Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Skattaundanþágur og afdrif Chelsea
    Í ljósi yfirvofandi framtalsskila endurflytjum við pistil frá Gunnari Dofra Ólafssyni, stjórnanda hlaðvarpsins Leitin að peningunum, um skattaundanþágur og -afslætti. Það er að segja, skattinn sem ekki þarf að borga. En Gunnar Dofri fræddi hlustendur um allt sem viðkemur heimilisfjármálunum í Hádeginu í fyrra.
    Rússinn og milljarðamæringurinn Roman Abramovich, sem hagnaðist gífurlega á falli Sovétríkjanna, er þekktur af mörgu: Hann var trúnaðarvinur Borisar Jeltsín, fyrsta forseta Rússlands - og er sagður náinn vinur Vladimír Pútíns núverandi Rússlandsforseta. Hann var þá ríkisstjóri um tíma í Rússlandi - í átta ár eða svo - en er þó eflaust helst þekktur fyrir að vera eigandi enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea. Á sínum tíma, þegar Abramovich keypti liðið gjörbreytti hann gengi þess. En nú stendur hins vegar styr um félagið vegna milljarðamæringsins og heimalands hans. En Abramovic er einn sjö rússneskra olígarka sem bresk stjórnvöld hafa beitt viðskiptaþvingunum í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu, og hverra eignir hafa verið frystar í Bretlandi.
    Margir velta því nú fyrir sér hvort og þá hvaða áhrif eignarhaldið muni hafa á úrvalsdeildarliðið og afdrif þess. Við berum málið undir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson íþróttamann í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Allt um crypto og ESB aðildarumsókn Úkraínu
    Þú átt væntanlega einhverja peninga inni á bankabók, hlustandi góður, en nú eru blikur á lofti í fjármálaheiminum. Vextir hækka eins og enginn sé morgundagurinn, olíuverð rýkur upp úr öllu valdi sem og verðbólgan. Og hvað gerir fólk þá? Einhverjir vona að tíminn góði lækni öll sár og núverandi hræringar á fjármálamarkaði séu aðeins tímabundnar, önnur leggja traust sitt á hlutabréfamarkaðinn og freista gæfunnar þar; og enn önnur sýsla með rafmyntir á borð við bitcoin! Við höfum rætt um bitcoin hér í Hádeginu, en við höfum aldrei rætt almenn um þetta fyrirbæri sem kallast crypto- eða crypto-currency. Þetta er ævintýralega flókið fyrirbæri og fyrir þau sem trúa mér ekki, mæli ég með að líta inn í hópinn íslenskir crypto-nördar á Facebook. Samræðurnar þar gætu allt eins verið á kínversku, fyrir mig allavega. Kristjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur Hádegisins og þáttastjórnandi UT hlaðvarpsins Ský, fer yfir málið í fyrri hluta þáttarins.
    Strax í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu sóttist Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, eftir aðild að Evrópusambandinu. Stjórnvöld í Georgíu og Moldóvu gerðu svo slíkt hið sama. Fyrr í vikunni hafði fréttastofan AFP eftir ónefndum heimildarmönnum í Brussel að leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins hefðu sammælst um að hefja ferli sem gæti leitt til þess að ríkin þrjú fengju inngöngu í sambandið. Charles Michel, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins sagði á Twitter í byrjun vikunnar að umsókn Úkraínu um Evrópusambandsaðild yrði rædd á næstu dögum. Samstaða Evrópusambandsins, vinátta og aðstoð við Úkraínu ætti sér enga hliðstæðu og væri órjúfanleg.
    En hversu líklegt er að Úkraína - já og Georgía og Moldóva - fái inngöngu í sambandið? Og hvernig fer aðildarferlið fram? Hversu langan tíma tekur þetta allt saman? Er líklegt að innganga Úkraínu í ESB kæmi til með að hafa einhver áhrif á núverandi stöðu mála í Úkraínu?
    Við berum málið undir Doktor Gunnar Þór Pétursson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Áhrif Covid-19 á heilann og geimátök vegna innrásar Rússa
    Við hefjum þáttinn á Covid-umfjöllun. Nýleg rannsókn í vísindatímaritinu Nature hefur vakið þó nokkra athygli, en í henni kemur fram á heilinn í þeim sem hafa fengið Covid-19 sjúkdóminn, getur dregist saman um allt að tvö prósent. Þá getur Covid haft langvarandi áhrif á minni og vitræna- eða skilvitlega getu, sem og lyktarskyn. Guðmundur Björn kannar málið í fyrri hluta þáttarins.
