Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Umhverfisvæn tækni og netlöggur
    Þriðji dagur loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26 í Glasgow, er gengin í hönd, þar sem yfir 120 þjóðarleiðtogar og önnur mektarmenni, umhverfisaktívistar, vísindamenn og ja allir sem vettlingi geta valdið virðist vera, eru saman komin til að leita að úrlausnum um hvað ríki heims þurfi að gera til að halda hlýnun jarðar innan við eina og hálfa gráðu frá upphafi iðnbyltingar. Ein stærsta áskorunin í umhverifsmálum í dag tengist tækninni og hinum svokölluðu orkuskiptum. Hvernig og hvenær getum við með raunhæfum hætti minnkað, og að endingu, hætt að nota jarðefnaeldsneyti? Hvernig getum við nýtt tæknina til að vera umhverfisvænni og hvað er verið að gera til þess að bæði fyrirtæki og einstaklingar geti lifað umhverfisvænna lífi? Kristjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur Hádegisins segir okkur betur frá því.
    Morðmál hinnar bandarísku Gabrielle Petito varpar ljósi á bæði hugsanlegan ávinning og hugsanlegar afleiðingar þess að almenningur taki í auknum mæli rannsóknir á alvarlegum sakamálum í eigin hendur, aðeins vopnaðir tölvu, nettengingu og þeim hafsjó af upplýsingum sem flestir skilja eftir sig á netinu í dag. En er þessi þróun góð eða slæm? Hverjir eru kostirnir og gallarnir við netlöggurnar? Við fengum til okkar Mar­gréti Valdi­mars­dótt­ur, doktor í afbrota­fræði og dós­ent í lög­reglu­fræði við Háskól­ann á Akur­eyri, til að svara því.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Morðið á Gabrielle Petito og COP26
    Morð á ungri bandarískri stúlku, Gabrielle Petito, hefur hrundið af stað samtali og umræðu og varpað ljósi á ýmis konar samfélagsleg vandamál og misbresti. Til dæmis kerfislæga mismunun, fjölmiðlaumfjöllun, kynbundið ofbeldi, lífið í netheimum og sjálfskipaða internet-rannsóknarlögreglumenn, vopnaða tölvum og nettengingu - og ágæti þeirra.
    Loftslagsráðstefna Sameinuðu Þjóðanna, COP26 var sett í Glasgow á sunnudag. Þar eru samankomnir um 120 þjóðarleiðtogar, auk ríkiserindrekaa, vísindamanna, sérfræðinga, fréttafólks og baráttufólks í loftslagsmálum. Markið ráðstefnunnar er ærið: að samþykkja nýjar skuldbindingar ríkja gagnvart Parísarsamkomulaginu, sem samþykkt var á síðustu loftslagsráðstefnu í París - 2015. Í síðari hluta þáttarins förum yfir það helsta sem gerðist á ráðstefnunni í gær.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Handboltavertíð og Facebook breytir nafni sínu í Meta
    Í fyrri hluta þáttarins sest Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður niður með okkur og ræðir við okkur um handbolta. Karla- og kvennadeildir eru komnar af stað hér á landi. Einar spáir í spilin og ræðir einnig um ný ofurlið í evrópskum handbolta.
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um nafnabreytingu samskiptarisans Facebook, sem heitir nú Meta. Með nafnabreytingunni er Facebook nú að leggja áherslu á aukinn sýndarveruleika.. Nafnabreytingin er sjálf er því kannski ekki stóru fréttirnar hér, heldur fremur sá sýndarveruleikaheimur sem Meta hyggst stofna. Davíð Lúther Sigurðarson frmakvæmdastjóri auglýsingastofunnar Sahara, ræðir við okkur um nýjasta ráðabrugg Mark Zuckerberg.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Hrekkjavaka og þjóðernispopúlismi
    Í Hádeginu í dag er fjallað um hrekkjavökuna og þjóðernispopúlisma. Í fyrri hluta þáttarins örskýrir Atli Fannar Bjarkason hrekkjavökuna, sem er komin til að vera á Íslandi. Íslensk börn eru byrjuð að klæða sig upp í búninga, flakka á milli húsa og biða um grikk eða gott og í vikunni greindi Vísir frá því að sala á graskerjum hafi fjórtánfaldast í verslunum Krónunnar frá árinu 2017.
