Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Verðbólgudraugurinn traust Íslendinga á stjórnvöldum í Covid
    Íslands forni fjandi er kominn aftur á stjá. Og nei, ég á ekki við hafísinn, heldur verðbólguna - eða öllu heldur verðbólgudrauginn - sem hefur síðustu vikur minnt rækilega á sig. Hingað er komin Magdalena Anna Torfadóttir hagfræðingur og sérstakur gestur okkar um fjármál- og efnahagsmál. Hún er viðskiptablaðamaður á fréttablaðinu og stjórnandi hlaðvarpsins Fjárlmálakastsins.
    Víða um heim hefur borið á mótmælum vegna aðgerða stjórnvalda tengdum sóttvörnum. Fólk er orðið langþreytt á kórónuveirunni og líkt og við töluðum um hér í Hádeginu á mánudag - þegar fjallað var um mótmæli vörubílstjóra í Kanada - vilja mörg frá sitt venjulega og eðlilega líf til baka. Hættan af omicron afbrigðinu þykir lítil, allavega mun minni en af fyrri afbrigðum. En hvernig er þessu háttað hér á landi, hvað finnst íslenskum almenningi um aðgerðir og viðbrögð stjórnvalda í kórónuveirufaraldrinum? Frá upphafi faraldurs hefur teymi fræðimanna á vegum Félagsvíindastofnunnar Háskóla Íslands rannskað líðan almennings í kórónuveirufaraldrinum, og viðmót þess gagnvart stjórnvöldum og aðgerðum þeirra. Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og einn rannsakenda, lítur við í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Aðskilnaðarstefna Ísraels og talíbanar í Osló
    Mannréttindasamtökin Amnesty International gáfu nýverið út skýrslu sem dregur upp dökka mynd af framferði ísraelska stjórnvalda gegn Palestínumönnum. Þar er gengið svo langt að segja að Ísraelsríki viðhaldi aðskilnaðarstefnu (e. apartheid) gegn Palestínumönnum og það verði að draga Ísrael til ábyrgðar fyrir framferði sitt gegn Palestínumönnum, sem stjórnvöld líti einfaldlega átt sem óæðri Ísraelum. Gunnar Hrafn Jónsson blaðamaður og sérfræðingur í málefnum mið-austurlanda, ræddi við okkur um 280 blaðsíðna skýrsluna.
    Norsk stjórnvöld buðu sendinefnd háttsettra Talíbana frá Afganistan til Oslóar í lok janúar. Tilefnið voru þriggja daga fundarhöld í öruggu umhverfi á Soría Moría hótelinu í Holmenkollen með fulltrúum stjórnvalda Evrópskra- og Bandarískra ríkja, fulltrúum ýmiskonar mannréttinda- og hjálparsamtaka, og samtölum við landa sína í Noregi, sem neyddust til að flýja heimalandið. Mannréttindi, fjárhags- og neyðaraðstoð var í brennidepli. En ástandið þar í landi versnaði til muna í kjölfar þess að Talíbanar tóku völd í landinu eftir að vestræn ríki drógu herlið sín til baka í ágúst í fyrra. En af hverju þessi fundarhöld? Og af hverju í Noregi af öllum stöðum? Hvað hefur svona lagað upp á sig? Doktor Þórdís Ingadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík og sérfræðingur í alþjóðalögum, ræddi við okkur um hlutverk alþjóðasamfélagsins og aðkomu þess að málum í Afganistan í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ýlið undarlega í Frakklandi og átök í breska þinginu
    Mánuðum saman hefur undarlegt og óþægilegt hljóð plagað bæjarbúa í Wizernes í norðanverðu Frakklandi. Íbúarnir, sem eru skiljanlega orðnir þreyttir á óhljóðinu, hafa árangurslaust reynt að komast á snoðir um uppruna þess en enginn hefur fundið út hvaðan hljóðið dularfulla - sem þagnar stundum en byrjar svo jafnharðan aftur - kemur.
