Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Saga útvarpsins og yfirvofandi innrás Rússa í Úkraínu
    Í gær var alþjóðlegur dagur útvarps - og við hér í Hádeginu höldum daginn hátíðlegan degi síðar með því að líta stuttlega yfir sögu útvarpsins og mennina á bak við öldur ljósvakans.
    Anthony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna varaði við því á föstudaginn að innrás Rússa inn í Úkraínu væri yfirvofandi, og gæti gerst á næstu dögum, þrátt fyrir ítrekuð loforð Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta að ekkert slíkt sé á döfinni. Þá hét Blinken Úkraínumönnum fullum og kröftugum stuðningi láti Rússar verða af innrás í landið. Rússneskar hersveitir eru nú allt umhverfis landið, ef frá er talinn vesturhluti landsins sem á landamæri að ríkjum Evrópusambandsins. Bandaríkjamenn eru byrjaðir að kalla heim starfsfólk sendiráðsins í Úkraínu. Mörg ríki hafa beðið alla ríkisborgara að yfirgefa Úkraínu, til dæmis Þjóðverjar, Bretar, Norðmenn og Danir. Pútín og Joe Biden, Bandaríkjaforseti, ræddu saman í síma á laugardag, en símtalið er sagt hafa litlu skilað. Jón Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Rússlands, er gestur Hádegisins í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Örskýrðir kjúklingavængir og vetrarólympíuleikar
    Við byrjum þátt þessa föstudags á örskýringu í boði Atla Fannars Bjarkasonar. Í örskýringum sínum leitast Atli Fannar við að útskýra flókin og oftar en ekki furðuleg fyrirbæri á sem einfaldastan hátt - og í dag er viðfangsefnið kannski í óvenjulegri kanntinum. Aðfaranótt mánudags mætast Cincinnati Bengals og Los Angeles Rams í úrslitaleik NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta, eða Ofurskálinni eins og leikurinn er kallaður. Ofurskálin er ekki bara íþróttaviðburður, heldur risavaxið hagkerfi þar sem tugir milljóna horfa á dýrustu auglýsingar heims í dýrasta auglýsingaglugga heims og háma í sig amerískt snarl; tortilla-flögur, ídýfu, sælgæti og það allra mikilvægasta: Kjúklingavængi með nóg af gráðaostasósu.
    En bíðum aðeins hæg - ætlum við að örskýra kjúklingavængi? Svarið er: já. Íslendingar munu háma í sig þúsundir kjúklingavængja á sunnudagskvöld og aðfaranótt mánudags og við verðum bara að vita af hverju. Hvernig hófst þetta allt saman - og af hverju djúpsteikjum við kjúklingavængi, hjúpum þá með sterkri sósu og dýfum þeim svo í gráðaostasósu?
    Vetrarólympíuleikarnir í Peking eru nú fullum gangi en vika er síðan leikarnir voru settir. Íslensku keppendurnir hafa sumir hverjir stigið á stokk, aðrir eru í einangrun vegna covid-19 en fá vonandi að spreyta sig í næstu viku. Í síðari hluta þáttarins lítur Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður, og helsti sérfræðingur RÚV um vetraríþróttir, við og ræðir við okkur um frammistöðu íslensku keppendanna hingað til á mótinu og hvað hefur vakið mesta eftirtekt á leikunum það sem af er.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Microsoft kaupir AB og áhrif mótmæla á heilbrigðisstarfsfólk í Kanada
    Í dag fjöllum við um viðskiptalegu hliðarnar á því sem er að gerast í tölvuleikjaheimum, og hjá samfélagsmiðlum, en hlutabréf í stærsta samfélagsmiðli heims, Facebook, hafa hríðfallið að undaförnu; og daglegum notendum Facebook fækkaði í síðustu viku í fyrsta sinn fra?stofnun fyrirtækisins fyrir átján árum sína. Við ræðum um Facebook og þann ólgusjó sem Mark Zuckerberg og félagar standa í núna. En við ætlum að byrja í tölvuleikjaheiminum. Þar dró til mikilla tíðinda nýverið ekki satt þegar hugbúnaðarrisinn Microsoft festi kaup á Axtivation Blizzard. Hvað þýðir þetta og hvað er Activaiton Blizzard? Kristjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur Hádegisins, svarar því.
    Sóttvarnaaðgerðum í Kanada hefur verið harðlega mótmælt þar í landi að undanförnu. Upphafleg mótmæli vöruflutningabílstjóra, vegna bólusetningarskyldu við landamæri Bandaríkjanna, í höfuðborginni Ottawa í lok janúar hafa undið upp á sig - breiðst út víða um landið og jafnvel heiminn og þróast út í almennari, fjölmenn og langvarandi mótmæli gegn sóttvarnaaðgerðum. Í borginni Vancouver beinast mótmælin ekki síst að sjúkrastofnunum og heilbrigðisstarfsfólki - og þótt þau hafi að mestu verið talin friðsöm - hefur starfsfólk innan heilbrigðiskerfisins verið áreitt, þeim ógnað og jafnvel hefur verið veist að þeim. Heilbrigðisyfirvöld hafa því kallað eftir því að heilbrigðisstarfsfólk haldi sig innandyra, klæðist ekki vinnufatnaði eða beri starfsmannaskírteini utan vinnustaðarins. Við förum yfir stöðuna í seinni hluta þáttarins og ræðum þá við Elísabetu Herdísar Brynjarsdóttur hjúkrunarfræðing og meistaranema í Vancouver.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Átök um drykkjarvatn yfirvofandi og stýrivaxtahækkun SÍ
    Ný skýrsla frá Evrópusambandinu varar við yfirvofandi átökum í Miðausturlöndum vegna skorts á drykkjarvatni. Tyrkir, Sýrlendingar og Írakar deila mikilvægum vatnslindum sem fara ört þverrandi. Sérfræðingar segja að hættan felist ekki síst í örum fólksflutningum eftir því sem deilur um þessa auðlind harðna á svæðinu, þá muni loftslagsbreytingar aðeins auka flóttamannastrauminn til Evrópu. Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamaður og sérfræðingur í málefnum miðausturlanda kíkti við í Hádeginu.
