Meistaradeildarsætisbaráttan svo gott sem búin en Liverpool er þó ennþá inni í núverandi tímabili í Meistaradeildinni. Fengum formann Liverpoolklúbbsins og fréttamanninn Hallgrím Indriðason með okkur til að fara yfir síðustu viku og til að kynna nýjan hlaðvarpsþátt Liverpoolklúbbsins sem fór í loftið á miðvikudaginn.
Loksins loksins sigur í deildarleik þrátt fyrir ennfrekari brottföll í leikmannahópnum, framundan er eru svo tveir ólíkir leikir við höfuðborgarliðin og nágrannana í Chelsea og Fulham.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Það blæs verulega á móti hjá okkar mönnum og alls kyns furðusögur verið á lofti um helgina eftir slæmt tap gegn Leicester í leik sem var reyndar að svona 75% leiti vel spilaður af okkar mönnum. Leipzig í Meistaradeildinni annað kvöld, Everton um helgina og meiðslalistinn svo langur að Ingó Tóta er að semja lag um hann.
Veik von um alvöru titilbaráttu dó í síðstu viku og ljóst að Liverpool er í bullandi erfiðri baráttu um Meistaradeildarsæti ef gengi liðsins fer ekki að breytast til batnaðar. Afar erfið vika á dagskrá að þessu sinni. Framundan eru svo þrír stórir leikir.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Ensku meistararnir skelltu sér tvisvar til London í þessari viku og náðu í sex risastór stig. Þetta var allt annað að sjá en þessa 2010 útgáfu af Liverpool sem við fengum megnið af janúar. Auk þess var síðasti dagur leikmannagluggans í dag og Liverpool lét til sín taka með panic kaupum á tveimur miðvörðum, ekki veitir af. Brigton sem vann Tottenham líka í þessari viku er næst á dagskrá og svo risaslagur á Anfield við Man City.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Það er eins og við séum stanslaust að horfa á sama leikinn þessa dagana, tveir vondir tapleikir í þessari viku og áframhald á ömurlegu gengi. Aðalvandamálið blasir við en eigendur félagsins eru ekki aðeins farnir að fara í taugarnar á stuðningsmönnum liðsins heldur stjóranum líka sem er meira áhyggjuefni. Frank var sparkað hjá Chelsea og framundan eru Mourinho og Moyes með tilheyrandi gleði.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Liverpool er í smá krísu, vond töpuð stig á Anfield gegn Man Utd liði sem mætti fyrst og fremst til að halda stiginu. Næstu leikir eru gegn Dyche, Mourinho og Moyes þannig að það er hætta á sömu sýningu áfram ef Liverpool nær ekki að breyta um takt sóknarlega.
From the publisher's feed

466 Listeners

140 Listeners

6 Listeners

22 Listeners

26 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

19 Listeners

14 Listeners

1 Listeners

26 Listeners

14 Listeners