Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Metaverse og ópíumrækt í Afganistan
    Móðurfélag samskiptarisans Facebook skipti um nafn í lok októbermánaðar, og heitir nú Meta. Samfélagsmiðilinn sjálfur, Facebook, heldur þó nafni sínu rétt eins og samfélagsmiðlarnir Instagram og skilaboðaforritið WhatsApp, sem eru bæði í eigu Facebook. Þegar þessar fréttir voru nýjar af nálinni fengum við Davíð Lúther Sigurðarsson framkvæmdastjóra auglýsingastofunnar Sahara til að ræða um nafnabreytinguna og hvað Facebook, eða Meta ætlar sér. Vatn hefur runnið til sjávar þá og við ætlum að einblína í dag á þann sýndarveruleikaheim sem Meta er nú í óða önn að þróa, Metaverse, heim sem mun gjörbreyta lífi okkar - ef áætlanir Meta ná fram að ganga. Kristjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur Hádegisins og umsjónamaður UT hlaðvarps Ský, ræðir við okkur um Metaverse í dag.
    Heróín flæðir nú frá Afganistan til vesturlanda sem aldrei fyrr og áætlað er að nýtt met verði sett í framleiðslunni í ár - 90% af öllu heróíni í heiminum kemur frá þessu eina landi. Talíbanar, sem nýlega hrifsuðu til sín öll völd í landinu, bönnuðu ópíum rækt þegar þeir voru síðast við völd fyrir tuttugu árum, en staðan er gjörbreytt í dag. Hagkerfið er algjörlega háð framleiðslunni sem heldur lífinu í milljónum Afgana og sjálfir hafa Talíbanar reitt sig á ópíum útflutning til að fjármagna sína baráttu. Við skoðum þetta í síðari hluta þáttarins með Gunnari Hrafni Jónssyni, blaðamanni og sérfræðingi í málefnum Mið-Austurlanda.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Fólk á flótta og ábyrgð ríkja
    Þátturinn í dag er tileinkaður málefnum fólks á flótta.
    Milljónir manna hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín og flýja heimkynni sín í gegnum söguna. Ástæðurnar eru margvíslegar: stríð, vopnuð átök, hungursneyð, ofsóknir ríkisvaldsins og þar fram eftir götunum. Í dag eru um áttatíu milljónir manna í þessari stöðu. Hafa ákveðið að líf á flótta - leit að betra lífi annarsstaðar - sé betri valkosturinn af tveimur slæmum.
    Og slæmur er hann. Til dæmis hafa rétt tæplega tuttugu og þrjú þúsund manns týnt lífinu eða horfið á Miðjarðarhafinu frá 2014, og rúmlega hundrað í Ermarsundinu, hafandi ákveðið að flýja enn verri aðstæður í heimalandinu. Og erfitt er svo að segja til um hvað bíður þeirra sem ná landi aftur - hvort dvöl við bágar aðstæður í flóttamannabúðum taki við, eða líf á götunni, farmiði aftur "heim". Eða, hugsanlega og í einhverjum tilvikum, vernd og nýtt líf, jafnvel ný tækifæri.
    En hvað ræður viðtökunum og viðbrögðunum? Hvers vegna eru landamæri ríkja, til dæmis á Vesturlöndum, í auknum mæli lokuð og vernduð - flóttafólki og fólki í neyð haldið úti? Hvaða ábyrgð bera ríki heims á fólki sem ekki getur verið í heimalandi sínu? Hvaða þátt eiga stjórnmálin í flóttamannakrísunni?
    Í síðari hluta þáttarins spyrjum við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing út í landamærin og ábyrgð ríkja gagnvart fólki í neyð.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Fjárlagafrumvarp og hvað ræður því hver fær hvaða ráðherrastól?
    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti fjárlagafrumvarp næsta árs og fjármálastefnu fyrir árin 2022 til 2026 á blaðamannafundi í fjármálaráðuneytinu í morgun. Þar kemur fram að áfram er gert ráð fyrir hallarekstri ríkissjóðs, en um leið hagvöxtur næsta árs verði 5,3 prósent. Þá verða framlög ríkiisins til heilbrigðismála aukin um ríflega 16 milljarða.
