Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Sjálfboðaliðar til Úkraínu og forsetakosningar í Frakklandi
    Tugþúsundir alþjóðlegra sjálfboðaliða keppast um að fá að halda til Úkraínu og berjast með alþjóðadeild úkraínska hersins í stríðinu gegn Rússum. Úkraínuher hefur síðustu vikur hert inntökuskilyrðin til muna og taka nú aðeins við reyndum umsóknaraðilum. Annars hafa úkraínsk stjórnvöld lítið viljað gefa upp um alþjóðadeildina, fjölda sjálfboðaliða, þjóðerni þeirra og svo framvegis, meðal annars þar sem fjöldi ríkja heims bannar þátttöku borgara sinna í stríðinu með lögum. Við skoðum alþjóðlega sjálfboðaliða og ástandið í Úkraínu í fyrri hluta þáttarins. Hverjir fara út og hvers vegna?
    Fyrri umferð frönsku forsetakosninganna fór fram í gær. Líkt og við var búist var Emannuel Macron sitjandi forseti hlutskarpastur, en hann hlaut tæplega 28% atkvæða. Fast á hæla hans kemur svo sami frambjóðandi og Macron mætti í síðari umferð kosninganna fyrir fjórum árum, Marine Le Pen, með rúmlega 23% atkvæða. Þau tvö mætast því að nýju, aftur, að tveimur vikum liðnum. Við ræðum um átökin sem eru fram undan og kosningarnar í gær, við Torfa Túliníus, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðing í frönskum stjórnmálum, í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Fagfjárfestar og staðan í Úkraínu
    Svalt, Íslensk tónlist og Bananalýðveldið - eru nöfn á þremur af rúmlega tvö hundruð aðilum sem metnir voru hæfir til að taka þátt í útboði á 22,% hlut í Íslandsbanka á dögunum. Þá var þeim fagfjárfestum sem metnir voru hæfir boðið að kaupa ríkisbréfin með fimm prósenta afslætti - og það þrátt fyrir að veruleg umframeftirspurn hafi verið eftir hlutabréfunum, samkvæmt upplýsingum frá Bankasýslu ríkisins.
    Fyrirkomulag sölunnar hefur verið umdeilt og gagnrýnt: Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að spákaupmönnum hafi verið hjálpað til að skotgræða á ríkiseign og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hyggst fá Ríkisendurskoðun til að fara yfir útboðið. Allur hlutur ríkisins í bankanum verður svo seldur í skrefum á næstu misserum. En - ef við bökkum aðeins - hvað er fagfjárfestir? Er einhver munur á slíkum fjárfesti og þeim sem keypti fyrir hundrað þúsund kall í Icelandair til að vera með í útboðinu? Við skoðum málið með Atla Fannari Bjarkasyni, örskýranda Hádegisins.
    Átökin í Úkraínu halda áfram, en sex vikur eru nú liðnar frá því rússneski herinn hóf innrás í landið. Rússar hafa náð á sitt vald héruðum í norður-, austur- og suðurhluta landsins sem eiga landamæri að Rússlandi og Hvíta-Rússlandi eða liggja að Krímskaga. Alþjóðasamfélagið hefur fordæmt hernaðinn og gripið hefur verið til refsiaðgerða sem fá ef nokkur fordæmi eru fyrir. Ursula Von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Josep Borrell, utanríkismálastjóri sambandsins, eru nú á leið til Kyiv höfuðborgar Úkraínu, en Von der Leyen greindi frá því fyrr í vikunni að íbúar Úkraínu þyrftu á samstöðu Evrópu að halda og með ferðinni væri ætlunin að senda skýr skilaboð um órjúfanlega samstöðu með þeim og baráttu þeirra fyrir sameiginlegum gildum. Í gær bárust þær fréttir að allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefði samþykkt að víkja Rússlandi úr mannréttindaráðinu í kjölfar ásakana um að Rússar hefðu framið stríðsglæpi í Úkraínu. Jón Ólafsson, prófessor og sérfræðingur í málefnum Rússlands, lítur við í síðari hluta þáttarins og fer yfir nýjustu vendingar í þessu hörmulega stríði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Gagnaver og mikilvægur landsleikur
    Við erum öll sítengd. Það er okkar nýji veruleiki, eða hann er jafnvel ekkert svo nýr lengur. Fræðimenn segja snjallgræjurnar vera orðnar framlengingu sjálfsins - símann hina nýju hægri hönd líkamans. Þau eru fá augnablikin sem við erum ótengd, erum ekki í símanum, spjaldtölvunni, fartölvunni, vinnutölvunni, með snjallúrið á okkur, fyrir framan snjallsjónvarpið eða nettengd í gegnum spinninghjólið. En hvernig er það hægt? Hvernig getum við öll, eða flest, verið tengd öllum stundum, öll í einu? Kristjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur Hádegisins og þáttastjórnandi UT hlaðvarpsins Ský, ræðir við okkur um gagnaver í tæknispjalli dagsins.
