Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Morðingi RFK fær hugsanlega reynslulausn og Stefan Löfven hættir
    Rúm fimmtíu ár eru liðin frá því að Sirhan Sirhan, þá ungur maður, skaut Robert F. Kennedy, öldungadeildarþingmann og forsetaefni Demókrata, til bana á Ambassador-hótelinu í Los Angeles. Sirhan hefur setið inni síðan en þó ekki mótbárulaust. Hann hefur sextán sinnum óskað eftir reynslulausn og nú gæti honum orðið að ósk sinni. Á föstudaginn samþykkti nefnd sem úrskurðar um reynslulausn fanga í Kaliforníu að Sirhan, morðingi Kennedy, ætti rétt á reynslulausn. Tvö börn Kennedys styðja reynslulausnina. Sex systkinanna eru á móti því að hann verði látinn laus. Að endingu verður það svo Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu sem ákvarðar hvað gerist næst. Við rifjum upp málið og þessar nýjustu vendingar í fyrri hluta Hádegisins.
    Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar og formaður Jafnaðarmannaflokksins, tilkynnti nýlega að hann hygðist láta af störfum. Í Svíþjóð er talað um að Löfven hafi níu líf - maðurinn sem hefur haldið forsætisráðherraembættinu í gegnum ófáar krísur, á sama tíma og fylgi við flokk hans dalar og dalar. En hver er þessi maður - sem enginn kann illa við en fáir dást að? Hver er arfleið hans og hvaða áhrif hefur brotthvarf hans á sænsk stjórnmál? Við fáum Kára Gylfason í Gautaborg til að fara yfir það í seinni hluta Hádegisins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Stríðinu í Afganistan lokið og hin dularfulla Elizabeth Holmes
    Við hefjum Hádegið í Afganistan. Það voru eru gleðihróp sem heyrðust á alþjóðaflugvellinum í Kabúl í gær. Dýrð sé Guði, dýrð sé Guði, sögðu mennirnir og hleyptu af byssum mínum; og sprengdu flugelda. Enda tilefnið ærið. Bandaríkjaher hefur yfirgefið Afganistan, og þeir sem fagna eru liðsmenn Talíbana. Lengsta stríði í sögu Bandaríkjanna lauk með formlegum hætti í gær, þegar síðustu hermenn Bandaríkjahers flugu burt Hamid Karzai alþjóðaflugvellinum í Kabúl í Afganistan.
    Elizabeth Holmes ætlaði sér stóra hluti: Hún vildi umbylta heilbrigðisþjónustu í Bandaríkjunum, gera blóðprufur og rannsóknir einfaldari, skilvirkari, ódýrari, fljótlegri og umfram allt á allra færi. Háleitt markmið sem efasemdarmenn sögðu ómögulegt. Þrátt fyrir ótrúlega velgengni Theranos, fyrirtækis hinnar ungu Holmes, sem og velgengni hennar sjálfrar, milljarða í tekjur, lof á alþjóðavísu, umfangsmikla starfsemi og svo framvegis og svo framvegis, reyndust efasemdamennirnir hafa rétt fyrir sér.
    Þetta var of gott til að vera satt. Nú, þremur árum eftir að Holmes hefur verið kærð fyrir umfangsmikil fjársvik, eru réttarhöld í máli hennar að hefjast í Kaliforníu. Hún er sökuð um umfangsmikil fjársvik, lygar og blekkingar. Sögð hafa falsað gögn og rannsóknir og vísvitandi blekkt sjúklinga, lækna og fjárfesta. En hver er þessi kona? Hvað gekk henni til? Vildi hún aðeins öðlast skjóta frægð og frama og var sama þótt hún þyrfti að svíkja og blekkja til að koma sér þangað? Eða ætlaði hún sér - að minnsta kosti í fyrstu - góða og gilda hluti? Jafnvel að breyta heiminum til hins betra? Við skoðum málið í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Fellibylurinn Ída og krísan í Laugardalnum
    Við hefjum Hádegið í dag í Bandaríkjunum. Í gær voru sextán ár frá því að fellibylurinn Katrína reið yfir Louisiana-ríki í Bandaríkjunum með þeim afleiðingum að um átján hundruð misstu lífið, fjölmargir misstu heimili sín, allar eigur, og jafnvel lífsviðurværið. Og einmitt í gær, á þessum tímamótum í Louisiana skall fjórða stigs fellibylurinn Ída á.