    Erfitt er að réttlæta veisluhöld á vegum breska forsætisráðuneytisins á tímum kórónuveirunnar. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðum úr rannsókn siðameistara breskra stjórnvalda, Sue Gray, á partygate-málinu svokallaða. Forsætisráðherrann Boris Johnson hefur síðustu vikur átt í vök að verjast vegna ásakana um veisluhöld í Downingstræti 10. Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar í gær og í kjölfar þeirra tókust þingmenn á í breska þinginu. Við skoðum málið nánar í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Vörubílstjórar mótmæla í Kanada og netnotkun ungmenna
    Kröftug mótmæli vörubílstjóra og fólks sem er ósammála bólusetningaskyldu í landinu standa nú yfir í höfuðborginni Ottawa. Tugir atvinnubílstjóra keyrðu yfir Kanada í vikunni sem leið og vöktu athygli á málstað sínum, og virðast ef marka má fréttamyndir, njóta töluverðs stuðnings. Spjótin beinast að forsætisráðherranum Justin Trudeau, sem gefur lítið fyrir málflutning bíljstóranna og kallar mótmælendur illa upplýstan minnihlutahóp. Um sjö hundruð milljónir íslenskra króna hafa safnast til stuðnings mótmælendum.
    Nánast öll börn hér á landi á aldursbilinu níu til átján ára eiga eigin farsíma. Almenn netnotkun eykst með aldri barna og verður tvöfalt meiri milli unglingastigs og framhaldsskóla. Youtube virðist vera langvinsælasti miðilinn meðal íslenskra barna- og unglinga. Rúm níutíu prósent barna nota hann, svo sem til að fylgjast með tölvuleikjaspili eða tónlist. Rúmlega þriðjungur nemenda í grunn- og framhaldsskólum, á aldursbilinu níu til átján ára sér eftir einverju sem þau hafa deilt á samfélagsmiðlum - og það á frekar við stelpur en stráka.
    Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands sem lögð var fyrir grunn- og framhaldsskólanema á aldrinum níu til átján ára um land allt. Tæplega sex þúsund nemendur svöruðu. Þessar niðurstöður eru hluti af stærri könnun um miðlanotkun barna. Von er á frekari niðurstöðum sem snúa að kynferðislegum athugasemdum á netinu og öryggi barna og ungmenna á netinu og í tölvuleikjum. Í seinni hluta þáttarins fáum við Skúla Geirdal, verkefnastjóra miðlalæsis hjá fjölmiðlanefnd, til að segja okkur nánar frá niðurstöðunum og þýðingu þeirra.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Úrslitahelgi Evrópumóts karla í handbolta
    Úrslitahelgi Evrópumóts karla í handbolta er hafin. Spánn og Danmörk mætast í undanúrslitum í dag og Frakkland og Svíþjóð þar strax á eftir. Á sunnudaginn verður svo barist um bikarinn og bronsið. En nú klukkan 14.30 spilar Ísland við Noreg í Ungverjalandi um fimmta sætið á mótinu, eftir að öll von um að komast í undanúrslitin hvarf með tapleik Dana gegn Frökkum á miðvikudaginn. En það er enn til mikils að vinna. Því fimmta sætið veitir beinan farseðil á Heimsmeistaramótið í Póllandi og Svíþjóð á næsta ári og þýðir að liðið sleppir við undankeppni. Mótið hefur verið allskonar og mikið gengið á. Covid smit og fleiri Covid smit og óvissa, tæpt tap gegn Króötum og átakanlegur leikur Dana gegn Frökkum. Lægðirnar voru einhverjar en hæðirnar talsvert fleiri og árangur liðsins glæstur. Og enn er nóg eftir.
    Við byrjum þáttinn á örskýringu í boði Atla Fannars Bjarkasonar um leik Dana og Frakka og eftirköstin. En úrslit leiksins fóru öfugt ofan í þjóðarsálina og það sem byrjaði sem létt spaug snerist fljótlega upp í andhverfu sína þegar Danir tilkynntu að þeim hefðu borist líflátshótanir frá stuðningsfólki íslenska liðsins.
