Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Ólígarkar og íslenskar landsliðskonur í eldlínunni
    Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst og fjölmörg ríki heims hófu að beita Rússa og Rússland efnahags- og viðskiptaþvingunum, höfum við fengið fleiri og fleiri fregnir af hinum svokölluðu ólígörkum. Rússneskum auðmönnum sem taldir eru hallir undir Vladimír Pútín Rússlandsforseta og hafa því þurft að þola kyrrsetningu lúxussnekkja sinna, dýra fasteigna, mótmælendur fyrir utan hallir þeirra, frystingu eigna þeirra - þar með talið eins sigursælasta knattspyrnufélags Englands. En, einum þeirra tókst þó að koma 300 sæta einkaþotu sinni undan - að minnsta kosti um sinn. En hverjir eru þessir ágætu menn? Hvaðan koma auðæfi þeirra? Og af hverju er talið vænlegt til árangurs að beita þá hörðum aðgerðum í tengslum við innrásina? Við hefjum sem sagt þáttinn á örskýringu í boði Atla Fannars Bjarkasonar.
    Íslenskar landliðskonur í fótbolta voru eldlínunni í vikunni þegar leikið var í átta liða úrslitum meistaradeildar kvenna í fótbolta. Þá er landsleikur fram undan hjá kvennalandsliðinu við Hvíta-Rússland í undankeppni heimsmeistaramótsins, en leikið verður í Serbíu vegna aðkomu Hvít-Rússa að stríðinu í Úkraínu. Landsliðshópurinn verður kynntur eftir hádegi. Þá á karlalandsliðið tvo æfingarleiki fram undan. Við förum vítt og breitt yfir fótboltasviðið í síðari hluta þáttarins, með Helgu Margréti Höskuldsdóttur, íþróttafréttakonu.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Mánuður frá innrás Rússa í Úkraínu
    Í dag er mánuður frá því að Vladimír Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði rússneska hernum að ráðast inn í Úkraínu og stríð brast á með þeim hryllilegu afleiðingum sem við fáum fregnir af dag hvern - og ekkert lát virðist á í bráð. Úkraínsk stjórnvöld segja þó að friðarviðræðum við Rússa miði eitthvað áfram og bandarísk stjórnvöld segja vísbendingar um að Úkraínuher sé í sókn. Á meðan berast fregnir af því að innrásarherinn beiti aukinni hörku eftir því sem hernaðaraðgerðir á jörðu niðri gangi hægar og verr en gert var ráð fyrir.
    Aðrar fregnir herma að hugsanlega ljúki átökunum með því að hópi ríkra rússneskra auðmanna takist að fá Pútín ráðinn af dögum eða að meðlimir innan rússnesku leyniþjónustunnar FSB fái sig fullsadda og ræni Pútín völdum og taki yfir Kreml. En að sögn ónefndra háttsettra aðila innan leyniþjónustunnar aukast líkurnar á því með hverri vikunni sem innrásin dregst á langinn. Þó segja svo aðrar heimildir að stuðningur við Pútín og innrásina í Úkraínu sé mikill heima fyrir og jafnvel víðar. Hann njóti stuðnings innan stjórnarinnar og meðal ríku ólígarkanna og það muni ekki breytast í bráð.
    Þetta er staðan á hernaðnum og átökunum en svo er það fólkið. Samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum hafa tæplega þúsund almennir borgarar látið lífið í átökunum, þar af rúmlega fjörutíu börn, og yfir sextánhundruð særst. Stofnunin segir þó líklegt að rauntölurnar séu mun hærri. Þá eru hér ekki meðtaldir allir hermennirnir sem tapað hafa lífi í átökunum. En á meðan Rússar halda því fram að mannfall úr þeirra röðum sé tiltölulega lágt, eða um fimm hundruð manns, segja aðrar stofnanir, stjórnvöld og fréttamiðlar að líklegra sé að allt frá sjö þúsund til tuttugu þúsund rússneskir hermenn hafi látist í átökunum. Þá hafa tíu milljónir Úkraínumanna þurft að flýja heimili sín vegna átakanna, samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum. Sex og hálf eru á vergangi í heimalandinu. Rúmar þrjár og hálf milljón manns hafa flúið landið.
    Á þessum tímamótum förum við yfir ástandið í Úkraínu, stöðuna á stríðinu og framtíðarhorfurnar með Jóni Ólafssyni, prófessor við Háskóla Íslands, í síðari hluta þáttarins.