    Við bregðum út af vananum í Hádeginu í dag og tökum okkar vikulega íþróttaspjall á fimmtudegi, enda tilefnið ærið. Kvennalandslið Íslands í fótbolta leikur mikilvægan leik í undankeppni HM 2023 í dag. Liðið mætir Hvíta-Rússlandi í Belgrad í Serbíu og getur komist í efsta sæti undanriðilsins, upp fyrir Holland. Við spáum í spilin fyrir leikinn og möguleika Íslands á sæti á heimsmeistaramótinu með Einari Erni Jónssyni, íþróttafréttamanni í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Erfingjar spámannsins og heillandi loddarar
    Hamzah, krónprins Jórdaníu hefur sagt af sér embættinu, ef embætti skyldi kalla. Prinsinn er hálf bróðir Abdullah konungs, en faðir þeirra, Hussein konungur, var við völd í hálfa öld. Þótt Hamzah vilji ekki lengur vera krónprins, er hann þó enn á sínum stað í röð ættmenna spámannsins Múhammeðs. Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamaður og sérfræðingur í málefnum mið-austurlanda útskýrir þetta flókna mál í fyrri hluta þáttarins.
    Svikahrappar og loddarar leynast víða. Það mætti að minnsta kosti ætla miðað við allt afþreyingarefnið; hverja bíómyndina, hlaðvarpsseríuna, Netflix-þáttaröðina, heimildarmyndina og bókina á fætur annarri, um þá sem svíkja, ljúga og blekkja, villa á sér heimildir, nýta sér góðmennsku eða veika stöðu, eða bara mennsku annarra til að fá sínu framgengt, fá eitthvað í staðinn - oftar en ekki peninga - og á það til að lifa æði hátt fyrir annarra manna fé.
    Þetta sýna sjónvarpsþættir á borð við Bad Vegan, Tinder Swindler, Inventing Anna og The Dropout, hlaðvörp eins og Doctor Death, Catfish, The Shrink Next Door og Dirty John - sem reyndar er nú líka orðið að leikinni þáttaröð á einhverri streymisveitunni - og svona mætti lengi telja.
    En hvað er það við þessa tegund glæpa og glæpamanna sem heillar? Selur? Er það tilfellið að loddarar leynist á hverju horni, eða höfum við sérstaklega gaman af sögum þeirra? Við spyrjum Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði og dósent í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri út í loddarana og svikahrappana í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Söfnun UNICEF og kosningar í Ungverjalandi
    Við byrjum hér heima. Á laugardagskvöldið var mikið um dýrðir þegar landsmenn fylgdust með heimsins mikilvægasta kvöldi í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV. Fjöldi listamanna kom fram og fjöldi sjálfboðaliða í símaveri vann baki brotnu - og allt var þetta fyrir góðan málstað - en barnahjálp Sameinuðu þjóðanna - UNICEF, stóð fyrir herlegheitunum. Við ræðum við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra Unicef á Íslandi, um söfnunina, útkomuna og stöðuna í fyrri hluta þáttarins.
    Victor Orban verður forsætisráðherra Ungverjalands, fjórða kjörtímabilið í röð. Samkvæmt nýjustu tölum tryggði hann sér, ásamt íhaldsflokknum, yfirgnæfandi meirihluta í kosningum í gær, þrátt fyrir spár um annað. Orban segir sigurinn sinn mikilfenglegasta til þessa. Við förum yfir það hvers vegna ráðherrann telur þennan sigur sætastan og kosningarnar í Ungverjalandi í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    10 min
  • Fyrsti apríl og heimsmeistaramót karla í Katar
    Í dag er fyrsti apríl og eflaust einhverjir þegar búnir að láta gabba sig til að hlaupa í dag. Þau sem eru með fulltrúa yngri kynslóðarinnar hafa líklegast ítrekað verið plötuð í morgun en svo er auðvitað löng hefð er fyrir því að fjölmiðlar, fyrirtæki og stofnanir taki þátt í gríninu - birti auglýsingar, tíst eða fréttir sem jafnvel besta fólk endar á að falla fyrir. En hvernig byrjaði þetta allt saman? Af hverju er bannað að ljúga á öllum dögum ársins nema 1. apríl? Er langt síðan fjölmiðlar fóru að taka þátt í gríninu og höfum við alltaf talað um að hlaupa apríl? Atli Fannar Bjarkarson fer yfir málið í örskýringu dagsins.
