Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Stórleikir í Evrópuboltanum og valdarán í Súdan
    Í fyrri hluta þáttarins sest Helga Margrét Höskuldsdóttir niður með okkur og ræðir stórleikina sem voru á dagskrá í evrópsku knattspyrnunni í gær, leik Manchester United og Liverpool og Barcelona og Real Madrid.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Súdan. Herinn hefur tekið völdin í Afríkuríkinu í Súdan eftir heppnað valdarán í landinu í gær. Að minnsta kosti fimm stjórnarliðar hafa verið teknir höndum, þar á meðal forsætisráðherran Abdalla Hamdok. Herinn framkvæmdi tilraun til valdaráns í síðasta mánuði, sem ekki gekk upp. Nú hefur honum tekist ætlunarverk sitt.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Coco Puffs krísan og áskoranir atvinnulífsins í loftslagsmálum
    Í örskýringu vikunnar tekur Atli Fannar Bjarkason fyrir þann styr sem staðið hefur um eitt vinsælasta morgunkorn Íslendinga, Coco Puffs.
    Í gær fór fram ráðstefna á vegum Grænvangs, Festu, Samtaka Iðnaðarins, Reykjavíkurborgar og fleiri þar sem áherslan var á verkefni sem Bretar hafa keyrt áfram í undirbúningi að loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nóvemeber, Race to Zero, eða kapphlaupinu að kolefnishlutleysinu. Verkefnið snýst um að fá fyrirtæki, þ.e. atvinnulífið, til að skuldbinda sig til þess að verða kolefnishlutlaus á einhverjum tímapunkti. Þessi málstofa í gær skiptist í íslenskan og erlendan hluta, erlendir gestir og fulltrúar rbeskra fyritækja kynntu sína reynslu og íslenskir aðilar ræddu um hvernig málin snúa hérna megin frá. Einn aðillana sem koma ða verkefninu er Grænvangur, samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífs í loftslagsmálum og grænum lausnum. Grænvangur berst á innlendum og erlendum vettvangi, erlendis kynna þau íslenskar lausnir í loftslagsmálum, en innanlands vinnur Grænvangur í því að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda í því að draga úr losun innanlands. Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður Grænvangs, var til viðtals í síðari hluta þáttarins.
    58 min
  • Arfleið Colin Powell hjón ákærð fyrir landráð
    Colin Powell lést af völdum Covid á dögunum en hann skilur eftir sig glæsta arfleifð ef marka má umfjöllun flestra bandarískra fjölmiðla. Fyrsti svarti utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fjögurra stjörnu hershöfðingi og maður sem margir spáðu því að yrði fyrsti þeldökki forsetinn. Eina háværa gagnrýnisröddin virðist koma frá Donald Trump, sem segir Powell misheppnaðann mann sem hafi borið ábyrgð á röð mistaka. Gunnar Hrafn Jónsson lítur við og ræðir um Colin Powell
    Ósköp venjuleg bandarísk úthverfahjón voru handtekin fyrr í mánuðinum á heimili sínu í Maryland og ákærð nú á þriðjudaginn fyrir að ætla að selja upplýsingar um kjarnorkuknúin herskip til erlendra ríkja. En maðurinn, Jonathan Toebbe, vann sem kjarnorkufræðingur hjá bandaríska sjóhernum og hafði því aðgang að afar viðkvæmum og vernduðum upplýsingum, svo sem um hönnun kjarnorkuknúinna herskipa Bandaríkjahers. Upplýsingarnar setti hann á minniskort sem hann kom svo í hendur fulltrúa erlends ríkis með ævintýralegum aðferðum, svo sem í hnetusmjörssamloku, tyggjópakka og plástraumbúðum, á meðan eiginkona hans stóð vörðinn. Hjónin þáðu svo greiðslu fyrir í rafmynnt frá hinum erlenda erindreka - sem því miður fyrir þau var reyndar alríkislögreglumaður í dulargervi. Við skoðum málið nánar í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Skipulögð úrelding og sjálfstæðisbarátta Alsír
    Þið kannist eflaust við það að tiltölulega nýleg raftæki eiga það til að hætta skyndilega að virka. Í gamla daga virtust raftæki endast heilu áratugina; ísskápurinn var alltaf sá sami, útvarpstækið og síminn líka. Upplifun margra neytenda í dag er öðruvísi, þrátt fyrir að tækninni hafi fleytt fram og maður myndi ætla að raftæki væru endingarbetri í dag. Þau eru það nefnilega, en hagur framleiðandans er hinsvegar auðvitað sá að þú kaupir fleiri tæki af þeim. Þetta fyrirbæri kallast skipulögð úrelding. Semsagt, þegar framleiðindi ákveður líftíma tækja sinna. Kristjana Björk Barðdal, sérfræðingur Hádegisins í nýjustu tækni og vísindum, lítur við.
