Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Ólögmætar ófrjósemisaðgerðir og nýr tónn í COVID-19 málum
    Hundruð tékkneskra kvenna voru gerðar ófrjósamar án þeirra samþykkis, allt fram til ársins 2012. Konunum, sem flestar eru af Rómaættum, var ýmist hótað eða þeim mútað til að gangast undir aðgerðina. Aðrar voru blekktar. Nú loksins, eftir langa og stranga baráttu kvennanna, aðgerðarsinna og aktívista, hafa yfirvöld í Tékklandi samþykkt að greiða konunum bætur: 300.000 tékkneskar krónur, eða um 1,7 milljónir íslenskra króna, vegna skaðans. Aðgerðarsinni segir að þar með hafi yfirvöld loks viðurkennt að brotið hafi verið á konunum.
    Það eru svo COVID-19 málin og vendingar í seinni hluta þáttarins á þessum föstudegi. En það er komið annað hljóð í strokkinn í baráttunni við heimsfaraldurinn. Bóluefnin gefa minni vörn en áður var talið, en þó eru flestir þeirra sem þau hafa þegið einkennalausir þrátt fyrir smit. Þetta vekur upp spurningar um næstu skref varðandi takmarkanir og viðbrögð við faraldrinum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Katrínar og Snærósar Sindradóttur.
    58 min
  • Lagaleg réttindi hinsegin fólks og Cuomo í klandri
    Þrátt fyrir þá ímynd að hinsegin fólk búi við bjarta framtíð og full réttindi hér á landi er staðan önnur þegar horft er til lagarammans. Regnhlífarsamtök hinsegin fólks í Evrópu gefa árlega út svokallað regnbogakort þar sem lagaleg réttindi hinsegin fólks í fjörutíu og níu löndum Evrópu eru könnuð með ítarlegum hætti. Ísland hafnar þar í fjórtánda sæti. Snærós Sindradóttir kannar hvers vegna það er í Hádeginu í dag.
    Joe Biden Bandaríkjaforseti krefst afsagnar Andrew Cuomo ríkisstjóra New York. Ríkissaksóknari fylkisins kynnti niðurstöður óháðrar rannsóknar á framferði ríkisstjórans á blaðamannafundi í gær. Samkvæmt þeim hefur ríkisstjórinn kynferðislega áreitt fjölda kvenna, þar á meðal samstarfskonur sínar, og brotið gegn bæði ríkis- og alríkislögum. Cuomo þvertekur fyrir það og segir málið allt byggt á misskilningi. Ráðist var í rannsóknina í kjölfar þess að fjöldinn allur af ásökunum á hendur ríkisstjóranum komu fram, eða minnst ellefu. Við förum betur yfir sögu í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Katrínar og Snærósar Sindradóttur.
    58 min
  • Barist um Sheikh Jarrah og staðan í Hvíta-Rússlandi
    Barátta um eignarhald á landi Sheikh Jarrah-hverfisins í Austur-Jerúsalem dregst enn á langinn. Í gær frestaði Hæstiréttur í Ísrael, í annað sinn, úrskurði um hvort vísa megi palestínskum fjölskyldum af heimilum sínum til að rýma fyrir landtökubyggðum Ísraela í hverfinu. Barist hefur verið um eignarhald á svæðinu í um þrjátíu ár.
    Hvítrússneski aðgerðasinninn Vitaly Shishov, sem saknað hefur verið frá því í gærmorgun, fannst hengdur í almenningsgarði í Kiev í morgun, skammt frá heimili hans. Shisov skilaði sér ekki aftur heim eftir að hann fór út að skokka í gærmorgun. Lögreglan segist rannsaka allar hliðar málsins, meðal annars hvort morð hafi verið framið og dulbúið sem sjálfsvíg. Shiskov fór fyrir frjálsum félagasamtökum sem aðstoða fólk við að flýja Hvíta-Rússland í óþökk þarlendra stjórnvalda. Þá ætluðu stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi að senda ólympíukappann og spretthlauparann Krystsinu Tsimanouskayu nauðuga viljuga frá Tókíó til Hvíta-Rússlands og koma í veg fyrir að hún tæki þátt í Ólympíuleikunum, en yfirvöldum í Japan tókst að skjóta yfir hana skjóli í tæka tíð. Fjöldi Hvítrússa hefur flúið land undanfarið, einkum til Úkraínu, Póllands og Litháen. Rætt er við Guðlaug Þór Þórðarsson utanríkisráðherra og Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamann, sem staddur er í Tókíó um málið í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Katrínar og Snærósar Sindradóttur.