    Dregið verður í riðla fyrir heimsmeistaramót karla í fótbolta síðar í dag, sem fer fram í Katar í desember. Enn eru þó þrjú laus sæti eftir á mótinu, og það kemur ekki í ljós fyrr en í júní hvaða lið hreppa þau sæti. Drátturinn fer fram í Doha, höfuðborg Katar. Leikið verður í átta fjögurra liða riðlum. Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður lítur við í síðari hluta þáttarins, og við spáum saman í spilin fyrir HM í fótbolta.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Salan á Íslandsbanka og launaákvarðanir
    Við byrjum í heimi fjármála- og efnahagsmála. Haustið 2008 féllu íslensku bankarnir eins og spilaborgir, þar á meðal Glitnir. Rekstur bankans var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu og skilanefnd sett yfir rekstur hans í október 2008. Í kjölfarið var skammlíft fyrirbæri sem hét Nýi Glitnir banki stofnaður af ríkinu og tók hann við eignum um skuldbindingum hins fallna Glitnis banka. 97 starfsmenn bankans misstu vinnuna. Sem sagt, bankinn var kominn í eigu ríkisins, og þann 20. febrúar 2009, var nafni bankans breytt í Íslandsbanka, en það hét bankinn áður eða frá því Iðnaðarbankinn, Alþýðubankinn, Verslunarbankinn og Útvegsbankinn sameinuðust árið 1990, og fram til ársins 2006.
    Við tóku ár uppgjörs og endurfjármögnunar sem og hægfara uppgangur íslensks efnahagslífs. Bankinn og efnahagslífið náðu vopnum sínum að nýju, og með tíð og tíma fóru þær raddir að gerast háværari að bankinn yrði færður aftur úr ríkiseigu, sem sagt, seldur. Í desember 2020 lagði Bankasýsla ríkisins fram tillögu þess efnis að ríkið seldi fjórðungshlut í bankanum, og í lok maí á síðasta ári staðfestu svo bankasýsla ríkisins og Íslandsbanki þau áform um að hefja hlutafjárútboð bankans, sem fór fram í júní. Því hlutafjárútboði lauk um miðjan júní, og urðu þá 24 þúsund hluthafar í Íslandsbanka. Í kjölfarið gaf fjármálaráðherra það út að hann teldi það skynsamlegt að halda áfram að losa um eignarhald ríkisins yfir Íslandsbanka á næsta ári ef markaðsaðstæður leyfðu. Það var svo gert í síðustu viku, þegar ákveðnum fjölda fagfjárfesta var boðið að taka þátt í útboði og seldist 22,5 prósenta hlutur til viðbótar í bankanum. Ríkið á því nú minnihluta í Íslandsbanka, eða 42,5 prósent. Það eru skiptar skoðanir um þessa sölu, stjórnarandstaðan gagnrýndi sölufyrirkomulagið harðlega til að mynda og sögðu þingmenn hennar til dæmis að ekkert gagnsæi hafi verið við söluferlið, og of mikill afsláttur hafi verið gefinn af bréfunum. Magdalena Anna Torfadóttir, sérfræðingur Hádegisins í efnahagsmálum og blaðamaður á Fréttablaðinu, ræðir við okkur um málið í fyrri hluta þáttarins.
    Flest stundum við einhverja vinnu, til að komast af. En við þiggjum mishá laun fyrir vinnuframlag okkar og afkoman er því misgóð. Og þá má spyrja - af hverju? Hvað ræður því? Fyrir utan breytur eins og til dæmis menntunarstig, reynslu, ábyrgð og álag. Af hverju greiðum við svo mismunandi laun fyrir mismunandi störf og fög? Metum við viss vinnuramlög mikilvægari eða verðmætari en önnur eða snýst þetta allt um hagkerfið og lögmál markaðarins? Eða hvers vegna eru til dæmis laun þeirra sem sta
    58 min
  • Inngangan í NATÓ og sársauki annarra
    Við hefjum þáttinn á því að fjalla um ákveðin tímamót í íslenskri sögu. Í dag eru 73 ár frá því Ísland gekk í Atlantshafsbandalagið, NATÓ. Þann 30. mars 1949 samþykkti Alþingi Íslendinga að ganga í hið nýstofnaða varnarbandalag, og er Ísland því eitt af 12 stofnaðildarríkjum bandalagsins, sem í dag eru þau átján talsins. En innganga Íslands í NATÓ gekk ekki þrautalaust fyrir sig. Þótt þingheimur hafi samþykkt að Ísland skyldi vera aðili að bandalaginu var fjölda fólks hér á landi þvert um geð að herlaus þjóð skyldi ganga í hernaðarbandalag. Við rifjum upp inngöngu Íslands í NATÓ með Stefáni Pálssyni sagnfræðing, og meðlim í samtökum hernaðarandstæðinga.
