Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Framsókn og Víkingar eru sigurvegarar helgarinnar
    Í Hádeginu í dag er fjallað um fótbolta og pólitík. Víkingar unnu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki karla í knattspyrnu í 30 ár, þegar þeir sigruðu Leiknismenn í Fossvogi á laugardag. Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttamaður lítur við í fyrra hluta þáttarins.
    Í síðari hluta þáttarins ræðum við um mögulegar ríkisstjórnarmyndanir með Eiríki Bergmann Einarssyni, prófessor í stjórnmálafræði. Framsóknarflokkurinn bætir við sig þingmönnum frá síðustu kosningum en Vinstri græn missa þrjá. Verður Katrín Jakobsdóttir áfram forsætisráðherra, eða gera Bjarni Benediktsson eða Sigurður Ingi Jóhannsson kröfu um forsætisráðherraembættið?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Misjafnt vægi atkvæða og á að ritskoða söguna?
    Kosið er til Alþingis á morgun og samkvæmt nýjustu könnunum stefnir allt í æsispennandi kosningar. Hvert einasta atkvæði skiptir máli, en mismiklu þó, þar sem Íslandi er er skipt upp í nokkur kjördæmi. Þessi kjördæmaskipting hefur verið þrætuepli stjórnmálamanna, og kjósenda, lengi vel og finnst mörgum að tími sé til kominn að breyta þessu. En hvers vegna og hvað þýðir þessi kjördæmaskipting? Það er föstudagur, og á föstudögum örskýrir Atli Fannar Bjarkason flókin fyrirbæri á einfaldan hátt. Í dag ætlar hann að taka fyrir kjördæmavægið svokalllaða - og það í beinni útsendingu.
    Ákveðnir einstaklingar hafa í gegnum söguna haft svo mikilsverð og veigamikil áhrif á framgang sögunnar og samfélagsins að sumum hefur - á einhverjum tímapunkti - jafnvel þótt við hæfi að hylla þá einstaklinga, og þeirra framlag, með því að reisa styttur eða minnisvarða þeim til heiðurs - Styttur sem eru allt um kring, nánast sama hvar drepið er niður á þessari jörð. En hvaða þýðingu hafa þær? Hvaða skilaboð var verið að senda með þeim? Hvaða skilaboð er verið að senda með þeim í dag? Af hverju krefst almenningur í síauknum mæli að sumar þeirra verði fjarlægðar? Er það sögufölsun eða leið til að færa söguna nær sannleikanum? Við ræðum við Kristínu Loftsdóttur, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, um málið í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Tölvuárásir og loforð Bidens í baráttunni við Covid-19
    Rússneskir tölvuþrjótar tóku allt tölvukerfi hátæknifyrirtækis Geislatækni í Garðabæ í gíslingu í síðustu viku, og krefjast tuga milljóna í lausnargjald. Brotist var inn í tölvukerfi fyrirtækisins klukkan hálf þrjú aðfaranótt föstudagsins síðasta, en fyrirtækið sérhæfir sig í að skera og beygja stál með með leysigeisla og hátækniaðferðum og vinnur fyrir ýmis hátæknifyrirtæki. Þetta er gert í tölvustýrðum vélum. Þetta er ekki fyrsta netárásin sem framin er á íslensk fyrirtæki, því fer fjarri. Fyrr í mánuðuin voru gerðar fjórar netárásir á íslensk fjármálafyrirtæki, Valitor, Arion banka og Íslandsbanka. Kristjana Björk Barðdal tölvunarfræðingur og hlaðvarpsstjórnandi ræðir við okkur um tölvuárásir.
    Joe Biden Bandaríkjaforseti biðlar til auðugri ríkja heims að leggja hönd á plóg og sameinast um að binda enda á langvinnan heimsfaraldur á sérstakri Covid-19 ráðstefnu/samkomu sem forsetinn boðaði til. Í seinni hluta þáttarins förum við yfir tillögur Biden, framlag Bandaríkjanna og stöðuna á kórónuveirunni og bólusetningum við henni á heimsvísu.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Robert Durst í steininn og er mark takandi á könnunum?
