Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Ársþing KSÍ og úkraínskur varaliðshermaður
    Við byrjum á íþróttunum á þessum föstudegi. Fáum til okkar Einar Örn Jónsson íþróttafréttamann til að fara yfir ársþing Knattspyrnusambands Íslands sem fer fram núna á laugardaginn, en gera má ráð fyrir að þar verði lagður grunnur að starfi samtakanna næsta árið eða svo.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Úkraínu. Í morgun bárust fregnir af því að rússneski herinn hefði hafið loftárásir á höfuðborgina Kænugarð, og sprengjum hafi rignt yfir Poznyaky hverfið í borginni - þrátt fyrir að Rússari hafi gefið það út árásum yrði ekki beint gegn almennum borgurum. Við ræðum við úkraínskan varaliðshermann, Viktor Tregubov, sem var staddur í Vilnius í Litháen í gær þegar við náðum af honum tali - og bar þá von í brjósti að hann kæmist sem fyrst til Úkraínu - til að berjast. Honum hefur nú orðið að ósk sinni.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Innrás Rússa í Úkraínu og streymisveitur
    Íslendingar sækja í efni á streymisveitum sem aldrei fyrr. Nýleg neyslukönnun Gallups rennir til dæmis stoðum undir þá kenningu. Samkvæmt henni eru þrjú af hverjum fjórum heimilum á Íslandi með áskrift að Netflix og ríflega fimmta hvert íslenskt heimili í áskrift hjá Viaplay. Um fjörutíu og fimm prósent heimila eru með áskrift að einhverri þjónustu Sjónvarps Símans og um fjórðungur með áskrift að Stöð 2. Sextán prósent eru með áskrift að Disney-plús - sem varð fyrst aðgengileg hér á landi í fyrra - og svo eru um tíu prósent í áskrift að Apple TV+. Það má kannski segja að það hafi aldrei verið auðveldara að glápa á hvað sem mann lystir. Eða hvað? Því á móti kemur að það hefur kannski aldrei verið erfiðara að hafa upp á sjónvarpsþættinum sínum, eða myndinni sem maður er einmitt í stuði fyrir það kvöldið. Sér í lagi hér á þessu landi þar sem alls konar streymisveitur og efni eru okkur óaðgengilegar. Kristjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur hádegisins og stjórnandi UT-hlaðvarpsins Ský, ræðir við okkur um streymisveitur í fyrri hluta þáttarins. Innrás rússneska hersins í Úkraínu hófst í nótt með fyrirskipun Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta í sjónvarpsávarpi skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt. Pútín varaði um leið önnur ríki við því að skipta sér af athöfnum rússneska hersins en innrásinni væri ætlað að vernda íbúa austurhéraðanna. Öll afskipti hefðu afleiðingar sem enginn hefði kynnst áður í sögunni. Við ræðum stöðuna ásamt Jóni Ólafssyni prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingi í málefnum Rússlands, í síðari hluta þáttarins. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    0 min
  • Innrás Rússa hafin og sprengjum varpað á Kænugarð og Kharkív
    Rússar hófu innrás í Úkraínu í nótt. Vladimír Pútín Rússlandsforseti tilkynnti það í sjónvarpsávarpi skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt. Þar varaði hann um leið önnur ríki við skipta sér af aðgerðum rússneska hersins, og sagði aðgerðir sínar fyrst og fremst til þess fallnar að verja íbúa í austurhluta Úkraínu, sem eru að megninu til Rússar. Ef alþjóðasamfélagið myndi skipta sér af, hefði það ófyrirsjáanlegar og fordæmalausar afleiðingar. Pútín sakar Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra um að hunsa kröfur Rússa um að Úkraína fái aldrei inngöngu í NATÓ. Þá segist hann ekki ætla sér að hertaka Úkraínu, það sé Úkraínumanna sjálfra að kjósa um hverjir stjórni landinu. Tilkynnt hefur verið um loftárásir í nokkrum hlutum Úkraínu, þar á meðal í Kænugarði og Kharkiv. (Harkív) Gríðarlegar umferðarteppur mynduðust á götum Kænugarðar í morgun. Flestir stefna í vesturátt, út úr borginni. Kröfur vestrænna ríkja eru allar á einn veg, Pútín skal draga herlið sitt til baka - ellegar verða afleiðinar. Josehp Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, lýsti deginum sem þeim ?svartasta síðan í seinna stríði.? Við ræðum stöðuna ásamt Jóni Ólafssyni, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingi í málefnum Rússlands, í síðari hluta þáttarins.