    Innrás Rússa í Úkraínu hefur víðtæk áhrif - svo víðtæk að þau teygja sig alla leið út í geim. Nú hafa borist fregnir af því að innrásin geti haft áhrif á afdrif Alþjóðageimstöðvarinnar, ISS, sem hefur verið á sporbaug um jörðu síðan 1998. En stöðin - sem er um átta þúsund fermetrar að flatarmáli og fer hringinn í kringum jörðina á um níutíu mínútum, hefur verið mönnuð óslitið síðan í nóvember árið 2000, einkum af Bandaríkjamönnum og Rússum. Sem stendur eru nú tveir rússneskir geimfarar um borð, einn evrópskur og fjórir bandarískir - og engin undankomuleið. Reynt mun vera að halda þeim fyrir utan deilur og átök á jörðu niðri eftir fremsta megni. Þrátt fyrir það hafa rússnesk stjórnvöld hótað að taka geimstöðina af sporbaug, og jafnvel sagt að harðar þvinganir vestrænna ríkja gegn Rússlandi geti leitt til þess að Alþjóðageimstöðin brotlendi jafnvel í Evrópu eða Bandaríkjunum. Auðkýfingurinn Elon Musk, stofnandi SpaceX geimferðafyrirtækisins, hefur þó sagst munu stíga inn í og koma til bjargar fylgi rússnesk stjórnvöld þessum stóru orðum eftir. Við berum stöðuna undir Sævar Helga Bragason vísindamiðlara með meiru, í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Notkun tungumálsins í stríði og hvað merkir Z?
    Við hefjum Hádegið í dag á umfjöllun um stríðið í Úkraínu, eða alla vega einn anga þess - og beinum sjónum okkar að ákveðnum bókstaf, sem hefur orðið að tákni fyrir stuðning við innrás Rússa í Úkraínu.
    Máttur og áhrif tungumálsins er sjaldan jafn ljós og í stríði. Það er tilfellið í Úkraínu. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ávarpar þjóð sína og heimsbyggðina trekk í trekk, fóðrar með meiningum sínum og hugmyndum, hugmyndafræði, og tilvisunum, söguvisunum sem ekki alltaf er endilega fótur fyrir. Á móti kallar Volodymyr Zelenskyy, forseti Úkraínu til heimsbyggðarinnar eftir stuðningi á meðan hann stappar stálinu í sitt fólk með sínu hughreystandi og hvetjandi lagi.
    Á sama tíma greina fjölmiðar í sífellu frá nýjum vendingum, alls konar efni kemst í umferð á samfélagsmiðlum, og alls ekki allt stenst skoðun. Það er almennings að reyna að finna út hvað er satt og rétt og hvað ekki.
    Í síðari hluta þáttarins ræðir Eyja Margrét Brynjarsdóttir, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, við okkur um tungumálið, notkun þess og áhrif í stríði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Úkraína: Staðan í dag og framhaldið
    Frá því Vladímír Pútín, forseti Rússlands, fyrirskipaði rússneska hernum að ráðast inn í Úkraínu aðfaranótt fimmtudagsins 24. febrúar, hafa aðgerðir hersins stigmagnast á ógnarhraða. Nú beinast aðgerðirnar að borgum og bæjum - já um nær allt landið að Vestur-Úkraínu undanskilinni - að svokölluðum hernaðarlega mikilvægum skotmörkum, en líka að mikilvægum innviðum, að íbúðablokkum og háskólabyggingum, og ítrekað að almennum borgurum. Greint hefur verið frá því að minnst þrjú hundruð og fimmtíu almennir borgarar hafi látið lífið í árásum Rússa og yfir sjö hundruð særst, flestir þegar sprengjum hefur verið varpað, í árásum stórskotaliðs eða í eldflauga- og loftárásum. Ein og hálf milljón Úkraínumanna er á flótta og bætist ört í hóp þeirra. Þetta er mesti flóttamannastraumur í Evrópu síðan í síðari heimsstyrjöld.
    Rússar boða enn meiri hörku. - Þeir sóttu að borgum og bæjum af miklum þunga í nótt, jafnt með stórskotahríð og flugskeytaárásum af jörðu niðri, loftárásum og flugskeytaárásum. - Úkraínsk stjórnvöld segja ljóst að rússneski herinn undirbúi nú stórsókn að höfuðborginni, Kyiv.
    Í síðari hluta þáttarins ræðum við við Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðing í málefnum Rússlands, um stöðuna í Úkraínu og framhaldið.