    Erfitt hefur reynst að reyna að flokka sannar upplýsingar frá fölskum og réttar fréttir frá röngum frá því að innrásin hófst og öll upplýsingaóreiðan í kjölfarið - á tímum þar sem allt gerist á ógnarhraða og hægt er að miðla í rauntíma. Allskonar misvísandi upplýsingar, myndir og myndbönd hafa komist í dreifingu svo sem á samfélagsmiðlum og farið á flug. Myndir sem til dæmis sýna átök og stríð en reynast svo vera úr allt öðr
    58 min
  • Kjarnorkuvopn og kynlíf ungmenna
    Við byrjum á stríðinu í Úkraínu. Í dag eru það kjarnavopnin. Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði nýverið að hann væri búinn að virkja kjarnorkuflota sinn og setja hann í viðbragðsstöðu. En hverjar eru líkurnar á því að gripið verði til gereyðingarvopna í stríðinu í Úkraínu? Er kjarnorkusprengja það sama og kjarnorkusprengja? Og hversu öflug þarf sprengja að vera til þess að hún flokkist sem gereyðingarvopn? Við ræðum við Gunnar Hrafn Jónsson blaðamannn.
    Þriðjungi færri fimmtán ára stúlkur stunda kynlíf nú en í upphafi aldar hér á landi, eða 24 prósent. Hlutfall drengja hefur lækkað lítillega eða um tvö prósent frá upphafi aldar, úr 29 prósentum í 27. Aðeins 18 prósent íslenskra tíundu bekkinga notuðu smokk við síðustu samfarir. Þetta sýna niðurstöður alþjóðlegrar rannsóknar á heilsu og lífskjörum skólabarna, sem lögð hefur verið fyrir hér á landi frá 2006. En hvað þýðir þetta? Hvað útskýrir þessa þróun? Og hvernig stöndum við hér á landi í þessum málum samanborið við aðra þátttakendur í könnuninni í Evrópu og Norður-Ameríku? Ársæll Arnarsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, svarar því í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Róhingjar og friðarviðræður
    Herinn í Mjanmar framdi þjóðarmorð á Róhingjum. Þessari afstöðu Bandaríkjastjórnar lýsti Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna opinberlega yfir í gær. Úttekt stjórnarinnar á aðgerðum mjanmarska hersins gegn Róhingjum árin 2016 og 2017, sem meðal annars var byggð á viðtölum við yfir þúsund Róhingja, leiddu í ljós skýran ásetning hersins um að þurrka út Róhingja með öllu, að sögn utanríkisráðherrans. Við skoðum málið í fyrri hluta þáttarins.
    Volodymir Zelensky, forseti Úkraínu, ítrekaði í gær að fundur á milli hans og Vladimírs Pútín Rússlandsforseta væri forsenda þess að einhver árangur næðist í friðarviðræðum milli Úkraínu og Rússlands. Samninganefndir ríkjanna hafa nokkrum sinnum átt í viðræðum frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu í lok febrúar, oftast í gegnum fjarfundabúnað, en þær viðræður hafa litlu skilað. En hvernig fara svona friðarviðræður fram? Um hvað er reynt að semja? Og geta þjóðir sem eru í stríði samið um nokkurn skapaðan hlut? Friðrik Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum, ræðir við okkur um friðarviðræður milli Rússa og Úkraínumanna í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Staðan í Úkraínu og ekið í hóp hátíðargesta í Belgíu
    Sex létust og tugir særðust, þar af tíu lífshættulega, þegar bíl var ekið á ofsahraða inn í hóp fólks sem safnast hafði saman til að halda skrúðgöngu í belgíska bænum Strépy-Bracquegnies í gærmorgun. Ökumaður bílsins og farþegi hans voru handteknir á vettvangi og beðið er niðurstaðna úr blóðprufum sem skera úr um hvort ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum. Talið er að þeir hafi verið á heimleið af næturklúbbi þegar atvikið varð. Við könnum málið nánar í fyrri hluta þáttarins.
