Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Vopnabirgðir Rússa og heimavallarétturinn
    Rússar hafa nær tvöfaldað tekjur sínar af sölu jarðefnaeldsneytis til Evrópusambandsríkja frá innrás Rússa í Úkraínu fyrir um tveimur mánuðum. Meginástæða þess er einmitt innrásin, eða bein afleiðing hennar: Feiknaleg hækkun á eldsneytisverði. Tekjur af eldsneytissölunni rata á endanum að mestu leyti í rússneska ríkissjóðinn og gera þannig Rússum kleift að fjármagna stríðið á sama tíma og þær vega upp á móti þeim þeim þungu efnahagsþvingunum og refsiaðgerðum sem fjölmörg ríki og Evrópusambandið beita nú Rússa vegna stríðsins.
    Rússar treysta verulega á innflutning á ýmiskonar neyslu- og tækni- og rafvörum og vélbúnaði - einna helst frá Evrópuríkjum. Það þarft því vart að taka það fram að efnahagsþvinganirnar hafa haft víðtæk áhrif á líf almennings í Rússlandi og valdið ringulreið á rússneskum fjármálamarkaði. En hvað með eina helstu nauðsynja stríðs: Vopnin. Hvernig standa málin þar í ljósi refsiaðgerðanna? Framleiða Rússar allt sem til þarf í þeim efnum eða þurfa þeir að treysta á viðskipti við önnur ríki? Og hvernig gengur það þá nú á dögum? Gunnar Hrafn Jónsson blaðamaður fer yfir stöðuna á vopnabirgðum og -kaupum Rússa í fyrri hluta þáttarins.
    Úrslitakeppni karla og kvenna í handbolta og körfubolta er nú í fullum gangi. Allt keppnistímabilið keppast liðin við að enda sem hæst í töflunni svo þau njóti heimavallaréttarins fræga í úrslitakeppninni. En skiptir heimavallarétturinn einhverju máli? Ekki samkvæmt nýlegum úrslitum hér heima, til að mynda af Njarðvíkurkonur unnið báða leiki sína gegn Haukum í úrslitaeinvígi efstu deildar kvenna í körfubolta, og Haukar unnið báða sína leiki í Njarðvík. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður fjallar um heimavöllinn í síðari hluta þáttarins, og hvort það sé hrein og bein mýta, að hann skipti einhverju máli.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Stýrivaxtaákvörðun væntanleg og rússneskt gas
    Þann 9. febrúar hækkaði Peningastefnunefnd Seðlabankans stýrivexti um 0,75 prósentustig, í ljósi vaxandi verðbólgu. Þá spáði bankinn um 5 prósenta verðbólgu út árið. Nú hins vegar, mælist verðbólgan 7,2 prósent og hefur farið vaxandi í hverjum mánuði frá því í ágúst. Þá hefur verðbólgan ekki verið meiri síðan í maí 2010. Það á eftir að koma í ljós hvernig Seðlabankinn bregst við stöðunni en von er á nýrri stýrivaxtaákvörðun frá Peningastefnunefnd í næstu viku. Magdalena Anna Torfadóttir, sérfræðingur Hádegisins í efnahagsmálum og blaðamaður á Fréttablaðinu, ræðir við okkur um hugsanleg viðbrögð Peningastefnunefndar, í fyrri hluta þáttarins.
    Rússneski orkurisinn Gazprom, sem er í eigu þarlendra stjórnvalda, tilkynnti í gær að fyrirtækið myndi hætta útflutningi á gasi til Póllands og Búlgaríu frá og með deginum í dag, og skrúfað yrði fyrir gasleiðslur til landanna. Ástæðan, segja rússnesk stjórnvöld, er samningsbrot, en Rússar hótuðu því í upphafi stríðsins að Rússland myndi skrúfa fyrir gasið til þeirra Evrópuríkja sem neituðu að gera upp í rúblum. Flest hafa ríkin neitað að ganga að þeirri kröfu, þar á meðal Pólland og Búlgaría. Guðmundur Björn kynnir sér málið í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Allsherjarþingið samþykkir breytingu á neitunarvaldi öryggisráðsins
    Ætli eitt af fimm fastaríkjum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að beita neitunarvaldi sínu gegn ályktunum ráðsins þarf það nú að réttlæta ákvörðun sína fyrir allsherjarþinginu sem kemur saman tíu dögum eftir beitingu þess til að fjalla um ákvörðunina. Þessa breytingatillögu á neitunarvaldi fastaríkja öryggisráðsins samþykkti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í gær.