    En við byrjum á að heyra í rússneskum, sjálfstætt starfandi fréttamanni, - fréttaskýrandanum og álitsgjafanum Konstantín Eggert, sem flutti - eða flúði raunar - frá heimalandinu og hefur síðan starfað fyrir hina ýmsu miðla, svo sem breska ríkisútvarpið BBC og þýsku fréttaveituna Deutsche Welle. Hádegið náði tali af Eggert á árlegri ráðstefnu um Rússland, sem Baltic Defence College í Tartu í Eistlandi stendur fyrir og haldin var í síðustu viku, þar sem Konstantín var frummælandi. Hann ræddi við okkur um tildrögin að innrás Rússa í Úkraínu og þátt Vesturlandanna í þeim - og velti því upp hvaða afleiðingar innrásin getur haft í Evrópu og heimsbyggðinni allri.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Örskýring og viðbrögð íþróttasamfélagsins við innrás Rússa í Úkraínu
    Rússar réðust inn í Úkraínu í síðustu viku og eins og staðan er í dag sér ekki fyrir endann á þeim hörmungum. Á sama tíma geisar upplýsingarstríð á internetinu þar sem fölskum upplýsingum er komið á framfæri í fjölbreyttum tilgangi. Fjölmiðlar og almenningur falla í gildur sem komið hefur verið fyrir á samfélagsmiðlum en ástandið gerir það að sannreyna upplýsingar flókið og erfitt, þó einhverjir hafi sem betur fer tekið það að sér. En hvað er upplýsingastríð og hvernig er það háð? Hver er tilgangurinn með dreifingu falskra upplýsinga og hvernig dreifast þær? Atli Fannar Bjarkason skoðar málið í örskýringu vikunnar.
    Ýmis íþróttasamtök og -sambönd hafa útilokað Rússa frá allri keppni í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Samtök á borð við Alþjóða-, Evrópska- og íslenska knattspyrnusambandið, Evrópska handknattleikssambandið, Alþjóðakörfuknattleikssambandið og Alþjóða frjálsíþróttasambandið. Þá hefur Alþjóða Ólympíunefndin kallað eftir banni við þátttöku Rússa í allri alþjóðlegri íþróttakeppni og í gær tilkynnti Alþjóðanefnd fatlaðs íþróttafólks að það yrði einnig gert á Vetrarólympíumótinu, sem hófst í dag. Þess utan hafa íþróttaviðburðir sem áttu að fara fram í Rússlandi verið færðir, einstaka leikmenn hafa sýnt stuðning sinn við Úkraínu með einum eða öðrum hætti, jafnvel rússneskir íþróttamenn, eins og skákmaðurinn og stórmeistarinn Alexander Grischuk og þá hefur Rússinn og milljarðamæringurinn Roman Abramovich, eigandi enska knattspyrnufélagsins Chelsea, ákveðið að víkja, selja félagið og láta ágóðann renna til fórnarlamba stríðsins í Úkraínu. Abramovich hefur oft verið sagður náinn vinur Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, en vísar því þó sjálfur á bug. Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður ræðir við okkur um viðbrögð íþróttasamfélagsins við innrás Rússa í Úkraínu í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Úkraína: Efnahagsþvinganir og hlutleysi
    Fjöldi ríkja hefur gripið til strangra efnahagsþvingana gegn Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Efnahagslegar refsiaðgerðir sem hafa ekki sést í svo miklum mæli í seinni tíð. Og aðgerðirnar virðast strax vera farnar að hafa áhrif. Tilkynnt var um ringulreið á rússneskum fjármálamarkaði á mánudaginn, þá var kauphöllinni lokað, gengi rúblunnar hríðféll og fólk stóð í biðröðum við hraðbanka að reyna að taka út reiðufé.
    En þótt aðgerðunum sé stýrt þannig að þær hafi sem mest áhrif á stríðið í Úkraínu en sem minnst áhrif á almenning, má engu að síður búast við viðamiklum áhrifum viðskiptaþvingananna á íslenskt efnahagslíf, að sögn Sefáns Vagns Stefánssonar, formanns atvinnuveganefndar Alþingis. Afleiðingar sem fjármálaráðherra segir að Íslendingar verði að sætta sig við. Magdalena Anna Torfadóttir, hagfræðingur, viðskiptablaðamaður og sérstakur gestur Hádegisins um fjármál og efnahagsmál, ræðir við okkur um efnahagsleg áhrif innrásarinnar í fyrri hluta þáttarins.