    Það geisar stríð í Úkraínu. Úr öruggri fjarlægð horfum við fólk þjást. Við fáum fréttir og myndir af særðu fólki, myrtu, fólki á flótta, í átökum. Hver á nálgun okkar áhorfenda sem þekkja hvorki sverð né blóð að vera þegar við horfum úr öruggri fjarlægð á aðra þjást? Má loka augum fyrir neyð náungans? Hlífa sér með því að líta undan? Erum við líkleg til að grípa frekar til aðgerða ef við sjáum annað fólk þjást? Eða getum við orðið ónæm? Má velta þessu upp yfir höfuð? Við berum stórar spurningar undir Sólveigu Önnu Bóasdóttur, prófessor í guðfræðilegri siðfræði við Háskóla Íslands, í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Samfélagsmiðla-endurskoðendur og ný fjármálaáætlun stjórnvalda
    Tveir starfsmenn samfélagsmiðilsins TikTok hafa lögsótt fyrirtækið vegna óviðunandi starfsaðstæðna sem þær segja að hafi ollið þeim miklum andlegum skaða og áföllum og ófullnægjandi viðbrögðum samfélagsmiðilsins við því. Störf þeirra fólust í því að horfa á hundruð samfélagsmiðlamyndbanda dag hvern og skera úr um hvort myndefnið fengi að vera á miðlinum eða hvort tilefni væri til að ritskoða það eða fjarlægja samkvæmt reglum miðilsins. Þau myndbönd sem urðu á vegi þeirra eru, eðli málsins samkvæmt, öll þau verstu sem hægt er að finna og sjá á netinu - sýna sjálfsskaða, ofbeldi, klám, dýraníð og þar fram eftir allra verstu og dimmustu götunum. Við vörum við umfjöllunarefninu.
    Ríkissjóður verður rekinn með rúmlega þrjátíu milljarða króna halla árið 2027, samanborið við ríflega 180 milljarða halla í ár, samkvæmt nýrri fjármálaáætlun stjórnvalda sem kynnt var í morgun. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði í kynningu sinni að efnahagshorfur séu að batna og tekjuhlið ríkisfjármálanna að taka við sér. Spá Hagstofunnar um árlega landsframleiðslu séu allt að 90 milljörðum hærri en í upphafi heimsfaraldurs. En á sama tíma er ársverðbólga komin upp í sex komma sjö prósent, og hefur ekki verið hærri í tæp tólf ár. Við ræðum við Drífu Snædal, forseta ASÍ um fjármálaáætlun, aukna verðbólgu og komandi kjaraviðræður í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Nauðungarflutningar fólks og forsetakosningar væntanlegar í Frakklandi
    Við höldum til Úkraínu og Rússlands í fyrri hluta þáttarins. Grunur leikur á að rússneski herinn hafi þvingað þúsundir Úkraínumanna - jafnvel með valdi - til að yfirgefa stríðshrjáð heimaland sitt og fara yfir landamærin til Rússlands - innrásarlandsins - eða flytja þá yfir á rússnesk yfirráðasvæði, sum í þúsund kílómetra fjarlægð.
    Í síðari hluta þáttarins bregðum við okkur til Frakklands, en fyrri umferð forsetningakosninga fara fram þar í landi 10. apríl. Þær síðari fara fram tveimur vikum síðar, en þá mætast tveir hlutskörpustu frambjóðendurnir úr fyrri umferðinni. Allt útlit er fyrir að þeir frambjóðendur sem mættust í síðari umferðinni fyrir fimm árum, Marie Le Pen og núverandi forseti, Emannuel Macron, mætist aftur nú. Talið er þó næsta víst að sitjandi forseti hafi öruggan sigur úr býtum. Torfi Túliníus prófessor lítur við að loknum hádegisfréttum, og fer yfir komandi kosningar, sem og forsetatíð núverandi forseta - sem var einungis 39 ára gamall þegar tók við embætti í maí fyrir fimm árum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…