    Í síðari hluta þáttarins er rætt við Eirík Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði, um þjóðernispopúlisma. Eiríkur gaf nýverið út bókina Þjóðarávárpið, þar sem hann fjallar um þjóðernishugmyndir, popúlisma, upplýsingaóreiðu og samsæriskenningar af ýmsu tagi hafa sem hafa verið áberandi í samtímanum í þjóðfélagsumræðu á Vesturlöndum. Hvað hefur valdið þessari þróun og hvert stefnum við?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ísrael, Palestína og Siggi hakkari
    Við byrjum í Landinu helga, Ísrael og Palestínu. Frá stofnun Ísraelsríkis 1949 Ísraelar og Palestínumenn eldað grátt silfur. Án þess að ætla að gera mjög flókna og langa sögu stutta og einfalda, þá byggjast deilur þessara ríkja á landsvæði. Ísraelar hafa frá því í sex daga stríðinu - þegar Ísraelsríki náði Vesturbakkanum svokallaða á sitt vald - reynt með þó nokkrum árangri að stækka landssvæði sitt undir botni Miðjarðarhafs, og það á kostnað Palestínuríkis - ríkis sem er ekki viðurkennt sem sjálfstætt ríki nema af hluta alþjóðasamfélagsins og er ekki aðildarríki að Sameinuðu þjóðunum - er þar aðeins með áheyrnarfulltrúa. Síðustu daga hefur dregið til tíðina, en sex palestínsk mannúðar- og mannréttindasamtök voru á dögunum sett á lista ísraelskra yfirvalda yfir hryðjuverkasamtök. Þetta eru meðal annars samtök sem stunda hjálparstarf með fjárhagslegum stuðningi Evrópusambandsins og skrásetja mannréttindabrot og stríðsglæpi á hernumdu svæðunum. Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamaður og sérfræðingur í málefnum mið-Austurlanda er sestur ræðir þessi mál við okkur í dag.
    Fimmtán eru með réttarstöðu sakbornings í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklum fjársvikum, peningaþvætti og skjalafalsi, og þar sem tugir milljóna eru undir. Lögregla telur að Sigurður Ingi Þórðarson, oft kallaður Siggi hakkari, sé höfuðpaur í málinu. Þá er Sigurður einnig viðriðinn annað stórt mál - en hann er lykilvitni í máli bandarískra stjórnvalda gegn Julian Assange. Bandarísk stjórnvöld freista þess nú að fá Assange framseldan fyrir áfrýjunarrétti í Lundúnum. Þar er Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, blaðamaður Stundarinnar, staddur. En hann ræðir við okkur um fjársvikamálið, Assange og Sigga hakkara í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Konur í upplýsingatækni og réttað yfir Matteo Salvini
    Í fyrra hluta þáttarins ræðir Kristjana Björk Barðdal um nýja könnun þar sem staða kvenna í upplýsingatækni var skoðuð. Heimur upplýsingatækninnar hefur löngum þótt ansi karllægur, og því athyglisvert að skoða hvað þessi könnun segir okkur.
    Réttarhöld yfir Matteo Salvini, fyrrverandi innanríkisráðherra Ítalíu og leiðtoga Bandalagsflokksins, vegna ákvörðunar hans um að koma í veg fyrir komu skips með flóttamenn um borð hófust um helgina. Salvini er sakaður um frelsissviptingu og fyrir að misnota völd sín sem ráðherra til þess að halda um hundrað og fimmtíu flóttamönnum föngnum úti á sjó í ágúst árið 2019. Sjálfur segir hann réttarhöldin vera súrrealískan farsa. Enda hafi hann aðeins verið að sinna skyldum sínum sem innanríkisráðherra og viðhafa hagsmuni Ítalíu. Salvini á hins vegar yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi verði dómstólar á öðru máli. Við fjöllum nánar um Matteo Salvini í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Bjartsýnir Ástralir og slysaskotið á tökustaðnum
    Stjórnvöld í Ástralíu hafa nú heitið því að gera Ástralíu kolefnishlut fyrir árið 2050, en Ástralir teljast til einna mestu umhverfissóða heims. Ekki eru allir á því að þetta sé raunhæft markmið og hefur Scott Morrison forsætisráðherra, fengið yfir sig holskeflu gagnrýnisradda frá því hann kynnti áætlunina í gær.
    Tökustjórinn Halyna Hutchins lést og leikstjórinn Joel Souza særðist þegar skot hljóp af leikmunabyssu sem leikarinn Alec Baldwin beindi að linsu tökuvélar Hutchins við undirbúning á tökum á Hollywood vestranum Rust í Albuquerque í Nýja Mexíkó ríki í Bandaríkjunum nú 21. október síðastliðinn. Atvikið hefur vakið mikinn óhug og jafnvel undrun fagfólks innan kvikmyndaiðnaðarins, sem segja svona atvik hreinlega ekki eiga að geta komið fyrir á tökustað. Reglur um meðferð og notkun skotvopna við kvikmyndagerð séu einfaldlega of strangar til þess að svona slys verði. Hvað gerðist? Hver ber ábyrgð á því hvernig fór? Og hvað segja sérfræðingarnir? Við fjöllum um þetta mál, sem virðist vera á allra vörum um þessar mundir, í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…