    Það leikur á allt á reiðiskjálfi í Laugardalnum eftir að kona greindi frá því í kvöldfréttum RÚV á föstudag að leikmaður í A-landsliði karla í fótbolta hefði játað að hafa beitt hana ofbeldi og grófri kynferðislegri áreitni á skemmtistað fyrir fjórum árum. Knattspyrnusambandinu var haldið upplýstu um málið á sínum tíma en það rataði aldrei í fjölmiðla þrátt fyrir háværan orðróm. Orð konunnar stönguðust á við orð Guðna Bergssonar, formanns KSÍ, sem sagði í Kastljósi í vikunni að engin tilkynning hefði borist sambandinu um kynferðisbrot leikmanna. Í kjölfarið beindust öll spjót að KSÍ og í gærdag sagði Guðni af sér sem formaður KSÍ, og tveir leikmenn landsliðsins hafa verið dregnir úr hópnum fyrir komandi landsliðsverkefni. Orri Freyr Rúnarsson íþróttafréttamaður er mættur til okkar og ræðir um málið við Guðmund Björn.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Harðpróf og loftslagsváin
    Við byrjum á örskýringu vikunnar, í boði Atla Fannars Bjarkasonar. Svokölluð hraðpróf hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu, próf sem fólk getur sjálft keypt í apótekum til að athuga hvort það sé haldið hinni skæðu sótt sem veldur Covid 19 sjúkdómnum. Sitt sýnist hverjum um gildi þessara prófa, eru þau áreiðanleg eða ekki? Eitt er víst, þau gætu auðveldað fólki lífið töluvert, en mark takandi á þeim? Í örskýringum sínum leitast Atli Fannar við að útskýra flókin á sem einfaldastan hátt. Hraðpróf, hvað er nú það?
    Loftslagsmálin eru áfram eitt af stærstu verkefnum samtímans, þótt heimsfaraldur kórónuveiru hafi gert það að verkum að umhverfis- og loftslagsmálin hafa kannski verið minna í fréttum undanfarið ár, en þau síðustu. Og það er verkefni stjórnvalda í hverju landi að ákveða hvernig sé barist í slagnum við hlýnun jarðar, eða hamfarahlýnun eins og þetta fyrirbæri er stundum kallað. Ný skýrsla milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsvána bendir til að þrátt fyrir aðgerðir ríkja heims séu markmið Parísarsamkomulagsins, um að halda hnattrænni hlýnun undir tveimur gráðum, enn ekki innan seilingar. Ísland hefur skuldbundið sig til Parísarsamkomulagsins og nú þegar kosningar eru á næsta leiti, er vert að athuga hvað stjórnvöld þurfa að gera á næstu árum. Ekki bara til að standa við sinn hluta samkomulagsins, heldur einnig til að gefa enn frekar í. Í síðari hluta þáttarins ræðum við við Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðing, um helstu áskornir næstu ríkisstjórnar í loftslags- og umhverfismálum
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Yfirvofandi hryðjuverkaárás í Kabúl og nýtt skilnaðarfyrirkomulag
    Bæði bresk og bandarísk stjórnvöld hafa varað við því að hryðjuverkaárás á alþjóðaflugvöllinn í Kabúl í Afganistan sé yfirvofandi. Tugir þúsunda hafast þar við og freista þess að komast af landi brott. Flugstöðvarbyggingin hefur ekki verið rýmd en Afganar eru varaðir við að vera nærri flugvellinum.
    Í síðari hluta þáttarins fræðumst við um skilnaðarfyrirkomulag sem nýtur sífellt meiri vinsælda, það að fráskilið fólk heldur áfram heimilið sem þú bjuggu í með börnunum sínum. Börnin búa áfram á sama stað, foreldrarnir skipta tímanum á millli sín sem þau búa með þeim. Rætt verður við félagsráðgjafa um þessa virkni, kosti og galla þessarar tilhögunnar.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Guðmundar og Þórhildar Ólafsdóttur.
    58 min
  • Hækkandi stýrivextir og þingkosningar í Þýskalandi
    Stýrivextir hækkuðu í morgun upp í 1,25 prósent, eða um fjórðung af prósentu. Peningastefnunefnd Seðlabankans rökstyður ákvöðrun sína þannig að efnahagshorfur hafi batnað hér á landi frá fyrri spá bankans, og þá séu horfur á meiri hagvexti í ár en sp áð var í maí. Guðmundur Björn ræðir við Konráð S. Guðjónsson hagfræðing.
    Réttur mánuður er þar til kosið verður til Alþingis hér á landi og frambjóðendur í óða önn að hefja kosningarbaráttuna. En það eru ekki einu kosningarnar sem verður spennandi að fylgjast með, því Þjóðverjar ganga sömuleiðis að kjörborðinu eftir mánuð og velja sér þá nýtt sambandsþing. Þetta eru tímamótakosningar, því Angela Merkel kanslari lætur þá af störfum eftir sextán ára setu á kanslarastóli. Sveinn Helgason í Brussel fjallar um þýsku kosningaranar í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Guðmundar og Þórhildar Ólafsdóttur.
    58 min
  • Harris lætur Kínverja heyra það og fatafjöll í Afríku
    Við byrjum í Suður-Kínahafi. Kamilla Harris, varaforseti Bandaríkjanna, vandaði kínverskum stjórnvöldum ekki kveðjurnar í gær þegar hún gerði hernaðarumsvif Kínverja í Suður-Kínahafi að umtalsefni sínu á blaðamannafundi í Singapúr. Hún sakaði þá um yfirgang og fantaskap og fyrir að virða ekki alþjóðlega dómsúrskurði.
    Í síðari hluta þáttarins bregðum við okkur til Afríku til að skoða fjöll. Fjöll sem eru gerð úr fötum. Fötum tískuóðra vesturlandabúa og fataiðnaðar sem framleiðir miklu meira en eftirspurnin er.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Guðmundar og Þórhildar Ólafsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…