    Í ljósi vaxandi verðbólgu ákvað Peningastefnunefnd Seðlabankans að hækka í dag stýrivexti um núll komma sjötíu og fimm prósentustig, líkt og spár höfðu raunar gert ráð fyrir að undanförnu. En Seðlabankinn spáir fimm prósenta verðbólgu á þessu ári, sem er tvöfalt verðbólgumarkmið bankans. Bankinn gerir þá ráð fyrir enn meiri verðbólgu á fyrsta ársfjórðungi, eða fimm komma átta prósentum. Ýmsir höfðu þó kallað eftir því að bankinn færi ekki þessa stýrivaxtahækkunar-leið - eins og forseti Alþýðusambands Íslands - sem sendi Peningastefnunefnd bréf þess efnis í gær. Í seinni hluta þáttarins ræddi Már Wolfgang Mixa, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, við okkur um tildrög og áhrif vaxtahækkunarinnar.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Indverski næturgalinn og spennan magnast í Úkraínu
    Lata Mangeshkar næturgali Bollywood er látin, níutíu og tveggja ára að aldri. Hin margverðlaunaða Mangeshkar, sem hefur tekið upp tugþúsundir sönglaga á minnst þrjátíu og sex tungumálum á löngum ferli sínum, er af mörgum talin umfangsmesta söngkona heims, meira að segja af heimsmetabók Guinnes um skeið. Þótt hún sé helst þekkt fyrir áhrifamikla söngrödd sína kom Mangeshkar víða við um ævina: hannaði skart, stofnaði spítala, og sinnti þingmennsku. Hennar er nú minnst víðsvegar um heim og tveggja daga þjóðarsorg var lýst yfir á Indlandi, heimalandi stórsöngkonunnar, sem meðal annars var þekkt sem drottning melódíunnar og rödd árþúsundsins.
    Sennan á landamærum Rússlands og Úkraínu eykst með degi hverjum. Yfir 125 þúsund rússneskir hermenn eru við landamærin, en Rússar segjast þó ekki vera að undirbúa innrás. Bandaríkjastjórn hefur heitið því að loka yfir nýja gasleiðslu frá Rússlandi til Þýskalands fari svo að Rússar láti til skarar skríða. Emannuel Macron forseti Frakkalands og Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, hittust í Moskvu í gær og fóru yfir stöðuna. Fundurinn gaf tilefni til bjartsýni, en ferðalagi Macrons um Bjarmalönd er þó ekki lokið, því í dag ræðir hann við Volodómír Selenskí Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu - en óhætt er að segja að það andar köldu á milli hans og Pútíns. Við skoðum þessa flóknu deilu í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Drottning í sjötíu ár og helmingur barna fær sendar nektarmyndir
    Elísabet Englandsdrottning hélt í gær upp á sjö áratuga starfsafmæli, en í gær voru sjötíu ár frá því faðir hennar, Georg fimmti, féll frá og Elísabet varð að þjóðhöfðingja Bretlands og breska heimsveldisins. Drottningin fékk sér köku í tilefni dagsins, og sendi breskum almenningi vinsamlega áminningu um hvernig þau eigi að haga sér - eftir að hún fellur frá.
    Meira en helmingur stelpna á aldrinum þrettán til átján ára hefur fengið sendar nektarmyndir gegnum netið. Um tíu prósent unglinga í grunnskóla hafa sent af sér nektarmynd og fjórðungur unglinga í framhaldsskóla. Langalgengast er að börnin þekki ekki þann sem sendir myndirnar eða biður um þær, eða í sjötíu prósent tilvika. Þetta er á meðal niðurstaða nýrrar könnunar fjölmiðlanefndar um börn og netmiðla, sem lögð var fyrir tæplega sex þúsund grunn- og framhaldsskólanema á aldrinum níu til átján ára um land allt. Í seinni hluta þáttarins segir Skúli Bragi Geirdal, verkefnastjóri hjá fjölmiðlanefnd, okkur nánar frá því hvað könnunin segir okkur um stöðuna í þessum efnum hér á landi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Hvernig græðir Spotify og vetrarólympíuleikarnir
    Streymisveitan Spotify hefur verið í umræðunni undanfarna daga vegna útspils kanadíska rokkhundsins Neil Young. Hann lét fjarlægja tónlist sína af Spotify til að mótmæla því að Joe nokkur Rogan fengi að halda hlaðvarpi sínu úti þar. Rogan hefur verið sakaður um að dreifa fölskum upplýsingum um bólusetningar til 11 milljón hlustenda sinna og Young tók því ekki þegjandi og hljóðlaust. Fólk verður því að leita annað til að hlusta á Keep On Rockin? In The Free World og Harvest Moon.
    En við ætlum ekki að dvelja við þessa deilu í örskýringu vikunnar heldur kafa aðeins dýpra ofan í Spotify. Hvernig virkar það og hvernig fær tónlistarfólk greitt? Fær það yfirhöfuð eitthvað greitt, hversu mikið og fyrir hvað?
    Vetrarólympíuleikarnir verða settir í Peking nú í hádeginu. Ísland á fimm keppendur á leikunum í ár. Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður, leiðir okkur í allan sannleikan um ólympíuleikana í ár hér í síðari hluta þáttarins; hverjum við eigum að fylgjast með og hversu líklegir íslensku keppendurnir eru til afreka.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…