    Öryggisráð sameinuðu þjóðanna hefur það hlutverk að viðhalda frið og öryggi. Í því sitja fulltrúar fimmtán ríkja, en þar af hafa fimm ríki: Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína og Rússland, fasta setu og neitunarvald, sem reglulega hefur verið gagnrýnt. Þrátt fyrir það er afar sjaldgæft að breytingatillögur á neitunarvaldinu séu lagðar fram eða ræddar á þinginu. En nú hefur þessi breyting orðið á. Katrín fer yfir neitunarvaldið, breytingarnar og aðdraganda þeirra í fyrri hluta þáttarins. Í síðari hlutanum berum við málið undir Þórdísi Ingadóttur, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík og sérfræðing í alþjóðalögum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Elon Musk kaupir Twitter og 36 ár frá kjarnorkuslysinu í Tsjernóbyl
    Stjórn samfélagsmiðilsins Twitter samþykkti í gær yfirtökutilboð frá milljarðamæringnum Elon Musk, eiganda rafbílaframleiðandans Tesla. Tilboðið, sem hljóðar upp á 44 milljarða Bandaríkjadali, eða það sem nemur rúmlega 5.700 milljörðum króna verður nú lagt fyrir hluthafafund til samþykkis. Gangi kaupin í gegn má búast við ýmsum breytingum á miðlinum, en Musk, sem sjálfur nýtur mikilla vinsælda sem notandi miðilsins, ráðgerir að taka fyrirtækið af hlutabréfamarkaði og gera málfrelsi að útgangspunkti samfélagsmiðilsins - hvernig sem það mun svo líta út í framkvæmd. Katrín kynnti sér kaupin í fyrri hluta þáttarins.
    Í dag eru þrjátíu og sex á frá kjarnorkuslysinu í Tsjernóbyl í sovésku Úkraínu. Sé litið til dauðsfalla og kostnaðar, er Tsjernóbyl-slysið mesta kjarnorkuslys sögunnar. Rýma þyrfti borgina Pripyat í nágrenni við kjarnorkuverið, en þar bjuggu um 50 þúsund manns. Svæðið sem var rýmt var á stærð við Lúxemborg, og er það enn þann dag í dag geislavirkt. En sé litið í baksýnisspegil sögunnar má færa rök fyrir því að Tsjernóbyl-slysið hafi markað upphafið af endalokum Sovétríkjanna. Valur Gunnarsson sagnfræðingur ræðir við okkur um þetta hörmulega slys í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Vendingar í máli Madeleine McCann og Macron endurkjörinn
    Þýskur afbrotamaður á fimmtugsaldri hefur opinberlega hlotið stöðu grunaðs manns í rannsókn portúgölsku lögreglunnar í máli bresku stúlkunnar Madeleine McCann, sem hvarf í fjölskyldufríi á Portúgal fyrir rétt tæpum fimmtán árum þegar hún var aðeins þriggja ára. Leitin er ein stærsta sinnar tegundar. En alls kyns tilgátur og kenningar hafa verið settar fram um hvað orðið hafi af stúlkunni og hver beri ábyrgð á hvarfinu, en ekkert sem haldbært er - það er að segja - þar til nú. Við förum yfir nýjustu vendingar í málinu í fyrri hluta þáttarins.