    Ný ríkisstjórn er tekin við stjórnartaumum þessa lands. Stjórnarflokkarnir þrír eru þeir sömu og síðast - en þó eru ýmsar breytingar í aðsigi. Fjölmargar stofnanir og verkefni - já og ráðherrar - færast milli ráðuneyta og tvö ný ráðuneyti verða til.. En hvers vegna allt þetta hringl og allar þessar tilfæringar? Hvernig virkar ferlið við ríkisstjórnarmyndun og skipan ráðherra? Eftir fréttir spyrjum við Ólaf Þ. Harðarsson, prófessor í stjórnmálafræði út í það.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Svartur föstudagur og þögnin í Laugardalnum
    Í dag er svartur föstudagur, black friday - og á mánudagurinn er rafrænn, cyber-monday. Á þessum dögum ár hvert keppast verslanir um að selja sem mest og bjóða mikinn afslátt. Þetta kaupæði teygir sig oftar en ekki út vikuna og hefur þetta verið kallað á íslensku myrkir markaðsdagar, sem ernú bara nokkuð gott. Og þetta er ekki bara á Íslandi, í dag bjóða verslanir um allan heim upp á afslætti af vörum. Það er ekki langt síðan Íslendingar fóru að halda upp á föstudaginn svarta en dagurinn á sér djúpar rætur. Til að örskýra þetta fyrirbæri fyrir okkur í dag er Atli Fannar Bjarkason.
    Eiði Smára Guðjohnsen var sagt upp sem aðstoðarþjálfara karlalandsliðsins í fótbolta í vikunni. Knattspyrnusamband Íslands sendi frá sér fréttatilkynningu laust fyrir miðnætti á þriðjudagskvöld þar sem greint var frá þessari ákvörðun stjórnarinnar. Síðan þá hefur Vanda Sigurgeirsdóttir, nýr formaður KSÍ, ekki veitt fjölmiðlum viðtal um ákvöðrun stjórnarinnar. Viðbrögð KSÍ eftir að Eiði Smára var sagt upp - eða ætti kannski að segja viðbragðsleysi við spurningum fjölmiðla - virðist hafa vakið upp gamlan draug: samskiptadrauginn slæma sem hefur búið í Laugardalnum um hríð en haldið var að ný stjórn hefði kveðið niður. Við förum yfir þetta mál í síðari hluta þáttarins með Helgu Margréti Höskuldsdóttur íþróttafréttamanni og Kolbeini Marteinssyni, ráðgjafa í almannatengslum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Big Tech og þriðja vaktin á heimilinu
    Stærstu tæknifyrirtæki heims, sem á ensku eru einfaldlega kölluð Big Tech, hafi vaxið gríðarlega síðustu ár. Þessi risafyrirtæki eru mörg hver í ráðandi stöðu á markaðnum, kaupa minni fyrirtæki og stækka og stækka og spurningar sem lúta að sanngjarnri samkeppni hafa orðið fleiri og fleiri meðal ráðamanna víða um heim síðustu ár. Enda er vald þessara risafyrirtækja mikið og vöxtur þeirra verið svo mikill á svo stuttum tíma að löggjafinn hefur ekki alltaf getað brugðist við. Í sumar skrifaði Joe Biden Bandaríkjaforseti undir tilskipun sem ætlað er að veita þessum risafyrirtækjum aukið aðhald og koma í veg fyrir að þau nái einokunarstöðu á markaðnum. En hver eru þessi stærstu fyrirtæki í tæknibransanum, þessi risafyrirtæki - Big Tech - sem hafa vaxið svo rosalega á síðustu árum að mörgum þykir nóg um? Hún Kirstjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur Hádegisins, svarar því.