    Jair Bolsonaro forseti Brasilíu hefur lýst yfir hlutleysi ríkisins gagnvart innrás Rússa í Úkraínu. Hann sagði þá ákvörðun tekna í þágu friðar. Leið Brasilíu til að leggja sitt af mörkum til að lausn finnist í deilunni, enda væru Brasilíumenn friðelskandi fólk sem ekki vildi að afleiðingar stríðsins bærust þangað. En hvað felst nákvæmlega í hlutleysi ríkis þegar önnur eiga í vopnuðum átökum? Er raunverulega hægt að vera hlutlaus og hvaða skilaboð sendir það? Við berum málið undir Silju Báru Ómarsdóttur, prófessor í stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Úkraína: Fólk á flótta og átökin fyrir alþjóðadómstóla
    Innrás Rússa í Úkraínu er áfram til umfjöllunar í Hádeginu. Í fyrri hluta þáttarins fjöllum við um fólk á flótta frá átökunum, en um tvær milljónir Úkraínumanna hafa yfirgefið heimili sín síðan Rússar réðust inn í landið á fimmtudag. Tuttugu Úkraínumenn hafa þegar sótt um alþjóðlega vernd hér á landi og dómsmálaráðherra segir að Úkraínumönnum standi allar dyr opnar hér á landi. Við berum fólksflóttann undir Gunnar Hrafn Jónsson, sérfræðing Hádegisins í málefnum stríðsátaka.
    Í seinni hluta þáttarins ræðir doktor Þórdís Ingadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík og sérfræðingur í alþjóðalögum, við okkur um innrásina í þjóðarréttarlegu samhengi - það er að segja -baráttu Úkraínumanna fyrir dómstólum. En Úkraínsk stjórnvöld hafa þegar fært innrás Rússa fyrir alþjóða- og Evrópudómstóla og þá hefur saksóknari hjá Alþjóðlega sakamáladómstólnum, ICC, sagst munu hefja rannsókn á innrásinni og átökunum, þar á meðal stríðsglæpum og glæpum gegn mannkyni.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Kjarnorkuviðbúnaður Pútíns
    Vladimír Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði innrás Rússa í Úkraínu á fimmtudaginn. Síðan þá hafa hundruð úkraínskra hermanna og almennra borgara verið myrtir, hundruð þúsunda Úkraínumanna, minnst hálf milljón, hefur þurft að flýja heimili sín á sama tíma og biðin eftir að komast úr landi lengist, gríðarmikil eyðilegging blasir við í Donetsk, sprengjum rignir yfir íbúðasvæði í Kharkiv og víðar um landið, herlið Rússa færir sig upp á skaftið, hefur tekist að umkringja borgina Kherson í suðurhluta Úkraínu eftir harða atlögu næturinnar. Gríðarlöng fylking farartækja rússneska hersins nálgast Kænugarð óðfluga og borgarbúar búa sig undir að árásir rússneskra herja þyngist mjög. Þá stendur til að rannsaka hvort herlið Rússa hafi framið stríðsglæpi, svo sem í árás Rússa á Kharkiv.
    Innrás Pútíns stigmagnast ört. Forsetinn setti kjarnorkuvopnasveitir í viðbragðsstöðu á sunnudaginn, við litla ánægju alþjóðasamfélagsins. Í seinni hluta þáttarins ræðum við við Friðrik Jónsson, sérfræðing í öryggis- og varnarmálum, um hvaða þýðingu kjarnorkuhótanir Rússlandsforseta hafa. En við hefjum þáttinn á að fara yfir þessa fyrirskipun forsetans, afleiðingar hennar og aðdraganda.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Úkraína eftir innrás
    Í þætti dagsins fjöllum við um það sem er flestum efst í huga um þessar mundir - innrás Rússa í Úkraínu. Við höfum fylgst náið með tildrögum innrásarinnar, framvindunni og stöðunni að undanförnu í Hádeginu. Í dag, í sérstöku Hádegisinnslagi, beinum við sjónum okkar að aðeins annarri hlið innrásarinnar: Fólkinu í landinu. Íbúum Úkraínu og áhrifum innrásarinnar á þá.
    Anna Gyða Sigurgísladóttir dagskrárgerðarkona komst í samband við nokkur úkraínsk ungmenni á föstudaginn, þegar rétt rúmur sólarhringur var liðinn frá innrásinni. Hún ræddi við þau um stöðuna í landinu, næstu skref og áhrifin sem innrásin hefur á líðan þeirra og aðstæður. Ungmennin eiga það flest sameiginlegt að búa í höfuðborg Úkraínu, Kyiv, eða Kænugarði; eða í grennd við höfuðborgina. Þó höfðu þau öll ólíkar sögur að segja, lýstu mismunandi upplifunum og afdrifum í kjölfar innrásarinnar.
    Anna Gyða spyr: Hvernig var sólarhringurinn eftir að Rússar lýstu yfir stríði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…