    Frá því innrás Rússa hófst þann 24. febrúar hafa yfir 3,3 milljónir Úkraínumanna flúið land, og þúsundir almennra borgara fallið. Verst er ástandið í hafnarborginni Mariupol, hvar yfir 2.000 almennir borgarar hafa verið myrtir í árásum Rússa. Friðarviðræður Rússa og Úkraínustjórnar ganga hægt og illa, og hefur Volodymir Zelensky, forseti Úkraínu, sagt að samningaviðræður við Rússa séu hvorki einfaldar né geðfelldar, en nauðsynlegar. Við förum yfir stöðuna í Úkraínu, í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Elon Musk og íslenskur körfubolti
    Í fyrri hluta Hádegisins örskýrir Atli Fannar Bjarkason fyrir hlustendum bandaríska sérvitringinn og milljarðamæringinn Elon Musk. Hann hefur verið töluvert í umræðunni undanfarna daga - í kjölfar þess að hann skoraði Vladimir Putin, forseta Rússlands, á hólm í tísti á Twitter á mánudaginn. Musk lagði til að Úkraína yrði undir í slagnum og uppátækið vakti að vonum heimsathygli; upp undir 80 þúsund manns hafa dreift tístinu áfram og tæplega 400 þúsund manns lækað það. Þá fjölluðu að stærstu fjölmiðlar heims um tístið ásamt því að birta fréttir um viðbrögð nokkurra valinkunnra Rússa en Pútin sjálfur hefur hingað til látið sér fátt um finnast. En hver annars þessi Elon Musk og hvað vill hann sífellt upp á dekk? Hvaðan er hann, hvernig varð hann ríkur og hversu ríkur er hann?
    Í síðari hluta þáttarins lítur körfuboltasérfræðingurinn Sigurður Orri Kristjánsson við, og ræðir við okkur um bikarúrslitaleiki karla og kvenna sem fram fara í Smáranum á morgun, sem og stöðuna á Íslandsmótinu og möguleika íslenska karlalandsliðsins að komast á heimsmeistaramótið á Filipseyjum á næsta ári.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Nýr forseti í Suður-Kóreu og áhrif innrásarinnar á íslenskan efnahag
    Viðbyrjum á efnahagsmálum í dag. Innás Rússa í Úkraínu og afleðingar hennar er ein skelfilegasta mannúðarkrísa á síðari tímum, harmleikur sem ekki sér fyrir endan á. Yfir þrjár milljónir Úkraínumanna hafa flúið land og mikill fjöldi er á vergangi inni í Úkraínu. Rússar sækja að úr norðri, suðri og austri, og Úkraína eins og við þekktum hana, innviðir og samfélag, er smám saman að hverfa. En áhrif innrásarinnar gætir víða, og út fyrir Úkraínu. Efnahagsþrengingar eru í vændum víða um heim, og hér í norðri hafa þær líka áhrif - þótt efnahagsþrengingar séu auðvitað smámál í stóra samhengi hlutanna. Til að ræða efnhagsáhrif innrásarinnar hér á landi er Magdalena Anna Torfadóttir viðskiptablaðamaður á Fréttablaðinu og stjórnandi hlaðvarpsins Fjármálakastins.
    Íhaldsmaðurinn Yoon Suk-yeol er nýkjörinn forseti Suður-Kóreu. Suk-yeol, sem er nýgræðingur í stjórnmálum, hafði betur gegn jafnaðarmanninum Lee Jae-myung með afar naumum meirihluta atkvæða, eftir harða og afar óvægna kosningabaráttu. Nýi forsetinn er alls ekki óumdeildur og vald hans mikið. Hver er maðurinn? Hvaða breytingar boðar kjör hans? Hvernig líta næstu fimm árin - eða valdatíð hans - út? Við spyrjum Hafliða Sævarsson, verkefnastjóra á alþjóðasviði og stundakennara í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands út í það í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Úkraína: Sýrlenskir sjálfboðaliðar til Úkraínu og afstaða Kína
    Vladimír Pútín Rússlandsforseti segist reiðubúinn að flytja um 20 þúsund sýrlenska sjálfboðaliða til að berjast í Úkraínu. Það er svipaður fjöldi og Úkraínumenn segja að hafi gengið til liðs við sínar sveitir erlendis frá. Munurinn er hins vegar sá að þessir sýrlensku hermenn eru þrautreyndir eftir langt borgarastríð þar sem stríðsglæpir voru framdir til að ná fram markmiðum Assad stjórnarinnar. Hvað þýðir þetta fyrir stríðið í Úkraínu og af hverju er Assad að senda herlið þangað? Gunnar Hrafn Jónsson, sérfræðingur Hádegisins í málefnum stríðsátaka, fjallar um málið í fyrri hluta þáttarins.