    58 min
  • Rölt um Marolles
    Sagan er bókstaflega við hvert fótmál í Marolles hverfinu í Brussel sem er suðupottur ólíkra menningaráhrifa. Margir gyðingar bjuggu áður í hverfinu sem svo voru myrtir í útrýmingarbúðum nasista í seinni heimsstyrjöldinni. Nöfnum og lífi þessa fólks er haldið á lofti í dag með nokkuð óvenjulegum hætti. Sveinn Helgason, okkar maður í Brussel, býr í Marolles og kynnti sér málið með því að heimsækja Gyðingasafnið í borginni og rölta eftir gangstéttum hverfisins með Fridu, Van Kamp, sérfræðingi um safnið.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Bólusetningarskylda og svokallaðir heilsupassar
    Ný lög í Frakklandi skylda heilbrigðisstarfsfólk í bólusetningu gegn veirunni sem veldur Covid-19 og gera kröfu um framvísun á gildum ?heilsupassa? svokölluðum, vilji fólk snæða á veitingahúsum, heimsækja ýmsa opinbera staði - já eða komast á milli staða með lestum eða flugvélum. Það sama er uppi á teningnum í öðrum löndum innan Evrópu, svo sem í Grikklandi, Slóvakíu og á Ítalíu - og víðs vegar hefur slíkum áformum verið mótmælt af almenningi af hörku. Þá var greint frá því í morgun að bandarísk stórfyrirtæki, alríkið, einstök ríki og borgir í Bandaríkjunum, ætli, eða hafi þegar, tekið upp bólusetningarskyldu starfsmanna - og Joe Biden Bandaríkjaforseti útilokar ekki að ríkisstarfsmenn verði skyldaðir í bólusetningu.
    En má þetta? Má skylda fólk og vissar starfsstéttir í bólusetningu? Stenst það lög? Má þá gera upp á milli bólusettra og óbólusettra svo sem með því að takmarka aðgengi þeirra síðarnefndu að veitingahúsum, samkomum og samgöngum? Við berum málið undir Halldóru Þorsteinsdóttur, héraðsdómara og lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík í Hádeginu í dag.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Veðurofsi og -öfgar
    Úr skæðum vetrarhörkum í Texas og vetrarstormi í Suðurríkjum Bandaríkjanna í febrúar, yfir í hættulega og sögulega hitabylgju í Norður-Ameríku í júní: Í Kanada, þar sem meðalhiti er vanalega tuttugu og fjórar gráður var áttatíu og fjögurra ára gamalt hitamet slegið - úr fjörutíu og fimm gráðum í fjörutíu og sjö komma níu gráður. Með tilheyrandi gróðureldum. Fleiri skæðir gróðureldar í Evrópu: Á Sardiníu á Ítalíu og í Katalóníu á Spáni og Kaliforníu í Bandaríkjunum - þar sem einn sá skæðasti hefur geisað í um tvær vikur með gífurlegri eyðileggingu á mannvirkjum og gróðri. Mannskæð flóð í Evrópu: Í Þýskalandi og Belgíu, þar sem um tvö hundruð týndu lífi, margir misstu allt sitt og enn er margra saknað. Flóð í Henan-héraði í miðhluta Kína. Rúmlega hundrað látnir í monsúnrigningu, flóðum og aurskriðum á Indlandi. Aurskriður í Japan. Og nú síðast: Alvarlegar viðvaranir vegna mikillar flóðhættu á sunnanverðu Englandi og í Wales eftir miklar rigningar, vatns- og þrumuveður í gær. Og hér með er eflaust ekki allt upp talið.