    Í fyrri hluta þáttarins ræðir Kristjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur hádegisins og stjórnandi UT-hlaðvarpsins Ský, við okkur um hámhorfsmál og streymisveitur. Íslendingar sækja í efni á streymisveitum sem aldrei fyrr. Nýleg neyslukönnun Gallups rennir til dæmis stoðum undir þá kenningu. Samkvæmt henni eru þrjú af hverjum fjórum heimilum á Íslandi með áskrift að Netflix og ríflega fimmta hvert íslenskt heimili í áskrift hjá Viaplay. Um fjörutíu og fimm prósent heimila eru með áskrift að einhverri þjónustu Sjónvarps Símans og um fjórðungur með áskrift að Stöð 2. Sextán prósent eru með áskrift að Disney-plús - sem varð fyrst aðgengileg hér á landi í fyrra - og svo eru um tíu prósent í áskrift að Apple TV+.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Rússland, Kína og ráðherravöld
    Við byrjum þáttinn á hernaðarbrölti Rússa í austurhluta Úkraínu, þó með aðeins öðru sniði en síðustu daga. Í dag er það fíllinn í herberginu sem er til umfjöllunar: Kína, annað stærstu efnahagsvelda heims og fjölmennasta ríki hans. Kínverjar eru bandamenn Rússa á ýmsum sviðum. og síðustu ár hafa fjölmargir efnhagslegir samstarfssamningar milli ríkjanna verið undirritaðir. Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamaður og sérfræðingur í málaflokknum, ræðir við okkur um stöðuna.
    Í síðari hluta þáttarins eru það svo stjórnmálin. Hvert er vald og hver er ábyrgð ráðherra? Hversu mikið rými og vald hafa einstaka ráðherrar í ríkisstjórn Íslands til ákvörðunartöku og aðgerða, og hver ber svo ábyrgð á þeim? Katrín kynnti sér málið og ræddi við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Rússneski herinn á leið inn í Úkraínu og vendingar í Epstein-málinu
    Rússneskt herlið hefur hafið innreið sína inn í austurhluta Úkraínu, að beiðni Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Svo vikum skiptir hefur innrás Rússa inn í Úkraínu legið í loftinu, en rússneskir hermenn halda nú inn á Donbass svæðið í austurhluta landsins. Pútín tilkynnti þetta aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann viðurkenndi sjálfstæði Alþýðulýðveldanna Lúhansk og Donetsk. Pútín lítur því ekki svo á að hann sé að ráðast inn í Úkraínu - heldur aðeins koma stjórnvöldum í Lúhansk og Donetsk til aðstoðar. Forsætisráðherra Bretlands sagði í morgun að Pútín hafi allsherjar innrás inn í Úkraínu í huga.
    Þá munu Bandaríkin og Evrópusambandið ákveða efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Rússum síðar í dag. Olof Scholz, kanslari Þýskalands, hefur þegar gefið út að gasleiðslunni Nordstream 2 - sem ferjar gas frá Rússlandi til Þýskalands í gegnum Eystrasaltið, verði ekki opnuð í bráð - eins og til stóð. Hlutirnir gerast hratt á Donbass svæðinu og Evrópa leikur á reiðiskjálfi vegna tíðinda næturinnar. Jón Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Rússlands, verður gestur Hádegisins í síðari hluta þáttarins.
