Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Holmes í steininn og harkalegt útgöngubann í Kína
    Hinn þrjátíu og sjö ára gamli frumkvöðull Elisabeth Holmes, stofnandi tæknifyrirtækisins Theranos var í gær sakfelld af kviðdómi í Kaliforníu fyrir fjársvik og á nú yfir höfði sér áratuga fangelsisvist. Milljarðaveldi Holmes hrundi á skömmum tíma þegar í ljós kom að tæknin sem hún fullyrti að myndi valda straumhvörfum í heilbrigðismálum virkaði ekki. Kviðdómendur sakfelldu Holmes meðal annars fyrir að hafa svikið fé út úr fjárfestum vísvitandi þrátt fyrir að hafa vitað, eða mátt vita, að tæknin sem fyrirtækið átti að vera að þróa - sérstaka blóðskimunargræju sem átti að geta framkvæmt hundrað blóðrannsóknir með aðeins einum blóðdropa - virkaði ekki og hefði raunar aldrei virkað. Katrín tekur nú við.
    Íbúar í borginni Yuzhou í Henan-héraði í Kínai, borg sem telur eina komma þrjár milljónir íbúa, var gert að sæta útgöngubanni á mánduag. Ástæðan er sú að heil þrjú Covid smit höfðu greinst í borginni, og voru allir sem greindust einkennalausir. Í næsta mánuði fara vetrarólympíuleikarnir fram í Pekíng, fjölmennustu borg Kína. Héraðsstjórar og borgarstjórar út um allt land eru á tánum vegna þessa, þar sem þeir hafa fengið skýr skilaboð frá yfirstjórn kínverska kommúnistaflokksins. Þá hafa íbúar borgarinnar Sían, þrettán milljónir talsins, sætt útgöngubanni frá því á Þorláksmessu. Sitt sýnist hverjum um aðferðir stjórnvalda til að sporna við útbreiðslu veirunnar. Við skoðum málið í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Flóttinn til Norður-Kóreu og lagabreytingar og verðhækkanir á nýju ári
    Við byrjum á Kóreuskaganum. Óvænt tíðindi bárust íbúum Suður-Kóreu á nýjarsdag þegar greint var frá því að manni hafði tekist að komast yfir landamærin til Norður-Kóreu. Afar fátítt er að fólk komist yfir landamærin, hvað þá að það fari frá Suður-Kóreu yfir til Norður-Kóreu, en frá síðarnefnda landinu hefur yfir þrjátíu þúsund manns tekist að flýja frá lokum Kóreustríðsins 1953.
    Nýju ári - nýjum tímamótum - fylgir gjarnan allskonar nýtt - allskonar breytingar: Áramótaheit eru strengd, markmið sett, vonir og væntingar gerðar. En áramótum fylgja líka samfélagslegar breytingar: Ný lög, lagabreytingar, verðhækkanir, útsvarsbreytingar, launahækkanir og jafnvel kjarasamningar. Við rennum yfir helstu breytingar á nýju ári í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Tækniárið 2021 og Maxwell fundin sek í New York
    Í fyrri hluta þáttarins lítur tæknisérfræðingur Hádegisins, Kristjana Björk Barðdal, við og fjallar um það helsta sem nýjasta tækni og vísindi færðu okkur á árinu 2021.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Bandaríkjanna. Í gær dró til tíðinda í New York þegar auðkonan Ghislane Maxwell, fyrrum ástkona bandaríska auðkýfingsins og barnaníðingsins Jeffreys Epstein, var fundin sek um mansal í kviðdómi, og fyrir að hafa aðstoðað Epstein við glæpi hans. Málið gæti haft áhrif á Andrés Bretaprins, en Virginia Guiffre, eitt fórnarlamba Epsteins, hefur höfðað mál á hendur prinsinum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Hamingja og von árið 2021
    Nú er árið 2021 alveg að líða undir lok. Á slíkum tímamótum líta margir yfir farinn veg - taka stöðuna á árinu sem er að líða og hafa kannski ákveðnar hugmyndir um nýtt ár eða væntingar til þess. Eftir svona ár eins og 2020 og 2021 þá bíða kannski margir betri og bjartari Covid-lausra tíma. Það má alltaf vona - hvað þá á tímamótum eins og áraskiptum.
    En eitthvað virðist ganga á þessa von - það leiðir að minnsta kosti árslokakönnun Gallup International í ljós. Nú telja víst aðeins um fjörutíu prósent heimsins að nýtt ár verði betra en það síðasta. Næstum þrjátíu prósent búast við verra ári og tæplega þrjátíu prósent að árið 2022 verði svipað eða eins og 2021. Niðurstöður könnunarinnar voru svipaðar í fyrra en árin á undan var bjartsýnin talsvert meiri fyrir nýju ári. Árið 2008 heldur þó samt titlinum svartsýnasta ár aldarinnar.