    Sjálfstæðisbarátta Alsír var löng og ströng og oft og tíðum grimmileg. Atburðir sautjánda október 1961 eru glöggt dæmi um það. Þá réðist lögregla að alsírskum mótmælendum sem höfðu safnast saman til að mótmæla útgöngubanni um nætur í París sem aðeins gilti um Alsíringa - myrti tugi eða hundruði mótmælenda og köstuðu svo líkunum í Signu. Sextíu ár eru liðin síðan voðaverkin áttu sér stað og á sunnudaginn var þeirra minnst í Parísarborg. Þá varð Emmanuel Macron fyrsti forseti Frakklands sem tekur þátt í minningarathöfn vegna atburðanna. Þar sagði hann atlögu lögreglunnar ófyrirgefanlegan glæp. Hann var í kjölfarið gagnrýndur fyrir að stíga ekki skrefið til fulls: Biðja Alsíringa ekki formlega afsökunar á ódæðinu og viðurkenna ekki þátt franska ríkisins í því. Í seinni hluta þáttarins ræðum við við Torfa Tulinius, prófessor í íslenskum miðaldarfræðum við Háskóla Íslands, um atburði sautjánda október 1961, sjálfstæðisbaráttu Alsír og samskipti ríkjanna í dag.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Uppruni Covid-19 og salan á Mílu
    Á þessu augnabliki hafa fleiri en tvö hundruð og fjörutíu milljónir manna smitast af Covid-19 veirunni á heimsvísu. Tæplega fimm milljónir hafa látist af völdum þessarar plágu - einum mannskæðasta faraldri sögunnar. Og þó veiran hafi herjað á okkur í tæplega tvö ár falla enn ný og ný óeftirsóknarverð met: Metfjöldi smita greindust á Nýja-Sjálandi í gær og þá hafa aldrei hafa fleiri látist í þessum faraldri á einum sólarhring en nú á laugardaginn í Rússlandi, eða þúsund einstaklingar. Svona er tölfræðin. Beinar afleiðingar plágu svart á hvítu. En svo er það líka allt hitt, eins og við þekkjum allt of vel - allar hinar afleiddu afleiðingar heimsfaraldurs: Óöryggi, óvissa, kvíði, einmannaleiki, sorg, óstöðugleiki, fjárhagsáhyggjur, aukið atvinnuleysi, kóvid-kreppa og svona mætti allt of lengi telja. Katrín fer yfir stöðuna á heimsfaraldri, og kenningar um uppruna veirunnar, í fyrri hluta þáttarins.
    Síminn er langt kominn með sölu á dótturfyrirtækinu Mílu sem rekur ljósleiðarakerfi um allt land, og á í einkaviðræðum við franska sjóðsstýringafyrirtækið Ardian France SA, stórt alþjóðlegt fyrirtæki, um söluna. Salan á Mílu var rædd á fundi þjóðaröryggisráðs í gær enda rekur Míla stóra fjarskiptainnviði á Íslandi. En hvers vegna er Síminn að selja Mílu og hvað þýðir það? Við fjöllum um málið í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Morðið á David Amess og HM í fótbolta á tveggja ára fresti?
    Breski þingmaðurinn David Amess var stunginn til bana á föstudagsmorgun þegar hann sat á opnum kjördæmafundi ásamt samflokksmönnum sínum í kirkju smábænum Leigh-on-Sea í Essex. Morðið er rannsakað sem hryðjuverk en sá sem er grunaður um að hafa framið voðaverkið er hinn tuttugu og fimm ára Ali Harbi Ali, sem hafði fyrir nokkrum árum verið skikkaður á forvarnarnámskeið ætlað íslömskum öfgamönnum, námskeið þar sem sem þess er freistað að snúa þeim af rangri braut.
    Hugmyndir FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins um að halda HM karla í fótbolta á tveggja ára fresti í stað fjögurra ára fresti hefur fallið í grýttan jarðveg margra annarra íþróttasambanda. Nú hefur IOC, Alþjóða Ólympíunefndin látið í sér heyra og er langt frá því að vera sátt við hugmyndir FIFA. Við ræðum málið í síðri hluta þáttarins við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamann.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Squid Game og lestarsamgöngur á Íslandi
    Suður-Kóresku sjónvarpsþættirnir Squid Game eru vinsælustu sjónvarsþættir heims um þessar mundur. Þeir eru umdeildir mjög, þar sem þeir þykja einkar ofbeldisfullir. Atli Fannar Bjarkason lítur við í Hádeginu og örskýrir um málið snýst.
