Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Ólympíuleikar í Tókýó
    Þrátt fyrir háværa gagnrýni almennings í Japan og yfirlýsingar japönsku ríkisstjórnarinnar um annað var Yoshihide Suga, forsætisráðherra Japan harðákveðinn og fastur á sínu: Ólympíuleikarnir skyldu fara fram í Tókýó og það núna. Forsætisráðherrann sagði í upphafi árs, að halda yrði trausta og örugga leika til að sýna og sanna að mannkynið hefði sigrast á veirunni. Og hann hefur ekki skipt um skoðun þrátt fyrir kannski ummerki um annað og ríkjandi neyðarástand í landinu. Og nú styttist í að óhagganlegar fyrirætlanir hans verði að veruleika. Ólympíuleikarnir - sem frestað var um ár vegna heimsfaraldurs - hefjast í Tókýó á föstudaginn. Þá keppa yfir 11.000 íþróttamenn frá allt að 206 ríkjum í rúmlega 300 viðureignum í 33 íþróttagreinum: með enga áhorfendur þó. Þá eru ótaldar þúsundir þjálfara, dómara, sjálfboðaliða og fjölmiðlafólks sem verður á staðnum. Hvers má vænta? Hvaða íþróttamönnum og liðum ætti að fylgjast sérstaklega með? Og svo auðvitað - hvaða áhrif hefur heimsfaraldur á þetta allt saman? Við ræðum við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson íþróttamann um Ólympíuleikanna í Tókýó í Hádeginu í dag.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Örskýring: Vefverslun með áfengi
    Ríkið er með einkaleyfi á smásölu á áfengi hér á landi. Þrátt fyrir það hafa Íslendingar getað og mátt kaupa sér áfengi í gegnum erlendar netverslanir - sem virðast spretta upp um þessar mundir og segjast bjóða áfengi á lægra verði en gengur og gerist almennt. Og nú reka sumar þeirra lager hér á landi og geta því boðið upp á heimsendingar samdægurs. ÁTVR hefur brugðist harkalega við og vill lögbann á starfsemina og hyggst einnig fara með málið fyrir dómstóla.
    En hvað verður til þess að innlendir aðilar ákveði að opna vefverslanir í útlöndum til þess eins að geta selt áfengi og það á lægra verði? Og af hverju kostar áfengi á Íslandi svona mikið? Hvaða áhrif hefur verðið á neysluna? Og hvað gerist næst?
    Atli Fannar Bjarkason skoðar málið í blautustu örskýringu Hádegisins hingað til.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ken Thomas og íslenskt tónlistarlíf
    Enski upptökustjórinn Kenneth Vaughan Thomas, betur þekktur sem Ken Thomas, lést þann áttunda júlí eftir að hafa kljáðst við Parkinson sjúkdóminn í áraraðir. Arfleið hans er merk og mikil - bæði vann hann með heimsfrægum listamönnum á borð við Queen og David Bowie - en tók einnig sérlegu ástfóstri við Ísland, land og þjóð, sér í lagi íslenskt tónlistarlíf. Hann vann með Sykurmolunum, Sigur Rós, Bubba Morthens, Risaeðlunni, Nýdönsk, Mínus og Botnleðju, svo dæmi séu nefnd. Áhrif hans á tónlistarlíf- og sögu lands vors og þjóðar eru því umtalsverð. Við ræðum við Curver Thoroddsen, tónlistarmann og upptökustjóra, í Hádeginu i dag, um manninn, starfið og arfleifð hans. Curver vann náið með Ken Thomas, meðal annars unnu þeir saman að plötu fyrir Mínus sem var tekin upp að hluta í unglingaherbergi Curvers í Árbænum.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Heimilishjálpir í Óman
    Við fjöllum um heimilishjálpir í Mið-Austurlöndum, sér í lagi í Óman, í Hádeginu í dag. Þúsundir afrískra og asískra kvenna hafa farið til Mið-Austurlanda - sumar hverjar á algjörlega fölskum forsendum - í leit að vinnu. Þar starfa þær svo sem heimilishjálpir - margar hverjar undir ómannlegum og óafsakanlegum aðstæðum: Margar fá lítið, jafnvel ekkert, borgað fyrir vinnu sína, sem stundum varir nær allan sólarhringinn, alla daga. Sumar hverjar sæta ofbeldi af hálfu vinnuveitandans, og eiga sér oft jafnvel enga undankomuleið - vinnuveitandinn með skilríkin og pappíranna í höndunum. Við ræðum við Ingu Gerðu Pétursdóttur mannfræðing, sem fjallaði um heimilishjálpir í Óman í lokaverkefni sínu.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Pólitísk upplausn á Haítí
    Algjör pólitísk upplausn ríkir á Haítí og óljóst hver heldur þar um stjórnartaumana, ef nokkur. Forsetinn er fallinn, þingið er óstarfhæft og umboð forsætisráðherrans og ríkisstjórnarinnar í besta falli vafasamt. Þá hafa minnst þrír stjórnmálamenn lýst því yfir að þeir séu réttmætir leiðtogar landsins. Margar kenningar - og misjafnar - eru á floti um það hvers vegna forsetinn var ráðinn af dögum og hverjir það eru sem standa á bak við verknaðinn. Við förum yfir þær og ástandið á Haítí um þessar mundir í Hádeginu í dag.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ítalir Evrópumeistarar í knattspyrnu karla 2021