    Emannuel Macron var í gær endurkjörinn forseti Frakklands, en hann hlaut tæplega 60% atkvæða í síðari umferð kosninganna, en mótframbjóðandi hans Marine Le Pen fékk ríflega fjörutíu prósent. Munurinn er öllu minni en var í kosningunum fyrir fimm árum þegar Macron fékk 66 af hundraði atkvæða. Torfi Túliníus, prófessor við Háskóla íslands og sérfræðingur í frönskum stjórnmálum, kemur til okkar í síðari hluta þáttarins, og ræðir um helstu verkefnin sem eru fram undan fyrir Macron.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Musk kaupir í Twitter og íslenska fótboltasumarið
    Athafnamaðurinn Elon Musk, stofnandi bílaframleiðandans Tesla og geimferðafyrirtækisins SpaceX, keypti, í byrjun mánaðar, 9,2% hlut í samfélagsmiðlinum Twitter. Kaupverðið var rétt tæpir þrír milljarðar Bandaríkjadala eða það sem nemur um 370 milljörðum króna. Eftir kaupin er Musk, sem hefur lengi verið virkur notandi samfélagsmiðilsins, stærsti hluthafinn í félaginu. En hver er baksagan? Af hverju að kaupa bréf í Twitter? Og af hverju skipta kaupin máli? Hvað er í vændum hjá Twitter? Kristjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur Hádegisins og þáttastjórnandi UT hlaðvarps Ský, svarar því í tæknispjalli á föstudegi.
    Íslenska fótboltasumarið er hafið, en keppni í Bestu deild karla hófst í vikunni og er fyrstu umferð lokið. Keppni í Bestu deild kvenna hefst svo á þriðjudaginn í næstu viku. Fyrirkomulag þessarar efstu deildar í ár er með öðru sniði en venjulega karlamegin, en leikin verður þreföld umferð. Við spáum í spilin með Evu Björk Benediktsdóttur íþróttafréttamanni í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Átök í Jerúsalem og óeirðir í Svíþjóð
    Við hefjum þáttinn á umfjöllun um átök fyrir botni miðjarðarhafs: Að minnsta kosti 150 Palestínumenn slösuðust í átökum við ísraelsku lögregluna við Al-Aksa moskuna í Jerúsalem um páskahátíðina. Þá hafa yfir þrjátíu látist í átökum síðustu vikur. Guðmundur Björn fer yfir stöðuna í fyrri hluta þáttarins.
    Uppþot og óeirðir einkenndu páskahátíðina í Svíþjóð. Hörð mótmæli víða um land þróuðust út í óeirðir þar sem steinum og bensínsprengjum var kastað að lögreglu og kveikt í stolnum bíldekkjum og bílkerrum, ruslatunnum, rusli og bílum. Tugir voru handteknir og um fjörutíu særðust í átökunum, þar á meðal ófáir lögreglumenn. Kveikjan að uppþotunum voru boðaðar útisamkomur og Kóranbrennur danska þjóðernisöfgaflokksins Stram kurs og leiðtoga flokksins, Rasmus Paludan. En Paludan og flokkur hans hefur baráttu gegn innflytjendum og þá sér í lagi múslimum að leiðarljósi í flestum sínum störfum. Katrín fjallar um óeirðirnar og tilurð þeirra í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Stórsókn Rússa í Donbas og Covid í Kína
    Við byrjum í Úkraínu, nánar tiltekið á Donbas-svæðinu í austurhluta landsins. Sveitir rússneska hersins hófu þar stórsókn í gær og telja sérfræðingar að nú sé nýr kafli hafinn í innrás Rússa; einbeiting sé nú fyrst og fremst á að ná yfirráðum á Donbas-svæðinu og þannig landtengingu við Krímskaga. Guðmundur Björn fer yfir stöðuna.