    Einungis þrír dagar eru til kosninga og hver fer nú að verða síðastur til að ákveða sig hvað skal kjósa. Úr vöndu er að ráða, að minnsta kosti ef marka má skoðannakannanir, en það stefnir í einar mest spennandi kosningar í manna minnum. Ný Þjóðarpúsl Gallup, sem gerður var fyrir fréttastofu RÚV, var birtur í fyrradag og þar kemur fram að ríkisstjórnarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri Græn og Framsókn, fengju 30 þingmenn og myndu missa meiriahluta á þingi, ef kosið væri nú. Með öðrum orðum, ríkisstjórnin væri fallin. Þeir Ólafur Þ. Harðarson og Bogi Ágústsson eru gestir dagsins í Kosningahlaðvarpi RÚV, X21 þar sem þeir voru spurðir um þessa nýjustu skoðannakönnun. En er eitthvað mark takandi á svona skoðannakönnunum?
    Robert Durst, Bandarískur milljarðamæringur á áttræðisaldri, hefur verið sakfelldur fyrir morðið á vinkonu sinni, glæpasagnahöfundinum Susan Berman. Hann er sagður hafa myrt Berman árið 2000 af því að hún vissi of mikið - hún gæti komið upp um annað morð sem hann á að hafa framið - morð eiginkonu hans, Kathleen Durst sem hvarf árið 1982. En ekkert hefur spurst til hennar síðan og málið hefur aldrei verið leyst. Durst hefur áður verið sýknaður í enn öðru morðmáli - en hann var sakaður um að hafa myrt nágranna sinn árið 2001. Hver er þessi auðugi maður - sem sagður er einstaklega sérlundaður? Af hverju er hann á allra vörum? Hvernig getur einn maður verið frjáls ferða sinna í áratugi - þó grunaður um þrjú morð? Og hvernig fléttast kvikmyndaiðnaðurinn inn í þetta allt saman? Við skoðum málið í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Rússar ábyrgir fyrir dauða Litvinenkos og rauður dagur í kauphöllinni
    Rússnesk stjórnvöld bera ábyrgð á dauða Alexanders Litvinenkos, fyrrum njósnara rússnesku leyniþjónustunnar. Þetta er niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu. Litvinenko lést á sjúkrahúsi í Lundúnum í nóvember 2006 eftir að eitrað hafði verið fyrir honum skömmu áður. Og samkvæmt úrskurði Mannréttindadómstólsins frá því í morgun er það hafið yfir allan vafa að Andrei Logovoi og Dmitry Kovtun hafi staðið fyrir eitruninni - og að líklegt sé að þeir hafi fengið fyrirmæli um ódæðið frá rússneskum stjórnvöldum. Mennirnir tveir - sem og rússnesk stjórnvöld - hafa ávallt neitað sök. Málið er meðal umtöluðustu morðmála síðustu áratuga.
    Gærdagurinn var rauður í íslensku kauphöllinni í gær en verð lækkaði í öllum félögum á markaði. En ekki bara hér, heldur einnig víða í Bandaríkjunum og Evrópu. Fréttir af gjaldþroti kínverska fasteignafélagsins Evergrande spila þar inn í, en einnig skjálfti meðal fjárfesta fyrir komandi kosningum. Þetta segir Már Wolfgang Mixa, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, en við ræðum við hann um hlutabréfamarkaðinn duttlungarfulla í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Covid-réttarhöldin í Vín og dramatík í Vesturbænum
    Covid-réttarhöld - ef svo má að orði komast - hófust í Vínarborg í Austurríki á föstudaginn. Þetta eru fyrstu réttarhöldin af þónokkrum sem beinast að austurrískum yfirvöldum sem eru sökuð um seinagang í viðbrögðum við útbreiðslu kórónuveirunnar í Ischgl og fleiri skíðabæjum í Týról snemma í faraldrinum, þrátt fyrir viðvaranir, svo sem frá Íslandi. Þúsundir manna frá fjörutíu og fimm löndum segjast hafa smitast af COVID-19 á skíðasvæðinu Ischgl í mars á síðasta ári - og svo "tekið hana með sér heim", ef svo má segja. En málið hefur vakið heimsathygli og vangaveltur hafa vaknað um hvort jafnvel megi rekja upptök fyrstu bylgju faraldursins í Evrópu til austurríska skíðasvæðisins.