    Í fyrri hluta þáttarins ætlum við að skoða árslokakönnun Gallups um hamingju og von á árinu 2021 - ári sem óneitanlega einkenndist af heimsfaraldri og alvarlegum afleiðingum hans, eins og efnahagsþrengingum. Og niðurstaða könnunarinnar ber þess merki. Samkvæmt henni hefur árið sem nú er að líða einkennst af minni hamingju en árið á undan.
    Árslokakönnun Gallup International er elsta alþjóðlega könnun heims. Þar eru skoðaðar væntingar til efnahagsástands og velsældar á nýju ári á heimsvísu - von og bjartsýni jarðarbúa og hamingja heimsins. Í ár tóku fjörutíu og fjögur ríki þátt í könnuninni og svöruðu rúmlega fjörutíu þúsund manns.
    Í seinni hluta þáttarins skoðum við hamingjuna - hugtakið sjálft - og spyrjum Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, sviðsstjóra lýðheilsu hjá embætti landlæknis, hvar hana sé að finna og hvernig hægt sé að halda í hana. Hversu hamingjusöm erum við hér á landi? Og hvaða áhrif hefur heimsfaraldur haft á gleði og ánægju almennings?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Tutu og spenna við landamæri Rússlands og Úkraínu
    Desmond Tutu, friðarverðlaunahafi Nóbels og fyrrverandi erkibiskup í Suður-Afríku, lést á sunnudaginn, níræður að aldri. Vikulöng þjóðarsorg er í Suður-Afríku honum til heiðurs og efnt hefur verið til fjölda minningarathafna um landið allt. Tutu verður svo jarðsettur í Höfðaborg á nýársdag. Hans er minnst sem friðsömum baráttumanni sem barðist gegn aðskilnaðarstefnu og öllu óréttlæti. Cyril Ramaphosa, forseti Suður-Afríku tilkynnti um andlát erkibiskupsins. Hann sagði hann raunsæjan föðurlandsvin sem ætti sér enga hliðstæðu. Við fjöllum um manninn og lífshlaup hans í fyrri hluta þáttarins.
    Í seinni hluta þáttarins er rætt við Val Gunnarsson, sagnfræðing og rithöfund, um eldfima stöðu sem upp er komin við landamæri Rússlands og Úkraínu. En Úkraína, Bandaríkin og Evrópusambandið óttast yfirvofandi innrás tuga þúsunda rússneskra hermanna jafnvel strax á næsta ári. Og G7-ríkin hafa þegar varað Rússa við afleiðingum, verði af innrásinni. Rússnesk yfirvöld hafna hins vegar öllum slíkum ásökunum og segja þær til marks um Rússafælni. Reiknað er með að viðræður milli Bandaríkjanna og Rússlands hefjist snemma á nýju ári, sem og viðræður milli aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Heimsfaraldur og eldgos
    Það er óhætt að segja að tvennt hafi staðið upp úr á árinu og tekið yfir nær alla fjölmiðlaumfjöllun: COVID-19 heimsfaraldur og eldgos í Fagradalsfjalli. Nú kannski vonuðust margir eftir því að með árinu sem brátt er nú búið - færi Covid líka. En það virðist ekki ætla að vera raunin. Aldrei hefur verið meira um smit en einmitt nú - smitmet eru slegin dag eftir dag og allt að tveggja tíma bið er eftir sýnatöku.
    Væntingar til eldgossins voru kannski aðeins aðrar - í tilfelli þess óttuðust kannski margir að náttúrusjónarspilinu yrði lokið með árinu sem er að líða - enda lítið að frétta af því undanfarið. Þar til nú. Mikil skjálftavirkni hófst við Fagradalsfjall 21. desember, sem enn stendur yfir. Bara í gær voru hátt í þrjú þúsund skjálftar á Reykjanesskaga. Og nú segja náttúruvársérfræðingar líkur á eldgosi vera að aukast. Við spyrjum Kristínu Jónsdóttur jarðskjálftafræðing og hópstjóra náttúruvárvöktunar á Veðurstofunni nánar út í hugsanlegt gos í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Omicron og saga jólasveinsins
    Strangar sóttvarnareglur verða hér á landi yfir hátíðarnar, en ríkisstjórnin tilkynnti þær í gær. Ástæðan er hröð útbreiðsla hins bráðsmitandi Omicron-afbrigðis kórónuveirunnar. En það er ekki bara á Íslandi sem Omicron-afbrigðið hefur mikil áhrif á líf fólks yfir jólahátíðina.
    Nú er farið að líða að jólum fyrir alvöru. Af því tilefni - og þar sem þetta er síðasta Hádegið fyrir jól - ætlum við að rekja upprunasögu merks manns - eða merkra manna - jólasveinanna. Þeirra sem skilja eftir varning og gotterí í skóm barna í aðdraganda jóla. Vekja gleði en líka stundum ugg. Við skoðum tilurð þeirra, tilgang og áhrif í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Nýr forseti Síle og tekið á móti afgönskum flóttamönnum
    Gabriel Boric er næsti forseti landsins eftir sigur í síðari umferð forsetakosninganna í landinu. Þessi 35 ára gamli lögfræðingur á ærið verk fyrir höndum, að sameina klofna þjóð í landi þar sem bilið milli ríkra og fátækra hefur aukist gríðarlega undanfarin ár. Hann er eins ólíkur fyrirrennurum sínum á forsetastóli eins og hugsast getur.