    Í seinni hluta Hádegisins ræðum við svo við Helgu Margréti Höskuldsdóttur íþróttafréttamann um leikinn sem er fram undan - baráttu Íslands og Noregs um fimmta sætið. Og förum yfir mótið - bæði það sem er búið af því og það sem eftir er.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • 5G byltingin og heilsuspillandi efnin allt um kring
    Flest höfum við eflaust heyrt talað um hið svokallaða 5G farnet. Og eflaust í allskonar samhengi. Maður hefur heyrt samsæriskenningum fleytt um að 5G netið dreifi kórónuveirunni hægri vinstri um heimsbyggðina, að þessi nýja kynslóð farneta sé liður í áformum Bill Gates um að stjórna okkur öllum með örflögum sem á að hafa verið komið fyrir í okkur með Covid bólusetningum og þá hefur maður heyrt af flugfélögum sem aflýsa flugum vegna áhyggja af því að 5G geti á einhvern hátt truflað ferðalögin. En hvað vitum við í raun og veru um þetta forvitnilega fyrirbæri? Hver er tilgangurinn og er eitthvað að óttast? Kristjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur Hádegisins og þáttastjórnandi UT hlaðvarpsins Ský heimsækir Hádegið og segir okkur frá þessari nýju kynslóð farneta.
    Góð heilsa veltur ekki bara á heppni - segir Una Emilsdóttir læknir - heldur samspili erfða og umhverfis. Hún hvetur almenning til að temja sér gagnrýna hugsun og sneiða fram hjá vörum sem innihalda efni sem hafa slæm, skaðleg eða óþekkt áhrif á heilsu þeirra - geta komist í blóðrásina og raskað líkamsstarfseminni - haft hormónatruflandi áhrif eða krabbameinsvaldandi. Þetta á við um allskyns efni í allskonar formi: það sem við borðum, berum á okkur og öndum inn um slímhúðina - það er að segja, matvæli, snyrtivörur, leikföng, plastvörur og svo mætti æði lengi telja. Una ræddi við okkur um heilsufar, samspil erfða og umhverfis og hvar ábyrgðin á framboði og neyslu slíkra efna liggur í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Heilaörflaga Musk og sjálfbærni í fasteignakaupum
    Auðkýfingurinn Elon Musk, stofnandi rafbílaframleiðandans Tesla, geimferðafyrirtækisins SpaceX, manneskja ársins í fyrra samkvæmt Bandaríska tímaritinu Time og jafnframt ríkasti maður heims, er kominn vel á veg með nýjasta verkefni sitt. Hann hefur að undanförnu verið að þróa rafkubba með vélvit til að græða í fólk, sem eiga að verða alls konar meina bót. Við fjöllum um fyrirhugaðar tilraunir með ígræðslu örflögunnar í menn í fyrri hluta þáttarins.
    Nú á dögum eru margir orðnir talsvert meðvitaðri um umhverfis-og loftslagsmálin. Jafnvel farnir að leggja meira á sig í þeim efnum, vanda neyslu, breyta lifnaðarháttum og ákvarðanatöku: flokka meira og betur, hjóla í vinnuna, jafnvel kolefnisjafna Teneflugið með trjákaupum. En hvað með veigamiklar ákvarðanir eins og til að mynda fasteignakaup og leigutöku- og sölu. Er hægt að huga að umhverfinu og sjálfbærni í þeim efnum? Í seinni hluta þáttarins kemur Bjarni Herrera, forstöðumaður sjálfbærni hjá KPMG, til okkar og fræðir okkur um það.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ný Evrópulöggjöf um stafræn málefni og örskýring
    Evrópuþingið samþykkti nú á dögunum nýja löggjöf um stafræn málefni sem meðal annars miðar að því að auka öryggi og tryggja mannréttindi notenda í netheimum til dæmis með því að setja stórum netþjónustuaðilum skorður og auka neytendavernd. Í seinni hluta þáttarins berum við nýju löggjöfina undir Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur, yfirlögfræðing hjá Fjölmiðlanefnd og veltum meðal annars fyrir okkur þýðingu hennar fyrir fjölmiðla, netnotendur og netþjónustufyrirtæki.