    Þegar maður dregur þetta allt saman og segir upphátt í einni bunu er óhætt að segja að þetta líti ekki vel út. En er þetta óvanalegt? Af hverju er þetta að gerast? Hvað er að gerast? Er þetta það sem koma skal eða einsdæmi? Hvað er verið að segja okkur? Hvað með Ísland? Við berum þetta allt saman undir Einar Sveinbjörnsson, sjálfstætt starfandi veðurfræðing hjá Veðurvaktinni, í Hádeginu í dag. Ræðum við hann um veðuröfgar og ofsa síðustu daga og vikur og mánuði og orsakir og afleiðingar þeirra.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ríkisstjórnin fundar um hertar aðgerðir
    Ríkisstjórnin kemur saman til fundar klukkan fjögur í dag á Egilsstöðum til að ræða tillögur sóttvarnarlæknis að hertum aðgerðum innanlands, en í dag eru einmitt fjórar vikur síðan þjóðin fagnaði þeim merka áfanga að öllum sóttvarnaraðgerðum var aflétt innanlands. Smitum hefur farið ört fjölgandi að undanförnu. Í fyrradag greindust 78 með Covid-19, en ekki hafa fleiri smit greinst á einum degi síðan 27. október í fyrra. Í gær fóru á fjórða þúsund manns í sýnatöku á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim reyndust 76 smitaðir. Flestir þeirra sem nú greinast smitaðir eru bólusettir. En hvernig má það vera? Eru bóluefnin ekki að virka sem skyldi? Og hvað þá? Við skoðum málið í Hádeginu í dag.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Frelsi fjölmiðla
    Þrjátíu og tveir blaðamenn létust við störf sín í fyrra. Þar af voru tuttugu og tveir myrtir, samkvæmt tölum CPJ, Samtaka um vernd fréttamanna. Sex blaða- og fréttamenn hafa verið myrtir vegna starfa sinna á þessu ári. Meðal þeirra er einn þekktasti rannsóknarblaðamaður Hollands Peter de Vries, sem lést af sárum sínum nokkrum dögum eftir að hann var skotinn þar sem hann yfirgaf myndver sjónvarpsstöðvarinnar RTL, en þar hafði hann tekið þátt í umræðum í beinni útsendingu. Þá hafa árásir á blaðamenn, starfa þeirra vegna, færst í aukanna að undanförnu, sér í lagi á tímum heimsfaraldurs. Þá vilja ekki stjórnvöld allra ríkja að fjölmiðlar fái frelsi til að veita almenningi upplýsingar svo sem um stjórnarfar landsins, eða þeim aðhald, líkt og nýleg dæmi, svo sem frá Hong Kong og Hvíta-Rússlandi, sýna. Við ræðum við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, fréttamann og formann Blaðamannafélags Íslands, um fjölmiðlafrelsi og stöðuna á fjölmiðlaumhverfinu bæði hér heima og á heimsvísu, í Hádeginu í dag.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Fyrsti dómurinn vegna innrásarinnar í þinghúsið uppkveðinn
    Rúmlega fimm hundruð af þeim átta hundruð þátttakendum í innrásinni á þinghúsið í Washington-borg í Bandaríkjunum sjötta janúar hafa verið handteknir. Tæplega sex hundruð hafa svo verið ákærðir. Og á mánudaginn féll fyrsti dómurinn. Þá var Bandaríkjamaðurinn Paul Allard Hodgkins dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að ráðast inn í þinghúsið í því skyni að hindra störf þingsins. Líklegt þykir að dómurinn sé fordæmisgefandi fyrir allan þann fjölda mála sem á eftir fylgja.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Flóðin í Þýskalandi og Belgíu
    Að minnsta kosti 190 manns fórust í flóðunum í Þýskalandi og Belgíu í síðustu viku og eyðileggingin af völdum þeirra er mikill. Flóðin ollu einnig eignatjóni í Hollandi og Luxemborg. Staðfest hefur verið að 159 manns létu lífið í Þýskalandi og þrjátíu og einn í Belgíu þar sem landsmenn minntust hinna látnu með mínútu þögn í dag. Þessar tölur gætu þó enn hækkað enda margra enn saknað. Belgísku konungshjónin og forsætisráðherra landsins fóru í dag til bæjarins Verviers sem varð illa úti í hamförunum. Hreinsunarstarf er nú komið í fullan gang á flóðasvæðunum í Belgíu, meðal annars í borginni Liége og nágrenni þar sem okkar maður, Sveinn Helgason, var á ferðinni í gær. Hann ræddi við íbúa um hamfarirnar, orsakir þeirra og uppbyggingarstarfið sem fram undan er.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…