Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Horfur á húsnæðismarkaði og Björgvin Páll talar úr einangrun
    Íbúðaverð hækkaði um rúm fimmtán prósent á síðasta ári og í nóvemeber seldust tæplega helmingur íbúða yfir ásettu verði, samkvæmt upplýsingum úr mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem út kom á dögunum. Hagfræðingar nefna að á meðan regið hefur verulúega úr íbúðum í sölu er eftirspurn eftir þeim gríðarleg. Staðan er sérstaklega slæm á höfuðborgasvæðinu. Magadelna Torfadóttir, viðskiptablaðamaður á Fréttablaðinu, stjórnandi Markaðarins á Hringbraut og umsjónarmaður Fjármálakastsins sest niður með okkur í fyrri hluta þáttarins og ræðir horfur á húsnæðismarkaði.
    Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir frændum okkar Dönum í fyrsta leik í milliriðli á Evrópumótinu í handbolta í kvöld. Íslenska liðið spilaði feykivel í riðlakeppninni og vann alla sína leiki, en það er í fyrsta sinn sem strákarnir okkar ná því afreki á stórmóti í handbolta. En Danir eru góðir í handbolta, heimsmeistarar og þar er valinn maður í hverju rúmi, og því við ramman reip að draga í kvöld. Og sú barátta varð enn erfiðarði í morgun þegar fjölmiðlar greindu frá því að þrír lykilmenn í íslenska liðinu, Evar Örn Jónsson, Ólafur Andrés Guðmundsson og markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson, hefðu greinst með kórónuveiruna í gær. Þeir verða í eingangrun næstu fimm daga og missa því næstu leikjum liðsins. Ef það voru í ekki nægilega slæmar fréttir í sjálfu sér, áttu þær eftir að versna enn frekar. Nú rétt fyrir hádegi var greint frá því að fyrirliði liðsins, Aron Pálmarsson, og hornamaðurinn Bjarki Már Elísson, hefðu báðir fengið jákvæða niðurstöðu úr Covid-19 hraðprófi. Við slóum á þráðinn til Björgvins Páls þar sem hann tók því rólega á hótelbergi í Búdapest, í degi eitt af fimm í einangrun, og ræddi við hann um þessi nýjustu tíðindi og möguleika vængbrotins íslensks liðs gegn heimsmeisturum Dana. Við heyrum í Björgvini Páli í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ráðist á SAF og Ragnar Freyr um nýja nálgun gagnvart Omikron
    Drónaárásir á olíuvinnslustöðvar og flugvöll í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hefur komið ráðamönnum þar í opna skjöldu. Fréttaskýrendur segja árásirnar, sem eru þær fyrstu á ríkið í meira en þrjú ár, sýni að ríkið sé í raun minna og meira veikburða fyrir utanaðkomandi ógnum en leiðtogar hafa viljað af láta. Aðrir telja að árásirnar gætu jafnvel neitt furstadæmin að samningaborðinu til að koma á friði við Íran. Gunnar Hrafn Jónsson blaðamaður og sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda, ræðir við okkur um þessa árás og hvað hún þýðir fyrir stríðið í Jemen.
    Nærri fimmtán hundruð greindust með kórónuveiruna í gær, sem er næstmesti fjöldi smita á einum degi frá upphafi faraldursins. Helmingur þeirra var í sóttkví. Þrátt fyrir þennan mikla fjölda smita hefur sjúklingum með COVID-19 fækkað á Landspítala, þeir eru nú 33 og hafa ekki verið færri síðan í byrjun mánaðarins.Skólar eru opnir, en barir og skemmtistaðir lokaðir, þrátt að fyrir að nær helmingur þeirra sem nú greinast eru börn, og kannski einmitt þess vegna. Þeir veitingastaðir, sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma vegna sóttvarnaaðgerða og hafa orðið fyrir minnst 20 prósent tekjufalli á tímabilinu frá desember 2021 til og með mars 2022, geta fengið styrk frá ríkinu, samkvæmt nýju frumvarpi fjármálaráðherra. Líkleg heildaráhrif frumvarpsins á ríkissjóð eru metin á um 1,5 milljarða þótt hámarkið sé talið vera kringum 3 milljarða. Á meðan berst Landsspítali áfram í bökkum.Sitt hverjum þó um hvort stjórnvöld séu að bregðast rétt við útbreiðslu Omikron afbrigðisins hér á landi. Einn þeirra er Ragnar Freyr Ingvarsson, lyflæknir og fyrrum yfirmaður covid-göngudeildar á Landsspítalanum. Við ræðum við Ragnar í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Listamannalaun og fyrsti leikur Íslands á EM
    Á hverju ári, um það leyti sem við komumst að niðurstöðu um áramótaskaupið tilkynnir Alþingi hvaða listamenn fá hin svokölluðu listamannalaun. Fréttir um þessa ráðstöfun vekja alltaf mikla athygli og í kommentakerfunum er tekist á; af hverju fékk þessi laun en ekki hinn? Af hverju fékk þessi aftur og hinn ekki meira? Og svo lífseigasta spurningin: Af hverju listamannalaun? En hvað eru listamannalaun, hversu há eru þau og hvaða hópar listamanna fá þau í vasann? Eru listamannalaun búin að vera til lengi og höfum við alltaf rifist um þau? Við skulum skoða málið í örskýringu vikunnar og það skal tekið fram að vinna við þessa örskýringu var alfarið fjármögnuð af skattgreiðendum. Í örskýringu vikunnar með Atla Fannar Bjarkasyni köfum við ofan í kjölinn á listamannlaunum.