    Vegna hinnar ströngu Covid-19 stefnu kínverskra stjórnvalda standa yfir umfangsmiklar lokanir í minnst 44 borgum Kína vegna útbreiðslu Covid-19, þar á meðal í fjölmennustu borg landsins - Shanghai - þar sem matar- og vöruskortur og örvænting er farin að gera vart við sig. Á meðan flest önnur ríki heims hafa þróað og aðlagað viðbrögð sín og aðferðir við að ná tökum á heimsfaraldri eftir gangi og þróun hans og aukinni þekkingu á veirunni hafa kínversk stjórnvöld lítið breytt út af strangri stefnu sinni - stefnu sem virðist vera að virka. En í þessu tæplega eins og hálfs milljarðar ríki - fjölmennasta ríki heims hafa 'bara' um 190 þúsund manns smitast og rúmlega 4.600 manns látist af völdum veirunnar. Sem vissulega eru mjög margir, en þetta er mjög lágt hlutfall ef miðað er til dæmis við Bandaríkin, þriðja fjölmennasta ríki heims með rúmlega 300 milljónir íbúa, þar sem rúmlega 80 milljónir manns hafa greinst með veiruna og milljón látist af völdum hennar. Við berum stefnu kínverskra stjórnvalda, árangur hennar, fórnarkostnaðinn og framhaldið undir Guðbjörgu Ríkeyju Thoroddsen Hauksdóttur, doktorsnema í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Yfirvofandi hungursneyð og lífið í nýrri veröld tölvuleikja
    Innrás Rússa í Úkraínu hefur haft margvísleg áhrif á heiminn en eitt sem oft gleymist er að hún er að byrja að valda nýrri og vaxandi hungursneyð á heimsvísu. Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna segir að útlitið hafi aldrei verið svo svart frá því að stofnunin var sett á laggirnar fyrir rúmum þremur áratugum. Gunnar Hrafn Jónsson blaðamaður ræðir um yfirvofandi matarskort og hungursneyð vegna innrásarinnar.
    Hvað gerist þegar hundruð þúsunda alls staðar að úr heiminum safnast saman í nýrri veröld - segjum bara geimnum til dæmis - þar sem ekkert er að finna nema óunnin hráefni og auðlindir, þar sem engar reglur eða lög gilda og framtíðin er óskrifað blað? Hvernig er ákveðið hvaða reglur eigi að gilda? Hver eigi að stjórna, eða hverjir? Hvernig refsa eigi þeim sem gera á hlut annarra? Hvernig myndi hagkerfi slíks heims líta út? Hvaða áhrif hefur lögleysan á mannlegt eðli? Hvernig verður sagan skrifuð?
    Þessum og fleiri spurningum er svarað daglega í heimi CCP tölvuleikjarins Eve online sem gefin var út fyrir um áratug og hundruð þúsunda spila. Og Bergur Finnbogason kann svörin sem listrænn stjórnandi leiksins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • 70 ára starfsafmæli Englandsdrottningar og njósnaauglýsingar
    Það koma allskonar tímamót í lífinu. Við finnum ástina. Svo kannski gengur það ekki upp. Við tekur einhleypulífið. Og svo kannski nýr maki. Ný tímamót. Ólétta. Brúðkaup. Skírn. Fjölskylduferðir til Tene sem svo verða kannski að Golfferðum til Flórída. Og Facebook, Instagram, Google, Tik Tok, samfélagsmiðlar og okkar stafræna líf virðist fylgja. Fylgja tímamótunum, áformunum, lífsskeiðunum okkar. Jafnvel án þess að við verðum þess mikið vör. Tinderauglýsingar á Facebook á einhleypuskeiðinu. Barnavörur auglýstar á Instagram og Tik Tok þegar þungunarprófið er jákvætt. Golfbúðarauglýsingar þegar það fer að líða að ferðinni til Flórída og gömul mynd birtist á feedinu af ferðinni til Tene eftir að fjölskyldan rifjar upp herlegheitin yfir sunnudagssteikinni. En hvernig má það vera? Hvað vita snjalltækin um okkur og hvernig má koma í veg fyrir njósnaauglýsingar? Við ræðum við Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna um njósnaauglýsingar í síðari hluta þáttarins.
    Við hefjum þáttinn á tímamótum í lífi Elísabetar Englandsdrottningar. Þann sjötta febrúar hélt drottningin upp á sjö áratuga starfsafmæli, en þá voru sjötíu ár frá því faðir henna, Georg fimmti, féll frá og Elísabet varð að þjóðhöfðingja Bretlands og breska heimsveldisins. Drottningin fékk sér köku í tilefni dagsins, og sendi breskum almenningi vinsamlega áminningu um hvernig þau eigi að haga sér - eftir að hún fellur frá. Guðmundur Björn Þorbjörnsson greindi fyrst frá þessum merku tímamótum þann sjöunda febrúar.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…