    Á Íslandi eru engar lestir, engar lestarsamgöngur eins eiginlega allstaðar í kringum okkur. Það er umhverfisvænt að ferðast með lest, og þægilegt. Það þekkja allir sem hafa komið til útlanda. Umræðan um lestarsamgöngur á Íslandi skýtur oft upp kollinum en rökin gegn því að byggja hér upp lestarkerfi eru ýmiskonar, þá aðallega fjárhagslegs eðlis. Rúnólfur Ágústsson hefur undanfarin ár kannað möguleikan á rekstri lestarsamgangna hér á landi, aðallega með tilliti til lestar til og frá Keflavíkurflugvelli til miðborgar Reykjavíkur. Rúnólfur lítur við í síðari hluta þáttarins og við ætlum að fjalla um þennan samgöngumáta sem margir óska sér hér á landi, en virðist eins og staðan er núna, vera fjarlægur draumur.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Algóryðmar, samfélagsmiðlar og morðmálið á Grænlandi
    Algoritmar eða reiknirit eins og það er kallað á góðri íslensku, vinna úr öllum þem gögnum sem við skiljum eftir okkur á netinu. Allt sem við gerum í tækjunum okkar er geymt og notað til þess að veita okkur eins góða þjónustu og hægt er eða til þess að láta okkur eyða eins miklum tíma og peningum og hægt er í allskonar hluti og miðla, það fer eftir því hvernig þú lítur á það. Hver kannast ekki við að hafa leitað eftir ódýrum kattamat á Google og skyndilega snúast allar auglýsingar sem birtast á samfélagsmiðlunum þínum um ketti. hún Kristjana Björk Barðdal, tölvunarfræðingur og sérlegur sérfræðingur Hádegisins um nýjustu tækni og vísindi ræðir við okkur um algóryðma og samfélagsmiðla.
    Lögreglu á Grænlandi hefur, með aðstoð dönsku lögreglunnar, tekist að bera kennsl á líkamsleifar sem fundust á sopbrennslustöð í bænum Ilulissat í byrjun mánaðar. Lögregluyfirvöld segja fullvíst að hinn látni - tuttugu og fjögurra ára gamall heimamaður, hafi verið myrtur. Tveir eru grunaðir um ódæðisverkið, maður og kona, sem bæði voru látin sæta gæsluvarðhaldi. Konunni hefur verði sleppt úr haldi en maðurinn verður í haldi fram í nóvember. Við skoðum málið nánar í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Muqtada al-Sadr sigurvegar Írakskosninga og keisarakrísan í Japan
    Við byrjum Hádegið í dag í Mið-Austurlöndum með Gunnari Hrafni Jónssyni, blaðamanni og sérfræðingi um málefni Mið-Austurlanda. Undanfarnar vikur höfum við rætt um stöðuna í Afganistan eftir að Talíbanar náðu þar völdum á nýjan leik, en í dag bregðum við okkur til nágrannaríkisins Írak. Hinn alræmdi Muqtada al-Sadr er sigurvegari nýafstaðinna þingkosninga, og nágrannaríkið Íran er ekki par sátt við það.
    Mako Japansprinsessa og unnusti hennar - alþýðumaðurinn Kei Komuro - hafa loks sett dagsetningu á stóra daginn - og - komi ekki upp önnur og ný vandkvæði - verður blásið til brúðkaups tuttugasta og sjötta október. En það hefur kostað hjúin blóð svita og tár að komast á þennan stað. Hver er baksagan? Af hverju vill keisarafjölskyldan ekki að ástin nái fram að ganga í tilfelli Mako Japansprinsessu? Hvað hefur það kostað parið að komast á þennan stað og bætist eitthvað á? Við ræðum við Kristínu Ingvarsdóttur, lektor í japönskum fræðum við Háskóla Íslands um japönsku keisarafjölskylduna og krísurnar í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Stóra Birgis-málið og austurríski kanslarinn segir af sér
    Alexander Schallenberg tók í gær við embætti kanslara Austurríkis af Sebastian Kurz, sem sagði af sér í gær. Margir óttast þó að afsögnin sé aðeins til málamynda - að Kurz, sem er sakaður um að hafa notað almannafé til að fegra ímynd sína í fjölmiðlum, fari þó enn með öll völdin - bara nú á bak við tjöldin.
    Birgir Þórarinsson, sem sat á þingi fyrir Miðflokkinn á síðasta kjörtímabili og var einn þeirra þriggja þingmanna sem Miðflokkurinn fékk kosna í nýafstöðunum kosningum, skipti um lið á laugardag og gekk til liðs við þinglokk Sjáflstæðisflokksins. Miðflokkurinn logar vegna ákvörðunar Birgis en formaður Sjálfstæðisflokkinn bauð Birgi velkominn í þingflokkinn. En mörgum spurningum er ósvarað. Hvað segir íslensk stjórnskipan um svona félagaskipti, svo notað sé orðfæri íþróttanna? Er eitthvað því til fyrirstöðu að fleiri þingmenn flytji sig yfir í stjórnarflokkanna áður en ný ríkisstjórn er mynduð? Hvað verður um Ernu Bjarnadóttur, varaþingmann Birgis, sem hefur gefið út að hún mun ekki elta Birgi yfir í sjálfstæðisflokkinn? Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands og kennari í stjórnskipunarrétti, situr situr fyrir svörum í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…