    Í síðari hluta þáttarins sláum við á þráðinn til Einars Arnar Jónssonar íþróttafréttamanns, sem er staddur í Búdapest í Ungverjalandi. Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur leik á Evrópumótinu í dag. Leikið er í Ungverjalandi og Slóvakíu og mæta strákarnir okkar kollegum sínum frá Portúgal. Leikurinn hefst 19:30 og er í beinni útsendingu á RÚV og þá hefst EM stofan klukkan 19:15.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Stafrænir hirðingjar og hamingjan
    Á síðustu árum hefur það færst í aukanna að fólk, sem hefur tök á því, sinni vinni sinnu heiman frá, úti á kaffihúsi, nú eða bara hvar sem er. Vopnuð fartölvu og fjarfundarbúnaði eru svokölluðum stafrænum flökkörum, eða hirðingjum, sem er tilraun til þýðingar á fyrirbærinu ?digital nomands,? allir vegir færir. Kristjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur Hádegisins og þáttastjórnandi UT hlaðvarps Ský ræðir við okkur um þessa nýju stétt fólks.
    Í síðari hluta þáttarins ætlum við að ræða um hamingjuhugtakið. Katrín Ásmundsdóttir ræðir við Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, sviðsstjóra lýðheilsu hjá embætti landlæknis, hvar hamingjuna sé að finna og hvernig hægt sé að halda í hana. Hversu hamingjusöm erum við hér á landi? Og hvaða áhrif hefur heimsfaraldur haft á gleði og ánægju almennings?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Jórdanía, Tyrkland og vopnasala
    Í fyrri hluta þáttarins er rætt við Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamann og sérfræðing í málefnum Mið-Austurlanda um umdeilt frumvarp í Jóradínu, og síversnandi efnahagsástand í Tyrklandi.
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um vopnasölu í miðjum heimsfaraldri og heyrum þá pistil Katrínar Ásmundsdóttur sem var frumfluttur í síðasta mánuði. Hundrað stærstu vopnaframleiðendur heims högnuðust á síðasta ári. Í árlegri úttekt Alþjóða friðarrannsóknarstofnunarinnar í Stokkhólmi kemur fram að hagnaður þeirra hafi numið um einu komma þremur prósentum á sama tíma og efnahagur heimsins dróst saman um þrjú prósent. Ríkisstjórnir heimsins virðast því ekki hafa séð tilefni til þess að skera niður í vopnakaupum í Covid-kreppu. Jafnvel þvert á móti - því samkvæmt úttektinni hafa sum ríki gripið til aðgerða til verndar og stuðnings vopnaframleiðendum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Maður fær hjarta úr svíni og framtíð ferðaþjónustunnar
    Bandaríkjamaður á sextugsaldri varð fyrir helgi fyrsti líffæraþeginn til að fá grætt í sig hjarta úr erfðabreyttu svíni. Þremur dögum eftir aðgerðina vegnar honum vel að sögn lækna við sjúkrahús Maryland-háskóla í Bandaríkjunum í dag. Of snemmt er að segja til um hvort aðgerðin hafi heppnast vel að þeirra sögn.
    Áhrifa kórónuveirufaraldursins gætir víða. Heilu samfélögin liggja nú hálfpartinn niðri í kjölfar omikron afbrigðisins svokallaða, og hér á landi eru þúsundir í eingangrun eða sóttkví. Um tíma lágu meira og minna allar flugsamgöngur niðri og túrismi í algjöru lágmarki. Ferðamenn hafa verið ein helsta tekjulind íslensku þjóðarinnar síðustu ár og því ljóst áhrif kórónuveirunnar á ferðaþjónustuna hefur höggið stórt skarð í þjóðarbúið. En engu að síður hafa ferðamenn gert sér ferð til Íslands, sumir er hér meira að segja ennþá. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar lítur við í síðari hluta þáttarins og ræðir áhrif veirunnar á ferðaþjónustuna, og horfur í ferðaþjónustu fyrir árið 2022.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Óöld í Kasakstan og ASÍ í mál við ríki og sveitarfélög
    Að minnsta kosti 164 féllu í mótmælunum í Mið-Asíuríkinu Kasakstan í liðinnu viku. Frá þessu greina fjölmiðlar í landinu, en óttast er að mun fleiri hafi látist. Netsamband komst aftur á í Almaty, fjölmennustu borg Kasakstan, í morgun, eftir nær fimm sólarhringa sambandsleysi. Rússneskir hermenn eru komnir til landsins til að aðstoða stjórnvöld við að berja niður mótmælin, við litla hrifingu Bandaríkjastjórnar.