    Átök hafa geisað í Afganistan í meira en fjóra áratugi. Og nú - tuttugu árum eftir að innrásarlið Bandaríkjanna setti stjórn Talíbana af sölsuðu þeir undir sig öll völd í Afganistan á ný nú í ágúst. Þeir lofuðu þó betri tíð, bættum stjórnarháttum og auknu jafnrétti.
    En ekki leið á löngu þar til orð og gjörðir hættu að stemma: Ráðuneyti málefna kvenna var skellt í lás, konum var gert að hylja sig, stúlkum meinað að mæta í skóla, jafnvel til vinnu, föngum var sleppt, og hundrað aftökur hið minnsta framkvæmdar án dóms og laga.
    Nú blasa hörmungar við í Afganistan: Efnahagshrun og hungursneyð.
    Það er því kannski ekki að undra að fjöldi fólks vilji burt eða þurfi að komast burt. Sér sér og sínum ekki lengur fært að dvelja í heimalandinu.
    Ríkisstjórn íslands brást við með því að samþykkja að taka á móti allt að hundrað og tuttugu flóttamönnum frá Afganistan. Síðan þá eru sextíu og einn komnir til landsins, fjörutíu þáðu boð um skjól í öðru landi, og núna í dag - rétt fyrir hádegi, lentu tuttugu og tveir Afganar í Keflavík eftir langt og strangt ferðalag.
    En hvað tekur við nú eftir lendingu? Hvernig tökum við hér á landi á móti fólki sem við höfum boðið hér skjól? Hvernig förum við að því að auðvelda þeim aðlögun í eflaust ágætlega framandi samfélagi?
    Við spurðum Lindu Rós Alfreðsdóttur, sérfræðing í félagsmálaráðuneytinu og starfsmann flóttamannanefndar, nánar út í það. Hún kíkti til okkar í morgun, staldraði stutt við á leið sinni til Keflavíkur að taka á móti nýju landsmönnunum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Hamfarir á Filippseyjum og falsfréttir í aðdraganda kosninga
    Minnst tvö hundruð manns misstu lífið í ofurfellibylnum Rai sem skall á sunnanverðum ströndum Filippseyja á fimmtudagsmorgun. Hundruðir særðust og enn er fimmtíu saknað en bylurinn er talinn hafa haft áhrif á um sjö hundruð þúsund manns. Frá því að hann gekk yfir hefur gengið á með flóðbylgjum og aurskriðum og óttast er að fleiri mannslíf hafi glatast í eftirköstunum.
    Einn af hverjum tveimur varð var við rangar upplýsingar eða falsfréttir í aðdraganda alþingiskosninganna á Íslandi í september á þessu ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Fjölmiðlanefndar um falsfréttir og upplýsingaóreiðu í aðdraganda alþingiskosninga, og byggir skýrslan á niðurstöðum könnunar Maskínu. Skúli Bragi Geirdal, skýrsluhöfundur og verkefnastjóri miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd, er gestur okkar í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur..
    58 min
  • Ritdeilur Bergsveins og Ásgeirs og hjartavandamál knattspyrnumanna
    En við byrjum á örskýringu vikunnar með Atla Fannari Bjarkasyni. Daglegar fréttir hafa verið fluttar af ritdeilu Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra og rithöfundarins og fræðimannsins Bergsveins Birgissonar. Bergsveinn sakar Ásgeir um ritstuld en því hafnar Ásgeir. Málið hefur svo tekið nokkra óvænta snúninga. En hvernig hófst deilan og um hvað snýst hún? Hver var sá fyrsti sem komst að því að Ingólfur Arnarson hafi verið rostungaveiðimaður og hvaða máli skiptir það?
    Einn besti knattspyrnumaður heims undanfarinna ára, argentíski framherjinn Sergio Aguero, lagði skóna á hilluna á tilfinningaþrungnum blaðamannafundi í Barcelóna í vikunni. Aguero, sem er aðeins 32 ára gamall, lagði þó skóna ekki á hilluna viljugur. Í lok október var Agüero fluttur á sjúkrahús í leik Barcelona og Alaves í spænsku úrvalsdeildinni en hann fann fyrir hjartverk. Læknar mátu stöðu hans svo að hann geti ekki lengur spilað fótbolta. Sergio Aguero er hættur, vegna hjartavandamála. En hann er ekki eini knattspyrnumaðurinn sem hefur lent í þessu. Hinn danski Christian Eriksen hneig niður á Evrópumótinu í sumar og hið sama gerði Ísfirðingurinn Emil Pálsson í leik norsku fyrstu deildinni í haust. Báðir eru á batavegi en allskstar óvíst hvort þeir geti leikið knattspyrnu aftur. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður lítur við í síðari hluta þáttarins og ræðir um hjartavandamál knattspyrnumanna, eru þau að aukast? Hvers vegna, og hvað er til ráða?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur..
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…