    Talað er um að fyrsta vaktin á heimilinu sé það launaða starf sem hjón eða pör sinna. Önnur vaktin felur svo í sér framkvæmd hinna ýmsu starfa og verkefna heimilisins, svo sem þrifum, að baða börnin og þar fram eftir götunum. Þessi vakt fellur mun oftar á konur en karla í gagnkynja samböndum. En svo er það þriðja vaktin: Sú ólaunaða ábyrgð og vinna sem felst í verkstýringu og yfirumsjón með heimilis og fjölskylduhaldinu. Í því felast allskonar og stundum vanmetin verkefni - eins og að panta tíma fyrir barn hjá tannlækni og muna eftir afmælum og gjöfum eða hrekkjavökunni í tæka tíð. Og aftur er algengast að konur sinni þessari vakt og taki að sér þá hugrænu byrði sem í henni er fólgin. Því geta fylgt ýmsar afleiðingar, bæði innan og utan heimilisins - afleiðingar sem á endanum standa í vegi fyrir jafnrétti. Hulda Jónsdóttir Tölgyes sálfræðingur ræðir við Katrínu um þriðju vaktina
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Kjarnorkuáætlun Írana og Arnar Þór um bólusetningaskyldu
    Í næstu viku hefjast svo nýjar samningaviðræður um kjarnorkuáætlun Írana, en þær fara fram í Vínarborg. Og þar kennir ýmissa grasa. Ísraelsmenn, sem oft eru álitnir höfuðandstæðinar Írans í pólitískum skilningi, eiga þar engan fulltrúa en hóta að hleypa viðræðunum í uppnám með fyrirvaralausum loftárásum á kjarnorkuver Írana. Joe Biden, Bandaríkjaforseti, á því við ramman reip að draga, hann segist vilja semja til að draga tennurnar úr kjarnorkuvopnaáætlun Írans en Ísraelsmenn leggja hart að honum að sniðganga viðræðurnar. Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamaður og sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda er sestur hjá okkur til að ræða þessi mál
    Á tímum heimsfaraldurs hafa stjórnvöld víða um heim gripið til róttækra aðgerða til þess að sporna við útbreiðslu heimsfaraldurs, aðgerða sem einhverjir telja nauðsynlegar, en aðrir telja gróft brot á frelsi einstaklingsins. Að undanförnu hefur umræðan um bólusetningaskyldu orðið háværari og háværari, og hafa einhver ríkið tekið hana upp að einhverju leyti. Í Austurríki er nú bólusetningaskylda og í Bandaríkjunum verða opinberir starfsmenn nú að láta bólusetja sig, hafi þeir ekki þegar gert það. Hins vegar stöðvaði dómstóll í Bandaríkjunum fyrr í mánuðinum tilskipun ríkisstjórnar um að skylda ætti starfsfólk fyrirtækja þar sem fleiri en hundrað starfa til bólusetningunnar. Dómstóllinn sagði alvarlega lagalega og stjórnskipulega annmarka á tilskipuninni og því yrði henni ekki beitt.
    Yfirvöld í Lettlandi hafa ákveðið að fara aðra og kannski sérstakari leið. Fyrir nokkrum vikum samþykkti lettneska þingið að meina þeim þingmönnum sem hafna bólusetningu við Covid-19 að taka þátt í atkvæðagreiðslum og umræðum á þingi. Og í Austurríki er bólusetningaskylda orðin að veruleika. Hér á landi eru um áttatíu og níu prósent landsmanna sem eru tólf ára og eldri fullbólusettir. Og hér á landi hefur ekki verið gripið til lagasetninga eða bólusetningarskyldu, að minnsta kosti enn. En umræðan er farin af stað, og í þeirri umræðu eru ekki allir sammála.
    Arnar Þór Jónsson, lögmaður samtakanna Frelsi og ábyrgð - samtaka sem ætla að fara í hart við íslensk stjórnvöld fari svo að óbólusettu fólki hér á landi verði settar viðlíka skorður og víða annarsstaðar - er gestur okkar í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Alþingi sett eftir fimm mánaða þingpásu og grænlenska hefðarstéttin
    Löggjafarþing Íslands, Alþingi, verður sett í dag. Tæpir tveir mánuðir eru liðnir frá kosningu og þrjátíu ár er síðan jafn langur tími leið milli þingiskosninga og þingsetningar. Og þá er vert að líta yfir farin veg, og á hvað er framundan.