    En við hefjum þátt dagsins á örskýringu í boði Atla Fannars Bjarkasonar frá 3. desember 2021 um mannanöfn og hver fær að velja þau og hafna þeim. En svo virðist vera að Íslendingar hafi rifist um mannanöfn alla tíð - hvað megi og megi ekki heita og kallast. En hvenær settum við á fót sérstaka nefnd sem ræður því? Og tíðkast slíkt einhvers staðar annars staðar? Hver er í mannanafnanefnd og eftir hvaða reglum starfar hún? Atli Fannar Bjarkason ræddi við Guðmund Björn um fyrirbærið.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Hugsanleg þáttaskil í faraldrinum og þriðja vaktin
    Hans Kluge, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Evrópu, segir að nýtt tímabil sé hafið í heimsálfunni með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar sem getur markað endalokin á faraldrinum í Evrópu, en þó ólíklega enda Covid-19 veirunnar. Með hraðri útbreiðslu omíkron geti verið að hjarðónæmi náist á næstu mánuðum, veiran láti lítið fyrir sér fara um skeið en komi hugsanlega aftur undir lok ársins, þá meira í líkingu við almenna flensu. Við skoðum spár Kluge í fyrri hluta Hádegisins.
    Talað er um að fyrsta vaktin á heimilinu sé það launaða starf sem hjón eða pör sinna. Önnur vaktin felur svo í sér framkvæmd hinna ýmsu starfa og verkefna heimilisins, svo sem þrifum, að baða börnin og þar fram eftir götunum. Þessi vakt fellur mun oftar á konur en karla í gagnkynja samböndum. En svo er það þriðja vaktin: Sú ólaunaða ábyrgð og vinna sem felst í verkstýringu og yfirumsjón með heimilis og fjölskylduhaldinu. Í því felast allskonar og stundum vanmetin verkefni - eins og að panta tíma fyrir barn hjá tannlækni og muna eftir afmælum og gjöfum eða hrekkjavökunni í tæka tíð. Og aftur er algengast að konur sinni þessari vakt og taki að sér þá hugrænu byrði sem í henni er fólgin. Því geta fylgt ýmsar afleiðingar, bæði innan og utan heimilisins - afleiðingar sem á endanum standa í vegi fyrir jafnrétti. Við endurflytjum spjall okkar um þriðju vaktina við Huldu Jónsdóttir Tölgyes sálfræðing frá 25. nóvember 2021 í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Meme, Djokovic og handbolti
    Við byrjum Hádegið þennan föstudag í janúar á örskýringu vikunnar með Atla Fannari Bjarkasyni. Í örskýringum sínum leitast Atli Fannar við að útskýra flókin og oftar en ekki furðuleg fyrirbæri á sem einfaldastan hátt. Í dag er viðfangsefnið svokölluð ?memes.? Stundum gerist það að ákveðin fyrirbæri ferðast um internetið með slíkum ógnarhraða að stór hópur fólks verður meðvitaður um fyrirbærið og dreifir því jafnvel áfram á eigin forsendum. Þegar það gerist verður til svokallað ?meme? sem getur lifað með heimsbyggðinni í vikur, mánuði eða jafnvel mörg ár. En hvað er ?meme? og hvernig verður það til? Er fyrirbærið komið í orðabækur og hvernig er það skilgreint? Er internetið kannski bara bóla eða eru þessi svokölluðu ?memes? mögulega bólur á internetinu?
    Serbneski tenniskappinn Novak Djokovic er ekki meðal þátttakenda á Opna ástralska meistaramótinu í tennis, einu af fjórum risamótum ársins. Hann var sendur til baka frá Ástralíu síðastliðinn sunnudag með skottið á milli lappanna, óbólusettur - en einhver hörðustu sóttvarnarlög sem fyrirfinnast eru í Ástralíu og þar kemur enginn inn í landið óbólusettur. Djokovic fór þó til Ástralíu en var rakleiðs sendur á sóttvarnarhótel, hann vann mál fyrir áströlskum dómstólum sem hemiluðu honum að keppa, en þeirri ákvörun var að endingu snúið við. Djokovic er einn besti tenniskeppi allra tíma og hefur málið hrundið af stað nokkurs konar milliríkjadeilu milli Serbíu og Ástralíu. Helga Margrét Höskuldsdóttir íþróttafréttamaður fræðir okkur um þetta forvitnilega mál í síaðri hluta þáttarins, ásamt því að fara yfir það helsta úr herbúðum íslenska karlalandsliðsins í handbolta, sem stóðu í Dönum í gær þrátt fyrir að vera án sex lykilmanna þar sem þeir höfðu greinst með kórónuveiruna.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…