    Í fyrri hluta þáttarins kannar Katrín Ásmundsdóttir nýjar vendingar í máli níðingsins Jeffreys Epstein og þeirra sem honum tengjast. Atburðir síðustu daga gefa von um að það styttist í málalok í þeirri lönguvitleysu sem allt í kringum auðkýfinginn er.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Svissskjölin og Úkraínudeilan
    Gríðarstór gagnaleki Credit Suisse, eins stærsta banka Sviss, varpar ljósi á varhugaverða viðskiptahætti bankans og viðskiptamanna hans, sem meðal annars eru glæpamenn, svikahrappar og spillt stjórnmálamenn og jafnvel kirkjunnar menn. Við fjöllum um málið í fyrri hluta þáttarins.
    Spennan á landamærum Rússlands og Úkraínu er enn mikil og sérfræðingar og stjórnmálaskýrendur búast enn við því að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefji innrás inn í Úkraínu á næstu dögum. En svona hefur tónninn verið síðustu daga og vikur, og því enn útlit að hægt verði að afstýra innrás nái Pútín og leiðtogar Bandaríkjanna, Evrópusambandsins og Úkraínu, að setjast að samningaborðinu. Vlodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, hefur kallað eftir tafarlausu vopnahléi í austurhéruðum landsins, en þar hefur minni árásum fjölgað undanfarna daga. Þá hafa Pútín og Joe Biden, Bandaríkjaforseti, samþykkt að hittast í eigin persónu á næstu dögum og ræða mögulegar lausnir. Það gerist þó aðeins að því gefnu að Rússar ráðist ekki inn í Úkraínu fyrst. Við skoðum hvað hefur gerst síðustu daga - og hvað gæti gerst næstu daga - í Úkraínudeilunni í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Efnahagsmálin og nýjar ákærur á hendur Navalny
    Í þrjúhundruðasta þætti Hádegisins eru efnahagsmál og alþjóðastjórnmál til umræðu, eins og svo oft áður. Verðbólga, stýrivaxtahækkanir, bankaarður, hugsanlegur bankaskattur, og svo framvegis. Það virðist ekkert lát vera á knöppum og örum hæðum og lægðum í efnahagslífinu um þessar mundir. Til að fara yfir helstu tíðindi vikunnar í þeim efnum er Magdalena Anna Torfadóttir hagfræðingur og sérstakur gestur okkar um fjármál og efnahagsmál. Hún er viðskiptablaðamaður á Fréttablaðinu og stjórnandi hlaðvarpsins Fjármálakastsins.
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við nýjar ákærur á hendur rússneska stjórnarandstæðingnum Alexey Navalny. Guðmundur Björn ræðir við Val Gunnarsson, sagnfræðing og sérfræðing í málefnum Rússlands.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Rússneski utanríkisráðherrann í Sýrlandi og mörk atvinnu og einkalífs
    Við byrjum í mið-austurlöndum, en þó með smá rússnesku yfirbragði. Ef marka má yfirlýsingar ráðamanna í Washington hefur stríðsástand vofað yfir í Úkraínu þar sem Rússar hafa fært umtalsvert af herafla sínum að landamærum ríkisins til að framkvæma heræfingar að eigin sögn. Fréttaskýrendur á svæðinu virðast hins vegar flestir hinir rólegustu og segja þetta allt flókið leikrit þar sem margir eigi hagsmuna að gæta. Lítil hætta sé á raunverulegu stríði. Á sama tíma og þetta hernaðarbrölt er til tals er varnarmálaráðherra Rússlands hins vegar fjarri, hann er í Damaskus í Sýrlandi að funda með Assad forseta. Gunnar Hrafn Jónsson, sérfræðingur í málefnum miðausturlanda ræðir við okkur um heimsóknina og stöðuna.
    Það er fátt sem heimsfaraldurinn hefur ekki haft áhrif á: Heilbrigðiskerfi heimsins, stjórnarfar, lýðræði jafnvel, efnahagskerfin, heilsufar almennings og líðan og svona mætti ágætlega lengi telja. Vinnuumhverfið og vinnumenningin er þar ekki undanskilin. En hver er birtingarmyndin? Hvaða áhrif hefur heimsfaraldur haft á það hvernig við vinnum? Og hvenær og hvar við vinnum? Við berum málið undir Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formann BSRB í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…