    Nú hafa kínversk stjórnvöld reynt að halda í ákveðið afstöðuleysi gagnvart innrás Rússa í Úkraínu. Segjast vilja koma í veg fyrir að olíu verði hellt á ófriðarbálið. Það er að segja, að afleiðingar innrásarinnar stigmagnist og fari frekar úr böndunum. En hvers vegna hefur þetta verið afstaða kínverskra stjórnvalda? Hvað er þar að baki? Og hvað er í húfi? Við förum yfir viðbrögð kínverskra stjórnvalda og samband þeirra við Rússland í síðari hluta þáttarins ásamt Guðbjörgu Ríkeyju Thoroddsen Hauksdóttur, doktorsnema í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Anna Sorokin framseld og móttaka flóttafólks
    Soho svikahrappurinn Anna Sorokin eða Anna Delvey eins og hún kallar sig hefur verið framseld til Þýskalands frá Bandaríkjunum eftir að hafa afplánað um það bil fjögurra ára dóm í Rikers fangelsi New York vegna fjársvika og þjófnaðar. Fram að fangelsisvistinni hafði hún lifað glæstum og ríkmannlegum lífsstíl frá því hún kom til stórborgarinnar - sem einkenndist af rándýrum merkjavörum, dvöl á fínustu hótelum New York og veislum með fína, fræga og ríka fólkinu. Þar var hún þekkt fyrir sérstakan persónuleika sinn, einkennandi stíl, og kannski ekki síst - fyrir að eiga gífurleg auðæfi sem þýskur erfingi auðmanna. Eini gallinn var að ekkert af því var satt. við fjöllum um Delvey í fyrri hluta þáttarins.
    Frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst þann 24. febrúar síðastliðin, hafa 1,4 milljónir manna flúið land - og á hverri sekúndu, verður úkraínskt barn flóttamaður. Það eru tuttugu dagar síðan innrásin hófst og tölurnar segja okkur því að á hverjum degi hafa um 70 þúsund börn flúið heimili sín. Og þau leita skjóls víða, flest til Póllands eins og við greindum frá í Hádeginu í gær - en einnig út um allan heim, þar á meðal til Íslands. 450 manns hafa sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá áramótum, og þar af eru 179 með tengsl við Úkraínu. Undanfarna þrjá daga voru 48 skráðir í kerfi lögreglunnar, 29 þeirra með tengsl við Úkraínu. En hvernig tökum við á móti þessu fólki? Við ræðum um móttöku flóttafólks við Svein Rúnar Sigurðsson lækni og tónskáld í síðari hluta þáttarins, en hann hýsir nú úkraínska fjölskyldu á sínu heimili - og hefur sterk tengsl við landið.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Sögulegur fólksflótti og vegið að réttindum trans barna í Texas
    Straumur fólks frá Úkraínu er orðinn mesti flóttamannavandi Evrópu á þessari öld. Næstum 2,7 milljónir Úkraínumanna hafa flúið átökin í landinu, frá því innrásin Rússa hófst 24. febrúar síðastliðinn, og undanfarinn sólarhring komust hundrað þúsund á brott af stríðshrjáðum svæðum þess. Þegar er farið að tala um flóttamannakrísu, orð sem var áberandi þegar stríðið í Sýrlandi var í hámæli og milljónir flóttamanna frá Sýrlandi og Írak komu yfir til Evrópu. Guðmundur Björn fer nánar yfir stöðuna í fyrri hluta þáttarins.
    Við höldum til Texas í seinni hlutanum. Það hefur bæst í verkefnabunka Barnaverndar Texasríkis að undanförnu, eða síðan Greg Abbott ríkisstjóri ákvað að að hefja ætti glæparannsóknir gegn foreldrum sem hafa veitt trans börnum sínum kynleiðréttingarmeðferð af einhverju tagi. En samkvæmt túlkun Abbotts á löggjöf ríkisins telst hvers konar meðhöndlun ungmenna til kynleiðréttingar innan heilbrigðiskerfisins vera misnotkun gegn barni. Hart hefur verið vegið að réttindum hinsegin fólks og hinsegin barna í ríkinu síðustu misseri. Og ekki virðist lát á því í bráð. Og lengi getur vont versnað, því þróunin virðist vera á sama veg í öðrum íhaldssamari ríkjum Bandaríkjanna. Katrín fer yfir málið.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…