    Verkalýðshreyfingin fyrirhugar í málsókn gegn ríki og sveitarfélögum vegna ólíkrar túlkunar á greiðslu í sóttkví í orlofi. Fjöldi mála hefur borist inn á borð hreyfingarinnar þar sem bæði uppsagnir og launamál tengjast kórónuveirufaraldrinum. Málið snýst aðallega um frídagaa vegna sóttkvíar í orlofi, sem eru ekki túlkaðir með sama hætti hjá ríki og sveitarfélögum annars vegar og hjá verkalýðshreyfingunni hins vegar. Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, lítur við í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • EM í handbolta á næsta leiti
    Hádegið er í styttra lagi þennan föstudaginn vegna kórónuveirunnar skæðu. Við ræðum við Einar Örn Jónsson íþróttafréttamann um vonir og væntingar þjóðarinnar til íslenska karlalandsliðsins í handbolta, sem tekur þátt í Evrópumótinu sem hefst í næstu viku í Ungverjalandi. Liðið er í riðli með Portúgölum, Hollendingum og heimamönnum Ungverjum. Mótið hefst næstkomandi föstudag.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Horfur á hlutabréfamarkaði og ár frá árásinni á þinghúsið
    Við hefjum þáttin í dag á nýjum lið í Hádeginu: efnahags- og fjármálum. Magdalena Anna Torfadóttir hagfræðingur og sérfræðingur í fjármálum fyrirtækja verður fastur gestur næsta misserið. Hún er blaðamaður á Fréttablaðinu og umsjónarmaður Markaðarins á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Þá er hún einnig umsjónarmaður hlaðvarpsþáttins Fjármálakastið. Í dag fjöllum við um horfur á mörkuðum á komandi ári, og hvernig síðasta ár leit út.
    Í dag er ár frá því að stór hópur æstra stuðnignsmanna Donalds Trumps réðist inn í þinghúsið í Washington í Bandaríkjunum, með þeim afleiðingum að fimm létust. Atburðir þessa örlagaríka dags áttu eftir að marka djúp spor í bandarísku samfélagi, hjá þjóð sem skiptist í tvennt, bókstaflega, á skrautlegri forsetatíð Donalds Trump. Forsetinn fyrrverrandi sætir nú rannsókn af hálfu rannsóknarnefndar Bandaríkjaþings fyrir aðild sína að uppþotunum, en Trump þótti hvetja stuðningsmenn sína til að taka kjöri Joe Bidens í forsetakosningunum tveimur mánuðum áður, ekki þegjandi og hljóðalaust.
    Í síðari hluta þáttarins rifjum við þennan örlagaríka dag í bandarísku samfélagi upp með þeim Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í stjórnmálafræði og Guðmundi Hálfdánarsyni, forseta Hugvísindasviðs.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Drónaársir og áhrif sáttargerðar á Andrés prins
    Stríðið gegn hryðjuverkum sem George W. Bush lýsti yfir í kjölfar hryðjuverkaárásanna þann 11. september 2001 hefur gengið forseta á milli alla tíð síðan. Drónahernaður hefur gegnt lykilhlutverki í því stríði. Hundruð almennra borgara hafa verið drepin í drónaárásum Bandaríkjahers, árásum sem herinn hefur oft reynt að afneita þar til rannsóknarblaðamenn hafa leitt sannleikann í ljós. Ný skýrsla sem bandaríski herinn vann fyrir varnarmálaráðuneytið og lekið var í New York Times, dregur upp dökka mynd af drónaárásum Bandaríkjahers. Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamaður og sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda, ræðir við okkur um málið.
    Storminum í kring um bandaríska milljarðamæringinn og kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein slotar ekki. Ekki heldur þótt hann sé horfinn úr sögunni. Þrátt fyrir að ásakanir um kynferðisofbeldi og barnaníð hafi fyrst komið fram á hendur Epstein snemma á þessari öld eru enn nú, árið 2022 hraðar vendingar í málinu. Á aðeins örfáum dögum er nú búið að sakfella Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærustu Epsteins, fyrir hennar þátt í málinu, sýkna fangaverðina tvo sem voru á vakt daginn sem Epstein lést í fangaklefa sínum, og opinbera sáttagerð milli Virginiu Guiffre og Epsteins frá 2009 sem lið í einkamáli Guiffres gegn Andrési hertoga af Jórvík, sem hún sakar um gróft kynferðislegt ofbeldi. Við skoðum sáttagerðina og málaferlin nánar í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…