    Ítalir eru Evrópumeistarar í knattspyrnu karla árið 2021. Liðið hafði betur gegn Englendingum í leik gærdagsins eftir vítaspyrnukeppni. Leikurinn var stórmerkilegur fyrir margar sakir en Ítalía hneppti titilinn í annað sinn í sögu mótsins. Þá var þetta einnig í annað sinn sem sigurvegari Evrópumótsins er útkljáður með vítaspyrnukeppni - og aldrei áður hefur mark í úrslitaleik verið skorað jafn snemma og fyrsta mark Englendinga á 1:57 mínútu. Á meðan vonbrigðin voru mikil í Lundúnum ætlaði allt um koll að keyra í fagnaðarlátunum á Ítalíu þegar sigurinn var í höfn. Við ræðum við Einar Örn Jónsson íþróttafréttamann um leikinn, leiksigranna, sorgirnar og allt sem á eftir fylgdi: fagnaðarlæti og fordóma.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Meiðyrði í siðfræðilegu samhengi
    Hugtökin meiðyrði og ærumeiðingar hafa mikið borið á góma að undanförnu, sér í lagi í tengslum við umræðu á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum um kynferðisbrot og ásakanir um kynferðisbrot og áreitni. Margir sem hafa að undanförnu stigið fram og sagt sína sögu, svo sem vegna #MeToo hreyfingarinnar, veigra sér við því að nafngreina þann sem ásakaður er, meðal annars af ótta við einmitt þessi hugtök og hugsanlegar lagalegar afleiðingar þess: Að fá á sig kæru, verða dregin fyrir dómstóla, jafnvel hljóta sekt eða fangelsun. Við fjöllum um hugtökin tvö - meiðyrði og ærumeiðingar - út frá sjónarhóli siðfræðinnar í Hádeginu í dag og fáum til þess Elmar Geir Unnsteinsson heimspeking, sem starfar við Háskóla Íslands og University College Dublin. Hvers vegna þarf að vernda fólk gegn meiðyrðum? Af hverju kjósum við að gera það með lögum, reglum og refsingum? Má ekki alltaf segja það sem satt er?
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Samfélagsmiðlavendingar og örskýring
    Við förum yfir nýleg stórtíðindi úr heimi samfélagsmiðlanna í þætti dagsins: Skoðum kínverskan samskiptamiðil sem lokaði á spjallhópa hinsegin fólks, ný lög í Noregi sem skylda áhrifavalda til að merkja allar myndir sem átt hefur verið við, ellegar eigi þeir yfir höfði sér sekt eða fangelsisvist, og tímamótadóm í Frakklandi þar sem ellefu manns voru dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir að viðhafa ljót ummæli á netinu.
    Þá útskýrir Atli Fannar Bjarkason af hverju í ósköpunum allir og nágrannar þeirra virðast vera að endurfjármagna fasteignalán sín um þessar mundir. Í örskýringu dagsins svarar Atli Fannar spurningum á borð við: Er borðleggjandi að festa vexti núna eða er sniðugt að bíða aðeins? Ef svo - hversu lengi? Og veit það einhver?
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Amazonmógúll á leið út í geim
    Þann 20. júlí ætlar Jeff Bezos, stofnandi Amazon, út fyrir gufuhvolf jarðar með fyrsta mannaða geimfari Blue Origin, geimfyrirtæki hans, og verða þar með fyrstur óbreyttra borgara til að gera svo. Það er að segja, ef aðrir milljarðamæringar verða ekki fyrri til. Því miður fyrir Bezos, virðist vera nóg af stórhuga mönnum með nóg á milli handanna - sem allir eiga sér sama drauminn um að komast út í geim. Einn þeirra er breski athafnamaðurinn og auðkýfingurinn Richard Branson sem stefnir nú á að fara fyrstu farþegaferðina á vegum fyrirtækis hans Virgin Galactic út fyrir loftsteinanna ellefta júlí - níu dögum áður en Bezos heldur í sömu svaðilför.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ein stærsta gagnagíslataka sögunnar
    Tölvuárás, sem var gerð á bandarískt upplýsingatæknifyritæki í byrjun mánaðar, er sögð vera ein stærsta gagnagíslataka sögunnar. Árásin lamaði starfsemi fjölmargra fyrirtækja, bæði í Bandaríkjunum sem og um heim allan, meðal annars starfsemi allra 800 verslana sænsku matvörukeðjunnar Coop. En hvað er gagnagíslataka? Hverjir standa á bak við árásina? Hvað vilja þrjótarnir? Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri Syndis og sérfræðingur í tölvuöryggismálum, útskýrir málið nánar í Hádeginu í dag.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…