    Grænlensk tilraunabörn - það er að segja þeir sex eftirlifandi Grænlendingar sem var gert að vera hluti af félagslegri tilraun danska ríkisins árið 1951, segjast reiðubúin til að höfða mál gegn danska ríkinu til bótagreiðslna. Tuttugu og tvö börn á aldrinum fjögurra til níu ára voru tekin af heimilum sínum í Grænlandi og frá fjölskyldum sínum og þau flutt til Danmerkur þar sem gera átti úr þeim hefðarmenni. Með tilrauninni átti að skapa dönskumælandi yfirstétt í Grænlandi síðar meir. Tilraunin hafði gífurlegar afleiðingar fyrir börnin, sem mörg glímdu við andleg veikindi eða fíkn síðar á lífsleiðinni. Danir hafa verið að mati margra tregir til uppgjörs vegna málsins. Fyrir um ári barst þó opinber afsökunarbeiðni frá Mette Frederiksen forsætisráðherra. En litlu síðar höfnuðu stjórnvöld því að greiða bæri þolendunum bætur. Þungamiðja málsins lægi í því að viðurkenna mistök fortíðarinnar. Þessu eru þolendur ósammála. Þau krefja stjórnvöld um greiðslu bóta innan fjórtán daga, ellegar sæki þau málið fyrir dómstólum. Við förum betur yfir málið í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Rittenhouse sýknaður og allt um undirbúningsnefnd kjörbréfa
    Í síðustu viku lauk réttarhöldum yfir átján ára gamla Kyle Rittenhouse, sem í ágúst í fyrra skaut til bana tvo mótmælendur og særði einn alvarlega í mótmælum gegn lögregluofbeldi og kynþáttahatri í bænum Kenosha í Wiskonsinsríki. Rittenhouse var sautján ára þegar atvikið átti sér stað. Hann og verjendur hans héldu því fram að hann hefði skotið mennina í sjálfsvörn og undir það tók kviðdómur í Kenosha einróma. Niðurstaðan er umdeild og segir varaforseti Bandaríkjanna ljóst að að enn sé langt í að dómskerfið verði réttlátt.
    Undirbúningskjörbréfanefnd fundar enn stíft en niðurstaða nefndarinnar verður lögð fram á morgun þegar Alþingi verður sett. Gert er ráð fyrir að kosið verði um að kjósa aftur í Norðvesturkjördæmi eða að önnur talning haldi gildi sínu en kjörbréf hafa verið gefin út í samræmi við hana. Hvert er hlutverk þessarar nefndar og hvað munu niðurstöður hennar þýða? Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, situr fyrir svörum í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Heimavallalaust Ísland og hver er geitin?
    Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hefur leik í undankeppni Heimsmeistaramótsins þegar liðið sækir Hollendinga heim í Amesterdam næstkomandi föstudag. Því næst leikur liðið heimaleik gegn Rússum, en leikurinn fer fram í hinni sögufrægu Pétursborg. Bíddu nú við, er þetta ekki heimaleikur? Jú, svo sannrlega. En íslenska liðið má ekki leika sína heimileiki hér á landi, vegna aðstöðuleysis. Laugardalshöllinn hefur lengi verið á undanþágu hjá bæði alþjóðahandknattleikssambandinu og hjá alþjóðakörfuknattleikssambandinu vegna ýmissa vankanta. Nú er Laugardalshöllin óleikfær vegna leka þar á síðasta ári, og FIBA hyggst ekki veita KKÍ undaþágu ofan á undanþágu. Þetta er niðurlægjandi segir formaður KKÍ, við ræðum við hann í síðari hluta þáttarins og við Helgu Margréti Höskuldsdóttur íþróttafréttamann, um aðstöðuleysi íslensku landsliðanna.
    Þá örskýrir Atli Fannar Bjarkason fyrir okkur hvað það er að vera ?geit.?
    58 min
  • Sonur Gaddafis í framboð og aukastörfin á breska þinginu
    Við byrjum í Líbíu. Sonur Muammars Gaddafi, fyrrverandi leiðtoga Líbíu, er meðal þeirra sem nú gefa kost á sér í forsetakosningum í landinu, tíu árum eftir að föður hans var steypt af stóli og tekinn af lífi. Algjör upplausn hefur ríkt í áratug en nú segist hann ætla að endursameina landið, en kosið verður á aðfangadegi jóla. Hver er þessi maður - sem sat í stofufangelsi í sex ár - og hversu líklegt er að honum takist að ná völdum? Til svara því er Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamaður og sérfræðingur í málefnum mið-austurlanda.
    Spilling og hræsni hafa verið vinsæl orð í breska þinginu undanfarna daga í tengslum við umræður um aukastörf þingmanna, regluverkið í kringum þau og hvort eigi að setja bann við þeim. Málið vatt hratt upp á sig í kjölfar þess að Boris Johnson lagði fram tillögu til breytinga á reglunum sem flestir túlkuðu sem tilraun hans til að bjarga samflokksmanni hans, sem gerst hafði uppvís að broti á reglunum um aukastörf þingmanna, frá refsingu og viðurlögum við þeim. En ef það var meiningin misheppnaðist sú tilraun forsætisráðherrans hrapallega. Við förum nánar yfir málið og tilraun Johnsons í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…