    Mikil spenna er í efstu deild karla í fótbolta, en næst síðasta umferð deildarinnar klárast í kvöld þegar HK mætir Stjörnunni. Víkingar tylltu sér á topp deildarinnar í gær með hádramatískum sigri gegn KR-ingum í Vesturbænum, og á sama tíma biðu Blikar lægri hlut gegn FH í Kaplakrika. Liðin höfðu sætaskipti og nú skilja tvö stig liðin að þegar ein umferð er eftir. Eva Björk Benediktsdóttir íþróttafréttamaður lítur til okkar í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Réttað í Rauðagerðismálinu og endurlífgun loðfíla
    Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu hófst á mánudag, en þar eru fjögur ákærð fyrir morðið á Armando Beqiri. Einn fjórmenninganna, Angelin Sterkaj, albanskur karlmaður á fertugsaldri, hefur játað að hafa orðið Armando Beqirai að bana fyrir utan heimili hans í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar síðastliðinn, með því að skjóta hann níu sinnum í höfuð og búk. Hin þrjú neituðu öll sök þegar ákæran var þingfest. Rannsókn lögreglu á moðrinu í Rauðagerði er ein sú umfangsmesta í sögu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Á tímabili höfðu fjórtán réttarstöðu sakbornings og níu sátu í gæsluvarðhaldi. Freyr Gígja Gunnarsson, fréttamaður, hefur setið réttarhöldin í vikunni, en þeim lauk í gær og munnlegur málflutningur í málinu fer fram eftir tæpa viku, næstkomandi fimmtudag. Freyr fer yfir þessi flóknu réttarhöld.
    Vísindamenn freista þess um þessar mundir að endurvekja loðfíla - risaskepnur sem hafa verið útdauðar í um fjögur þúsund ár. Gangi áætlanir þeirra eftir segir fyrirtækið að tæknin geti nýst á ýmsan annan hátt í framtíðinni: Svo sem til að viðhalda stofni dýra sem eru í bráðri útrýmingarhættu og reisa við stofna sem mannkynið hefur útrýmt. Þá gæti tæknin haft jákvæð áhrif á loftslagsvána. Við könnum þetta forvitnilega mál nánar í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Netkosningar og blóðgjafir samkynhneigðra
    Í fyrri hluta þáttarins er rætt við Kristjönu Björk Barðdal, tölvunarfræðing og stjórnarkonu í Ský, um netkosningar. Hvar eru þær framkvæmdar, hvað felst í þeim og hvers vegna er ekki kosið á netinu á Íslandi? Hverjir eru kostir og gallar þessa fyrirkomulags?
    Karlmaður sem hefur stundað kynmök við annan karlmann má ekki gefa blóð. Þannig hefur það verið í rúm tuttugu ár. Í síðustu viku lagði heilbrigðisráðherra til breytingu á reglugerð sem miðar að því að þessu verði nú breytt - að það verði gert óheimilt að mismuna blóðgjöfum vegna kynhneigðar. Í staðinn verði kveðið á um að blóðgjafi megi ekki hafa stundað ?áhættusamt kynlíf? - það er að segja kynlíf sem eykur verulega líkur á alvarlegum smitsjúkdómum sem berast með blóði. Í seinni hluta þáttarins ræðum við við Svein Guðmundsson, yfirlækni Blóðbankans um útilokun þessa hóps frá blóðggjöf, ástæðurnar þar að baki og úrræðin sem í boði eru fyrir stjórnvöld og Blóðbankann til að gera breytingar þar á.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…